Heimsmynd - 01.03.1986, Qupperneq 50

Heimsmynd - 01.03.1986, Qupperneq 50
stjórnarandstöðunnar, virtust gera sér grein fyrir fljótt var að einkaneyslan um- talaða í tengslum við forráðamenn Haf- skips, sem Helgarpósturinn gekk öðrum framar í að tíunda, virtist fara sérstaklega fyrir brjóstið á skattborgurum. Parna átti almenningur að fá að sjá svart á hvítu hvernig bruðlað væri með almannafé. Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Hafskips hefur að vísu neitað flestum staðhæfingum Helgarpóstins um lúxuslíf forráðamanna Hafskips, þótt einn af toppmönnum íslenska bankakerfisins hafi sagt í samtali við HEIMSMYND að „þeir Hafskipsmenn hafi farið mjög glannalega með fé.“ Engu að síður höfðu margir það að viðkvæði þegar Haf- skipsumræðan stóð sem hæst að brátt yrði það gleymt og grafið í leiði ís- lenskrar spillingar. Kann að vera. Það var jú aðeins eitt prósent af þjóðarframleiðslu, sem skuldir Hafskips námu, að mati eins hag- fræðings sem benti jafnframt á að í þessu dæmi væri aðalsökin bankans. Og ljóst er að ef einhverjir hafa talið ástæðu til að breyta bankakerfinu fyrir daga gjald- þrots Hafskips hafa ugglaust margir bæst í þann hóp, þótt enn séu ýmsir þeirrar skoðunar að nóg sé að herða bankaeftir- litið, breyta yfirstjórn Seðlabankans og koma á fieiri rannsóknarnefndum. Porvaldur Gylfason hagfræðingur og prófessor við Háskóla fslands hefur bent á að það bankakerfi, sem við búum við, er einstakt í okkar heimshluta. Þar sem allir stærstu viðskiptabankarnir séu ríkis- bankar sé augljóst að í slíku bankakerfi hljóti stjórnmálahagsmunir oft að yfir- gnæfa venjuleg viðskipta- og hagkvæmn- issjónarmið við ákvörðun útlána með þeim afleiðingum að óarðbær útlán bankakerfisins verði fyrirferðameiri en þau myndu vera ef hér væru öflugir einkabankar með sanngjarnar arðsemis- kröfur. Ríkisbankar sjái sér hag í því að ívilna einstökum atvinnugreinum eða byggðarlögum með því að þenja útlán umfram það sem einkabankar teldu æski- legt. Telur Þorvaldur að þannig standi sjálft ríkisbankakerfið skynsamlegri stjórn í peningamálum fyrir þrifum og bendir á að þeir stjórnmálahagsmunir sem ríkisbankarnir lúti stangist oft á við aðhald í efnahagsmálum og því geti reynst erfitt fyrir Seðlabankann að veita viðskiptabönkum öflugt aðhald um út- lánastefnuna. Dr. Hannes H. Gissurar- son, einn helsti talsmaður frjálshyggjun- ar og nauðsynjar þess að breyta ríkis- bönkum í hlutafélög, segir að samkvæmt reglum bankanna eigi stjórnendur ekki endilega að haga útlánum eftir arðsvon heldur eftir „félagslegum sjónarmiðum", sem stundum sé annað nafn á atkvæða- von stjórnmálamanna. Stjórnendur ríkis- banka séu því stundum að gegna skyldu sinni þegar þeir láni fé í vonlaus fyrir- tæki. Hannes bendir á gjaldþrot Hafskips og þátt Útvegsbankans sem dæmi um það að þeir sem taki rangar ákvarðanir beri ekki kostnaðinn af þeim, sem sé mjög óæskilegt. Ríkisbankar búi ekki við eðli- leg markaðsskilyrði heldur séu þeir undir stjórn alþingismanna og annarra stjórn- málamanna og hagsmunir þeirra séu ekki endilega að bankinn græði fé þar sem slíkt skili sér ekki til þeirra, þeir hafi hins vegar mikla hagsmuni af því að bankinn gleðji kjósendur þeirra, það skili þeirri skiptimynt, sem þeir kunni að meta í atkvæðum. Ýmsir eru þeirrar skoðunar að helsta lexían sem læra megi af Hafskips-Útvegs- bankamálinu sé að herða mjög bankaeft- irlitið. Það telja margir hæpið, þar sem strangara bankaeftirlit inn í Seðlabanka stuðli ekki að skynsamlegri lánveiting- um, þótt það kynni að hvetja bankana til gætilegri lánveitinga. Einn frjálshyggju- maður bendir á að við hert bankaeftirlit hætti bankarnir að þora að taka áhættu. Því sé nauðsynlegt að efla samkeppni milli bankanna, sem knýji þá til skynsam- legri lánveitinga, með því einu móti geti þeir laðað til sín trausta lántakendur og banki græði ekki nægilegt fé á útlánum nema hann þori að taka áhættu. Aðrir á öndverðum meiði við frjáls- hyggjuna segja pólitíska umræðu af þessu tagi snúast um tæknilegar lausnir vandamála þar sem tekið sé mið af póli- tískri hugmyndafræði sérhagsmuna, þeirra hagsmuna sem séu leiðarljós í af- stöðu ráðandi afla í þjóðfélaginu. Þetta er líka spurning. Með öðrum orðum er lausn vandans ekki aðeins fólgin í úr- ræðum á borð við sameiningu vissra banka, yfirtöku á rekstri annars, breyt- ingu á sjóðakerfinu eða breytingu ríkis- banka í arðvænleg hlutafélög. Pólitísk tengsl verða áfram til staðar. En ef til vill þurfum við ekki að hafa áhyggjur, ef til vill ráða ytri aðstæður meiru um fram- vindu mála í náinni framtíð, rétt eins og þeir Hafskipsmenn segja að ytri aðstæð- ur hafi orðið þeirra banabiti! Garðar Sigurðsson er fulltrúi Alþýðu- bandalagsmanna í bankaráði Utvegs- bankans. Ljósm.: Jim Smart. 50 HEIMSMYND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.