Heimsmynd - 01.03.1986, Side 48

Heimsmynd - 01.03.1986, Side 48
að með auknu frjálsræði í atvinnumálum á dögum Viðreisnarstjórnar upp úr 1960, hafi dregið úr völdum pólitískra skömmtunarstjóra, tök flokkanna á út- hlutun fjármagns hafi minnkað og í kjöl- farið hafi siglt háværari gagnrýni innan flokka og frjálslegri umræður. í þessu sambandi benda margir hægri menn á þróunina í vaxtamálum und- anfarin ár, þar sem hækkun raunvaxta hafi haft svipaðar afleiðingar eða með öðrum orðum, um leið og vextir fari að skammta peninga þá linist tök pólitíkusa á útlánum. Þessar skýringar á umbrotunum í fjár- málaheiminum stangast nokkuð á. Ólaf- ur Ragnar Grímsson prófessor virðist greina þetta sem átök milli tveggja valda- hópa, annars vegar hóps nýríkra athafna- manna og hins vegar gamla valdakjarn- ans í Sjálfstæðisflokknum. Nýríku at- hafnamennirnir hafi beitt Albert Guðm- undssyni og Friðrik Sóphussyni fyrir sig en gamli valdakjarninn styðjist við hefð- bundna forystumenn flokksins. Greining Ólafs Björnssonar prófessors lýtur hins vegar að breyttum aðstæðum á peninga- markaði og auknu aðhaldi eftir því sem úthlutun fjármagns verður ópólitískari. Samkvæmt þessari skýringu er Hafskips- og Útvegsbankamálið árekstur tveggja sjónarmiða, arðsemiskröfunnar, sem heimti gjaldþrot fyrirtækja ef rekstur þeirra ber sig ekki og þeirra vildarkjara, sem menn hafi notið vegna pólitískra ítaka. Ólafur Björnsson bendir á það í bók um sögu Útvegsbankans, sem kom út fyrir nokkrum árum, að Útvegsbank- anum hafi verið lögð sú skylda á herðar að halda uppi óarðbærum fyrirtækjum og hafi það staðið bankanum fyrir þrifum. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur segir að með þessu sé bönkunum breytt úr fyrirtækjum í líknarfélög við einstaka at- vinnurekendur. Ólafur Ragnar Grímsson telur að Haf- skipsmálið sýni meðal annars átök hinna nýju og gömlu valdahópa í Sjálfstæðis- flokknum. Hinir tveir forstjórar Haf- skips, þeir Ragnar Kjartansson og Björg- ólfur Guðmundsson, hafi haft ítök í Sjálfstæðisflokknum og notið stuðnings þeirra Alberts Guðmundssonar og Frið- riks Sóphussonar. Björgólfur var for- maður Varðar, félags sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ragnar Kjartansson var lengi framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík og var fenginn til þess að flytja eina aðalræðuna á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins 1983, sem sér- stakur fulltrúi athafnasamra kaupsýslu- manna. Heimildir úr innsta hring Sjálf- Hafstein (bankastjóri Útvegsbankans og síðar forsætiSráðherra) var tengdasonur Hauks Thors, bróður Ólafs og Pétur Benediktsson, (bankastjóri Landsbank- ans og bróðir Bjarna) tengdasonur Ólafs Thors. En ugglaust hefur mörgum staðið stuggur af þessu ættarverldi. Önnur meginbreytingin sem Ólafur Ragnar greinir er hvernig Albert Guð- mundsson ryðst eins og vígahnöttur inn í íslenska stjórnmálaheiminn upp úr 1970. Albert hafði ítök í Verslunarráðinu, skjaldborg einkaframtaksins á íslandi og naut fylgis verslunarstéttarinnar, sem hefur alltaf verið mikið afl í Sjálf- stæðisflokknum. Annar maður, sem kemur til sögu á þessum tíma er Friðrik Sóphusson, núverandi varaformaður Sjálfstæðisflokks, en hann felldi Björn Bjarnason í frægum og hörðum kosning- um um formannsembætti Sambands ungra sjálfstæðismanna árið 1973. Það var tímanna tákn, segir Ólafur Ragnar, þar sem Björn, sonur nýlátins formanns flokksins og forsætisráðherra naut tví- mæialaust eindregins stuðnings gamla valdakjarnans í flokknum Að sögn Ólafs Ragnars verður þriðja meginbreytingin, sem raskar hinum gamla valdakjarna, með prófkjörunum um og upp úr 1970. Þar hafi nýir menn, sem ekki hafi verið óskabörn flokksfor- ystunnar í Sjálfstæðisflokki haslað sér völl. Má þar til dæmis nefna Ellert B. Schram og Friðrik Sóphusson. Aðrir draga þessa greiningu Ólafs Ragnars í efa og benda á að prófkjörin hafi reynst fremur íhaldssöm og sennilega ekki breytt miklu um rás viðburða. Of mikið sé gert úr einstökum mönnum en of lítið úr þeim aðstæðum, sem þeir störfuðu við. Margir vinstri menn benda einnig á að með vaxandi verðbólgu í byrjun áttunda áratugarins og neikvæðum raunvöxtum hafi gömlu klíkurnar setið í bestu sætun- um eða haft forgang að fjármunum með- an aðrir hafi verið frystir úti. Mennirnir með nýju fyrirtækin hafi einnig þurft sitt rekstrarfé og þeir hafi því lent í sam- keppni um fyrirgreiðslu við þá sem fyrir voru. Því hafi þessir menn þurft að tryggja sér pólitískan stuðning í kerfinu - finna sína fulltrúa og koma sér upp eigin samtryggingarkerfi. Ólafur Björnsson prófessor segir hins vegar í grein frá 1968 Ragnar Kjartans- son fyrrum stjórn- arformaður Haf- skips var lengi framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík og var fenginn til þess að flytja eina aðal- ræðuna á lands- fundi Sjálfstæðis- flokksins 1983, sem sérstakur fulltrúi athafnasamra kaupsýslumanna. 48 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.