Heimsmynd - 01.03.1986, Page 37

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 37
„Reyndar hefur lengi verið möguleiki á hreinum meiri- hluta Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn og hafa þeir nú fimm fulltrúa af ellefu en tal- ið eraðlungað af fylgi óháðra borgara, bjóði þeir ekki fram, myndi færast yfir á Sjalfstæöisflokkinn. Bryndís Schram. Hún lenti í öðru sæti fram- boðslista Alþýðuflokksins án þess að taka virkan þátt í prófkjörsslagnum. Ahrif sjónvarpsins? mál og grunnskólamál, og sagði að til dæmis ríkti ófremdarástand í skólamál- um í Glerárhverfi. Þá tiltók hún að heilsugæslustöð hefði tekið til starfa og væri nú unnið að frek- ari uppbyggingu hennar, en rekstur heilsugæslustöðvarinnar væri mikilvægur fyrir kvenfólk því þar færi meðal annars fram krabbameinsleit, ungbarnaeftirlit og mæðraeftirlit. Hvað varðar dagvistarmál, sagði Val- gerður að tekin hefði verið í notkun ein > ný dagvistun, en meirihlutinn hefði tekið þá stefnu að gera upp þrjár dagvistar- stofnanir sem fyrir voru, en voru það illa farnar að til stóð að hætta rekstri þeirra, í stað þess að byggja nýjar. Valgerður taldi víst að landsmálin hefðu mikil áhrif á kosningar og sagði að tækist ríkisstjórninni að halda niðri verð- bólgu fram yfir kosningar hefði það áhrif og vafalaust myndu ríkisstjórnarflokk- arnir hagnast á því í sveitarstjórnarkosn- ingunum. Hins vegar benti hún á að þessi sama ríkisstjórn hefði dregið allverulega úr framlögum til framkvæmda sveitarfélaga og lækkað tekjustofna þeirra. Það var ekki endanlega búið að ganga frá öllum listum á Akureyri en líklegast er talið að Freyr Ófeigsson, lögfræð- ingur, verði í efsta sæti á lista Alþýðu- flokksins eins og síðast. Freyr sagði að stefna þeirra Alþýðuflokksmanna væri að halda áfram uppbyggingu í bænum; framkvæmdastefna, og að auka félags- lega þjónustu. Hann sagði að vonleysi hefði einkennt þessa bæjarstjórn sem nú er við völd, allt frá því að Sigurður Óli lést, en hann hefði haldið utan um málin. Bæjarstjórnin hefði verið reikul og látið undan á flestum sviðum. í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins voru þeir Gunnar Ragnars, forstjóri Slipp- stöðvarinnar, Sigurður J. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skeljungs á Akureyri sigurvegarar. Þá tók sonur Jóns G. Sól- nes, Jón Kr. Sólnes, þátt í slagnum í fyrsta sinn. Sigurður Jóhannesson, fulltrúi Vals Arnþórssonar kaupfélagsstjóra, kemur til með að skipa efsta sæti framboðslista Framsóknarflokksins, en hann er talinn mun hægri sinnaðri en fyrirrennari hans, Sigurður Óli. Til dæmis sagði einn bæjar- stjórnarmanna að við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar hefði varla gengið hníf- urinn á milli Sigurðar og Sjálfstæðis- mannanna-enda telja Akureyringar næsta víst að næsti bæjarstjórnarmeiri- hluti verði myndaður af Framsóknar- flokki og Sjálfstæðisflokki. í fyrsta sæti á lista Alþýðubandalags verður Sigríður Stefánsdóttir kennari, en hún var í öðru sæti síðast. Þá var Helgi Guðmundsson trésmiður í fyrsta sæti, en hann flutti til Reykjavíkur þar sem hann meðal annars vinnur fyrir Menningar- og fræðslusamband alþýðu. Heimildarmaður HEIMSMYNDAR innan Framsóknarflokksins segir að það hafi verið mikill sjónarsviptir að Sigurði Óla og ólíklegt sé að aðrir frambjóðend- ur flokksins nái að halda þeim atkvæðum sem persónufylgi Sigurðar hafi fært flokknum. Hann hafi verið frjálslyndur stjórnmálamaður, fastur á sínu en ævin- lega tilbúinn að hlusta á rök annarra og taka fullt tillit til þeirra. Andstæðingur hans í bæjarstjórn sagði að það hefði verið mikil ánægja að vinna með Sigurði. Hann hefði verið alveg laus við kreddur og haft opinn huga þrátt fyrir að hann hefði kannski ekki verið auð- sveigjanlegur. Hann hefði umfram annað verið málefnalegur og heiðarlegur. Það er því spurning hvað gerist í kosn- ingunum í vor. Heldur Framsóknarflokk- urinn sínu undir forystu Sigurðar Jóhann- essonar, sem heimildir okkar segja hvergi nærri eins vinsælan og fyrirrennari hans var og að auki séu tengsl hans við Kaupfélagið ekki til þess fallin að auka fylgið? Á sama hátt sakna Sjálfstæðismenn Gísla Jónssonar en hann tekur ekki þátt í þessum kosningum. Að vísu eru þeir frambjóðendur sem að framan eru nefn- dir vinsælir menn en það er sjónarsviptir að Gísla, sagði Sjálfstæðismaður HEIMSMYND. En hafi heimildarmenn okkar rétt fyrir sér verður það næstum því aðeins forms- atriði að kjósa á Akureyri í vor, því næsti meirihluti sé að verða tilbúinn. Fram- sóknarmenn undir forystu Sigurðar Jó- hannessonar vilja í samstarf við Sjálf- stæðismenn, geta enda ekki hugsað til þess að vera ekki í meirihluta í kaupfél- agsbænum fyrir norðan, og Sjálfstæðis- menn vilja gjarnan komast að við stjórnvölinn. En það eru mannabreytingar víðar en á Akureyri. Á Akranesi hætta 3 af 4 fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og tveir af þremur fulltrúum Framsóknarflokksins, en þar hefur meirihlutinn samanstaðið af fjórum fulltrúum Sjálfstæðismanna, ein- um frá Alþýðuflokki og einum frá Al- þýðubandalagi. Þeir Sjálfstæðismenn sem hætta núna, eru fyrsti maður listans síðast, Valdimar Indriðason, þingmaður og formaður bankaráðs Útvegsbankans, Hörður Páls- son, bakarameistari og Ragnheiður Ól- afsdóttir, húsmóðir, en eftir verður Guð- jón Guðmundsson, skrifstofustjóri hjá Þorgeir og Ellert hf. en hann ætlaði að hætta núna, en lét til leiðast að sitja eitt kjörtímabil enn. f öðru sæti verður Bene- dikt Jónmundsson, útibússtjóri Skelj- ungs, og í þriðja sæti Rúnar Pétursson, forstjóri Akraprjóns. Af Framsóknarmönnum hætta þau Jón Sveinsson, lögmaður, en hann segir það ekki ganga saman að sinna bæði lög- mannsstörfum og bæjarstjórn, til þess sé of lítill tími, og Steinunn Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri. Að sögn heimildarmanns HEIMS- MYNDAR á Akranesi hefur ekki gætt HEIMSMYND 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.