Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 107
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 107
Ætlaði að vera með
fjölskyldunni um jólin
„Vinur minn er að fara til Nýja Sjá-
lands 26. desember og hann hafði
samband við mig til að spyrja hvort
ég vildi ekki koma með. Mér fannst
það mjög spennandi og sló til. Ég
vildi samt verja jólunum með fjöl-
skyldunni og ákvað að bóka flug til
Íslands á Þorláksmessu og svo fer ég
til Nýja Sjálands á öðrum degi jóla.
Viku eftir að ég bókaði flugin ákvað
öll fjölskyldan mín að vera á Tenerife
um jólin. Þegar ég segi öll fjölskyld-
an meina ég foreldrar mína, systkini
mín, afa minn og systkina pabba. Ég
er því að fara að fljúga næstum þvert
yfir hnöttinn til að vera á Íslandi í
tvo og hálfan dag og taka svo langt
flug aftur þvert yfir hnöttinn til Nýja
Sjálands, án þess að hitta fjölskyld-
una mína,“ segir Steinunn og hlær.
„En þetta verður örugglega mjög
fínt, ég verð hjá frænda mínum sem
ég hitti venjulega bara einu sinni á
ári og mun örugglega bara hafa það
gott hjá honum,“ bætir hún við.
Stefnir á frekara
köfunarnám
Á Nýja Sjálandi ætlar Steinunn að
skoða sig um, fara í fallhlífarstökk,
teygjustökk og fleira. „Ég hlakka
mikið til, það er svo margt spenn-
andi að sjá þarna og við ætlum að
skoða eins mikið og við getum.“ Að-
spurð hvað taki við næst segir hún
það enn óákveðið. „Ég mun fljúga
frá Nýja Sjálandi til San Francisco
8. janúar og eftir það hef ég ekkert
planað. Ef ég á pening langar mig að
fara yfir til Mexíkó í einhvern tíma
en það verður bara að ráðast þegar
að því kemur. Ef ég á að segja eins
og er langar mig ekkert heim til Ís-
lands aftur, ég þoli ekki snjóinn og
skammdegið. Ef einhver býður mér
vinnu hvar sem er í heiminum þar
sem ekki er snjór og svona mikið
myrkur þá mun ég klárlega stökkva
til,“ segir Steinunn. Hún segir fátt
kalla á sig á Íslandi, annað en fjöl-
skylduna. „Ég get talað við þau í
gegnum tölvuna hvenær sem er svo
ég hef í raun lítið að sækja heim
annað en vinnu til að safna pening-
um fyrir frekari ferðalögum, ég vona
bara að ég fái frekar vinnu í sólríkara
landi,“ segir Steinunn og bætir því
við að nú sé draumurinn að komast
aftur í kafaraskóla og ná sér í frekari
réttindi. „Mig langar í kennararétt-
indi svo ég geti mögulega búið mér
til starfsframa við að kenna köfun.
En til þess þarf ég að fara á lengri
námskeið og vera úti í Egyptalandi
í 3-4 mánuði, en ég stefni á að láta
það verða að veruleika einn daginn.
Þetta kostar allt mikla peninga svo
ég þarf fyrst að finna mér vinnu og
safna. Kannski kem ég heim til Ís-
lands þegar líður á vorið og reyni
að safna fyrir þessu, það verður að
koma í ljós,“ segir Steinunn að end-
ingu.
arg/ Ljósm. úr einkasafni.
Steinunn Einarsdóttir í Kaíró í Egyptalandi að skoða pýramída.
Steinunn hitti þennan fallega hund í
Petru í Jórdaníu.
Við heimsins hæstu byggingu, Burj Khalifa í Dubai. Steinunn að láta sig fljóta í Dauðahafinu Jórdaníumegin.
Með hópi fólks í Wadi rum eyðimörkinni í Jórdaníu.
Á göngu við Petru í Jórdaníu.
Steinunn við Blue Mosque í Istanbúl.
Í ferðalagi um Egyptaland þar sem Steinunn fór m.a. í fjórhjólaferð um Sínaískaga
í Egyptalandi.
Steinunn fór í þriggja daga puttaferðalag um Norður Ísrael og kynntist þar
strákum á hosteli í Tiberias, sem buðu henni að fara með sér á puttanum yfir
fjöllin að landamærum Sýrlands.