Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 110
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017110
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
„Ert þú búin að setja þér
markmið fyrir árið 2018?“
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir
Nei, ég er ekki búin að því.
Kristjana Halldórsdóttir
Nei.
Lilja Halldórsdóttir
Já, að eignast húsnæði
Ívar Árnason
Já, að leggja meira fyrir.
Sigurjón Hannesson
Nei
Skallagrímskonur urðu að játa sig
sigraðar gegn Haukum, 84-63, í síð-
asta leik Domino‘s deildar kvenna
fyrir jólafrí. Leikið var á Ásvöllum í
Hafnarfirði á laugardag.
Mikið jafnræði var með liðun-
um í upphafi leiks og liðin skiptust
á að skora. Skallagrímur leiddi með
einu stigi þegar upphafsfjórðungur-
inn var hálfnaður en eftir það kom-
ust Haukakonur í gírinn. Þær náðu
yfirhöndinni í leiknum og með góð-
um kafla náðu þær sjö stiga forskoti
áður en fyrsti leikhluti var úti, 24-17.
Haukar tóku síðan öll völd á vellinum
í öðrum leikhluta. Liðið jók forskot
sitt snarlega í 14 stig og hélt þeirri
forystu meira og minna óbreyttri til
hálfleiks. Staðan í hléinu var 46-30,
Haukum í vil og liðið í vænlegri
stöðu fyrir síðari hálfleik.
Hægt og sígandi náði Skallagrímur
að minnka muninn í tíu stig, 63-53,
seint í þriðja leikhluta. En Hauk-
ar áttu lokaorðið í leikhlutanum og
náðu 16 stiga forskoti á nýjan leik
fyrir lokafjórðunginn, 69-53. Hauk-
ar réðu lögum og lofum á vellinum
allt til leiksloka og sigruðu að lokum
örugglega, 84-63.
Carmen Tyson-Thomas var at-
kvæðamest í liði Skallagríms með 33
stig, 17 fráköst og fimm varin skot.
Jóhanna Björk Sveinsdóttir skoraði
18 stig og tók níu fráköst en aðrir
leikmenn Skallagríms náðu sér ekki
á strik í leiknum.
Helena Sverrisdóttir setti upp
myndarlega þrennu í liði Hauka,
skoraði 23 stig, tók 16 fráköst og gaf
15 stoðsendingar. Þóra Kristín Jóns-
dóttir skoraði 18 stig, tók sjö frá-
köst og gaf fimm stoðsendingar og
Cherise Michelle Daniel skoraði 17
stig og tók tólf fráköst.
Skallagrímskonur sitja í sjötta sæti
deildarinnar með tólf stig, fjórum
stigum á eftir næstu liðum fyrir ofan.
Næst leikur Skallagrímur á nýju ári,
6. janúar næstkomandi þegar liðið
heimsækir Njarðvík.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Kvennakarfa
Skallagríms.
Skallagrímskonur
lágu gegn Haukum
Skallagrímur og ÍA mættust í Vest-
urlandsslag í 1. deild karla í körfu-
knattleik á fimmtudagskvöld. Leik-
ið var í íþróttahúsinu í Borgarnesi.
Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik
tóku heimamenn öll völd á vellin-
um í þeim síðari og sigruðu örugg-
lega, 127-96.
Jafnræði var með liðunum í upphafi
leiks en Skallagrímur hafði þó heldur
undirtökin. Eftir því sem leið á fyrsta
leikhluta sigu Skallagrímsmenn fram
úr. Þeir leiddu með níu stigum seint í
fjórðungnum en þá tóku Skagamenn
góða rispu og minnkuðu muninn í
tvö stig fyrir annan fjórðung, 31-29.
Skallagrímur leiddi áfram en Skaga-
menn fylgdu þeim eins og skugg-
inn næstu mínúturnar. Þegar heima-
menn virtust ætla að slíta sig frá ná-
grönnum sínum var þeim tilburðum
svarað snarlega. Eftir að hafa leitt
með átta stigum skömmu fyrir hálf-
leik minnkuðu Skagamenn muninn í
tvö stig skömmu fyrir hálfleik, 51-49
og aðeins munaði þremur stigum í
hléinu. Skallagrímur leiddi, 58-55.
Það var síðan í þriðja leikhluta
að Skallagrímsmenn tóku öll völd á
vellinum. Þeir mættu mun ákveðnari
til síðari hálfleiks, settu síðan í flug-
gírinn um miðjan þriðja leikhluta
og höfðu 23 stiga forskot að hon-
um loknum, 96-73. Þessi leikkafli
réði úrslitum og Skagamenn náðu
aldrei að svara fyrir sig. Heimamenn
héldu öruggu forskoti allt til leiks-
loka og sigruðu að lokum örugglega,
127-96.
Aaron Parks skoraði 27 stig fyr-
ir Skallagrím, tók níu fráköst, gaf
sjö stoðsendingar og stal boltanum
sjö sinnum. Eyjólfur Ásberg Hall-
dórsson skoraði 25 stig, tók átta frá-
köst og gaf sjö stoðsendingar. Darrel
Flake var með 15 stig og fimm frá-
köst, Bjarni Guðmann Jónsson 15
stig einnig, Kristófer Gíslason 13
stig og sex fráköst og Arnar Smári
Bjarnason 13 stig.
Marcus Dewberry dró vagninn
í liði Skagamanna og fór mikinn.
Hann lauk leik með hvorki fleiri né
færri en 44 stig, tíu fráköst og sjö
stoðsendingar. Aldursforsetinn Jón
Frímannsson skoraði 20 stig og Jó-
hannes Valur Hafsteinsson ellefu en
aðrir höfðu minna.
Liðin verja jólafríinu á sitthvor-
um enda deildarinnar. Skallagrímur
trónir á toppnum með 20 stig, jafn
mörg og Breiðablik í sætinu fyrir
neðan en á leik til góða á nýja árinu.
Skagamenn eru aftur á móti stiga-
lausir á botni deildarinnar, tveimur
stigum frá næsta liði en eiga tvo leiki
til góða.
Skallagrímur leikur næst fimmtu-
daginn 4. janúar þegar liðið mæt-
ir Gnúpverjum í Borgarnesi. Skaga-
menn leika sunnudaginn 7. janúar
þegar þeir mæta Snæfelli í Vestur-
landsslag á Akranesi.
kgk/ Ljósm. Skallagrímur Körfu-
bolti.
Skallagrímur á
toppnum um jólin
Snæfell tók á móti Breiðabliki í síð-
ustu umferð Domino‘s deildar kvenna
fyrir jólafrí. Leikið var í Stykkishólmi
á laugardag. Urðu Snæfellskonur að
játa sig sigraðar, 66-71, í leik þar sem
gestirnir höfðu yfirhöndina lungann
úr leiknum.
Liðin fylgdust að í upphafi leiks
og Snæfell leiddi með einu stigi,
7-6, þegar fyrsti leikhluti var hálfn-
aður. Þá náðu gestirnir forystunni
og höfðu fjögurra stiga forskot þeg-
ar leikhlutinn var úti, 13-17. Jafn-
ræði var með liðunum framan af
öðrum leikhluta en þegar líða tók
nær hléinu fóru gestirnir að síga
fram úr. Breiðablik leiddi með ell-
efu stigum í hálfleik, 28-39. Snæ-
fellsliðið kom ákveðið til síðari hálf-
leiks og minnkaði muninn jafnt og
þétt framan af þriðja leikhluta. Um
hann miðjan hafði Snæfell minnkað
forskot gestanna í fimm stig, 40-45.
Eftir það náðu Blikakonur góðri
rispu og leiddu með 13 stigum fyr-
ir lokafjórðunginn, 47-60. Snæfells-
konur minnkuðu muninn jafnt og
þétt í fjórða leikhluta en Breiðablik
sleppti aldrei tökum sínum á leikn-
um. Snæfell komst ekki nær en sem
nam fimm stigum í stöðunni, 63-68,
þegar tvær mínútur lifðu leiks en þar
við sat og Breiðablik hafði að lokum
sigur, 66-71.
Kristen McCarthy var atkvæða-
mest í liði Snæfells með 27 stig, tólf
fráköst og fimm stolna bolta. Næst
henni kom Berglind Gunnarsdótt-
ir með 20 stig og þá Rebekka Rán
Karlsdóttir með ellefu stig.
Ivory Crawford átti stórleik fyr-
ir gestina, skoraði 34 stig, tók sjö
fráköst og gaf fimm stoðsendingar.
Auður Íris Ólafsdóttir var með 18
stig en aðrar höfðu minna.
Þegar deildin fer í jólafrí situr Snæ-
fell í sjöunda og næstneðsta sæti með
tíu stig, tveimur stigum á eftir Skalla-
grími í sætinu fyrir ofan en langt frá
stigalausum Njarðvíkurkonum sem
verma botnsætið. Næst leikur Snæ-
fell gegn Íslands- og bikarmeistur-
um Keflavíkur. Sá leikur fer fram í
Stykkishólmi á nýju ári, laugardag-
inn 6. janúar næstkomandi.
kgk
Snæfellskonur þurftu að
lúta í gras á heimavelli
Berglind Gunnarsdóttir og stöllur
hennar í Snæfelli þurftu að játa sig
sigraðar gegn Breiðabliki.
Ljósm. úr safni/ Haukur Páll.
Yfirþjálfarar landsliða og landsliðs-
þjálfarar í hópfimleikum hafa val-
ið úrtakshóp vegna Evrópumóts-
ins í hópfimleikum sem fram fer á
næsta ári. Um 200 iðkendur mættu
á fyrstu úrtaksæfingu landsliðsins og
alls voru hundrað iðkendur frá átta
félögum valdir í fyrsta úrvalshópinn.
Þrjár stúlkur úr Fimleikafélagi Akra-
ness voru valdar í úrvalshóp stúlkna.
Það eru þær Guðný Sigurrós Jó-
hannsdóttir, Guðrún Julianne Unn-
arsdóttir og Valdís Eva Ingadóttir.
Þá voru fjórir fyrrum iðkendur Fim-
leikafélags Akraness valdir í úrvals-
hóp karla, þeir Guðmundur Kári
Þorgrímsson, Logi Örn Axel Ingv-
arsson, Helgi Laxdal Aðalgeirsson
og Guðjón Snær Einarsson. Allir æfa
þeir nú með Stjörnunni.
Á heimasíðu Fimleikasambandsins
segir að landsliðsþjálfarar muni fylgj-
ast vel með þróun iðkenda og endur-
skoða hópinn fyrir seinni úrtaksæf-
ingu sem haldin verður í mars. Það
er því enn möguleiki að vinna sér sæti
í hópnum með góðri frammistöðu í
mótum vetrarins. Lokahópurinn fyr-
ir Evrópumótið í hópfimleikum verð-
ur síðan valinn um miðjan maí.
kgk/ Ljósm. Fimleikafélag Akraness.
Sjö Vestlendingar í úrvals-
hópi í hópfimleikum
Um liðna helgi hittust ÍA klifrarar
á Jólamóti ÍA í aðstöðu klifurfélags-
ins að Vesturgötu á Akranesi. Um 30
klifrarar mættu prúðbúnir til leiks og
glímdu við 13 klifurleiðir sem leiða-
smiðir ÍA höfðu sett upp. Mótið
heppnaðist afar vel. Leiðasmiðir lögð
mikla vinnu í að setja upp skemmti-
legar leiðir fyrir klifrara að glíma við
og að þessu sinni voru allar leiðir
klifraðar.
Á komandi önn mun Klifurfélag-
ið bjóða upp á klifur fyrir fullorðna
en félagið hefur gert tilraun með slíka
tíma á haustönn og hafa þeir verið vel
sóttir og augljóst að eftirspurn eft-
ir klifri fyrir fullorðna er til staðar,
að sögn Þórðar Sævarssonar. „Skrán-
ing fyrir vorönn verður auglýst inn-
an skamms og biðjum við því klifrara
um að fylgjast með. Reynt verður eft-
ir bestu getu að tryggja öllum áhuga-
sömum pláss á klifurveggnum,“ seg-
ir Þórður.
Fleiri myndir frá Jólamótinu má sjá
á fésbókarsíðu Klifurfélags ÍA.
mm
Hittust á jólaklifurmóti