Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 34
„Prófkjör og forvöl opnuðu
leiðir fyrir hinn obreytta
flokksmann til áhrifa. Eða
þannig var málið hugsað. Nú
gætir hins vegar óánægju
með prófkjör því í þeim kem-
ur greinilega fram aðstöðu-
munur frambjóðenda og áirif
þess f jármagns sem þeir
ráða yfir.“
Alþýðubandalagsins síðustu ár, en við
tekur Magnús Jón Árnason.
Rannveig sagði meginástæðu þess að
hún ætlar að hætta þátttöku í bæjarmál-
um þá að þegar hún hafi verið búin að
vera í pólitík svo lengi sem raun ber vitni
hafi komið að því að hún hafi þurft að
gera upp við sig hvort hún hafi ætlað að
halda áfram í pólitík, og þá með stóru
Péi, eða halda áfram í framhaldsnámi.
Rannveig sagðist bjartsýn á að Al-
þýðubandalagið næði tveimur fulltrúum
að þessu sinni, og sagði að listinn væri
nokkuð sterkur.
Nokkrar sviptingar hafa verið hjá
Sjálfstæðismönnum í vetur. Einar Þ.
Mathiesen, bróðir utanríkisráðherra,
sagði sig úr byggingarnefnd vegna ágrein-
ings við flokksfélaga sína og enn er óvíst
hvort hann verður á framboðslista
flokksins, en að þessu sinni verður ekki
prófkjör í Hafnarfirði heldur uppstill-
ingarnefnd. Einar sagði HEIMSMYND
að hann gæfi kost á sér væri til hans
leitað.
Hvort aðrar breytingar verða á listan-
um er alls óvíst en samkvæmt heimildum
HEIMSMYNDAR mun Árni Grétar
Finnsson, sem ætlaði að draga sig í hlé,
sennilega verða í kjöri og þá vegna þeirra
deilna sem verið hafa innan bæjarstjórn-
arflokks Sjálfstæðismanna.
Þá leita Framsóknarmenn í Hafnar-
firði nú frambjóðanda því Markús Á.
Einarsson, veðurfræðingur, ætlar ekki að
gefa kost á sér aftur. Ástæðuna segir
hann vera þá að hann hafi aldrei ætlað að
gera þetta að varanlegu starfi en hann
hefur nú setið í bæjarstjórn í 12 ár.
Það eru sem sagt miklir óvissuþættir í
Hafnarfirði. Hvort Kvennalistinn býður
fram eða ekki, og hvort Flokkur manns-
ins býður fram og þá hvort þessi framboð
hljóta fylgi. En stærsta spurningin verður
hvort Óháðir borgarar bjóði fram eða
ekki, því ef þeir verða ekki með, þá
þurfa um tólf hundruð manns, sem
Vilhjálmur Þ. Vilhálms-
son er orSinn fastur í sessi
í borgarstjórn og situr í
valdamiklum nefndum
eins og til dæmis skipu-
lagsnefnd. Hann hefur
sætt gagnrýni vegna mála
þar sem hagsmuna-
árekstrar hafa orðið, eins
og til dæmis þegar Reykja-
víkurborg ákvað að leggja
niður pípusteypu sína og
kaupa þess í stað holræsa-
rör frá Steypustöðinni Os
hf í Garðabæ, en þar er
bróðir Vilhjálms, Einar
framkvæmdastjóri.
'
*A
A
greiddu listanum síðast atkvæði sín, að
gera upp hug sinn að nýju.
Og þá getur einnig dregið til tíðinda í
Kópavogi. En einn viðmælenda okkar í
Kópavogi sagðist óttast að framboð
Kvennalistans þar í bæ myndi enn tvístra
atkvæðum þeirra sem kenna sig við fél-
agshyggju, þannig að Sjálfstæðisflokkur-
inn gæti náð meirihluta í bæjarstjórn.
í Kópavogi segja heimildarmenn okk-
ar að komin sé óánægja í meirihlutasam-
starfið, en þar eru vinstri flokkarnir í
stjórn. Þessu neitar Heiðrún Sverrisdótt-
ir, sem skipaði annað sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins við síðustu kosningar og
ætlar að gefa kost á sér aftur.
Endanlegir listar hafa ekki verið lagðir
fram hjá öllum flokkum þannig að ekki
er hægt að segja endanlega til um manna-
breytingar í bæjarstjórn Kópavogs. Þó
mun Ragnar Snorri Magnússon, Fram-
sóknarflokki, ætla að hætta og í skoðana-
könnun innan flokksins fyrir stuttu varð
Guðrún Einarsdóttir hlutskörpust en þau
Skúli Sigurgrímsson, sem nú situr í
bæjarstjórn, og Elín Jóhannesdóttir í
næstu sætum. í prófkjöri sem fór síðan
fram varð Skúli Sigurgrímsson efstur og
verður því í fyrsta dæti listans í vor en
Guðrún önnur.
Enn mun vera óvíst hvort Björn Ólafs-
son, efsti maður Alþýðubandalags mun
verða í framboði, og enn hefur listi Sjálf-
stæðisflokksins ekki verið kynntur.
Heiðrún sagði að hún áliti að núver-
andi meirihluti bæjarstjórnar hefði unnið
vel og bæði hefði tekist vel til með félags-
lega þjónustu og einnig hefði verið lagt í
fjárfrekar framkvæmdir eins og til dæmis
lagningu holræsisins. Hún sagði næst á
dagskrá áframhaldandi uppbyggingu
miðbæjarins og átak í gatnaframkvæmd-
um í gamla bænum.
Hún sagði að óneitanlega hefðu lands-
málin áhrif og fólk liti ekki svo mikið til
stefnu flokkanna. En samstarf meiri-
hlutaflokkanna hefði gengið vel og því
væri ekki ástæða til að óttast að sá meiri-
hluti félli. Hún sagði líka að ef landsmál-
in hefðu einhver afgerandi áhrif á kosn-
ingarnar þá yrðu það sennilega aðallega
Framsóknarmenn sem töpuðu, miðað
við nýlegar skoðanakannanir.
En þó eining ríki meðal meirihluta-
flokkanna í Kópavogi virðist ekki vera
hægt að segja sömu sögu af Akureyri.
Þar segja heimildarmenn okkar að mikil
þreyta sé komin í samstarfið, og munar
að sögn manna mikið um fráfall Sigurðar
Óla Brynjólfssonar, fyrsta manns á lista
Framsóknarflokksins, sem lést ári eftir
að hann manna mest átti þátt í að mynda
þann meirihluta sem verið hefur við völd
síðan.
Sá meirihluti er myndaður af Kvenna-
framboði, Framsóknarflokki og Alþýðu-
bandalagi. Nú er hins vegar næsta víst að
Kvennaframboðið býður ekki fram undir
því nafni aftur, heldur undir nafni
Kvennalistans ef af verður og hverjar
verða þá í framboði er óvíst. Til dæmis
hefur Valgerður Bjarnadóttir, sem verið
hefur forseti bæjarstjórnar, ekki gert upp
hug sinn,en mun geraþað ánæstudögum.
Valgerður sagði í samtali við HEIMS-
MYND að þetta hefði verið skemmti-
legur og lærdómsríkur tími og að hún
myndi ekki hætta umhugsunarlaust en
sagði að það væri mjög erfitt að vera
bæði einstæð móðir og virk í stjórnmál-
um og það hefði verið mikið álag á bæði
barn sitt og aðra ættingja.
Hún vildi ekki staðfesta að samstarfs-
meirihlutinn væri orðinn þreyttur, en
heimildir okkar segja að afgreiðsla mála
á Akureyri hefði einkennst af málamiðl-
unum og því tekið langan tíma og bæjar-
búum oft virst sem hálfgert stefnuleysi
hefði ríkt.
Valgerður sagði að nokkur árangur
hefði náðst í baráttumálum Kvennafram-
boðsins en ekki nægur þannig að ástæða
sé til að halda áfram. Hún tiltók sem
sérmál kvenna á Akureyri dagvistunar-
*
i
34 HEIMSMYND