Heimsmynd - 01.03.1986, Page 61

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 61
kominna. Ballið byrja samt ekki fyrir al- vöru fyrr en tveir óhamingjusamir ein- staklingar (lesist: á valdi smáborgarahátt- ar) bindast nánum böndum, til dæmis hjónabandi. ímyndið ykkur hjónaband tveggja einstaklinga, sem hafa smáborg- arahátt allsráðandi í lífi sínu! Hálfdán og Sigurborg, ungt fólk á uppleið giftu sig fyrir ári. Undirrót sambands þeirra er löngun til að lifa eftirsóknarverðu lífi sem aðrir öfundi þau af. Þau eru stöðugt að staðfesta þetta eftirsóknarverða líf fyrir hvort öðru og umhverfinu. Þau lifa fyrir ímynd sem er eitthvað á þessa leið: Við erum ungt og efnilegt fólk, sem tekur höndum saman og stofnar smart heimili. Við lifum góðu lífi, því við erum menntuð og vel launuð. Við klæðumst fallegum fötum, eigum falleg húsgögn og eignumst falleg börn, ergo: við erum öf- undsverð og eftirsóknarverð. Hálfdán og Sigurborg lifa ekki lífi sínu saman af innri sannfæringu, (þ.e. af ást og virðingu), heldur fremur vegna sameiginlegra drauma um ákveðið lífsform. Þau vita innst inni að samband þeirra byggir ekki á traustum grunni en telja ímyndina sem tengir þau saman það eftirsóknarverða að sjálfsblekkingin borgi sig. Samband Hálfdáns og Sigurborgar varð til af svip- uðum hvötum og tónlist Saliére, vegna þarfar til að upphefja sig yfir aðra. Hálf- dán og Sigurborg eru óörugg, þau sveifl- ast á milli vantrúar og ofmetnaðar og Það leynist vottur af smáborgara í okk- ur öllum . . . Átakanleg sena úr kvikmyndinni Amadeus. Snillingurinn á banabeðinum og Salieri skrifar niður. „Þeir eru ágæt dæmi um menn sem sömdu tönlist af ólíkum ástæðum, Salieri til þess að verða hátt metinn og Mozart af innri nauðsyn. eiga í stöðugri samkeppni sín á milli og við annað fólk. Ekki er loku fyrir það skotið að sumar þjóðir séu gagnteknari af smáborgara- hætti en aðrar. Ef staðreynd málsins er sú að smáborgaraháttur sé algengur á íslandi, þá er sú niðurstaða í hróplegu ósamræmi við títtnefnda skoðanakönnun Hagvangs frá 1984, þar sem. íslendingar komu út sem ein hamingjusamasta þjóð á jarðarkringlunni. Því má spyrja hvort niðurstaða skoðanakönnunarinnar sé byggð á sjálfsblekkingu íslensku þjóðar- innar (það er þeirra sem svöruðu), eða er þetta trúverðug niðurstaða? Matið um hamingju íslensku þjóðarinnar byggir lík- lega á þeim skoðunum margra íslendinga að þjóðin sé góð, falleg, gáfuð, smart, (hvergi eins margar tískuverslanir miðað við íbúafjölda), skáldleg, bókhneigð, friðsæl; á ytra borðinu að minnsta kosti. (Prófeinkunn: 10). Þjóð, sem hefur slík ytri einkenni hlýtur að teljast ham- ingjusöm!! Við erum ungt og efnilegt fólk, klæð- umst fallegum fötum, eignumst falleg börn; við erum öfundsverð og eftirsókn- arverð! Draumur um ákveðið lífsform? Því miður kemur alltaf sú stund að það rennur af mönnum, til dæmis á sunnu- dagsmorgni eftir laugardagsfylleríið og þá er ekkert nema svört auðnin framund- an. Ef gerð yrði skoðanakönnun á slíkri stundu, finndist eflaust mörgum íslend- ingum þeir fremur hallærislegir, sveita- legir, ókurteisir, vondir og þunnir. Takið eftir að smáborgarahátturinn er ríkjandi bæði í oftrúnni og vantrúnni á sjálfan sig. Óstjórnleg áfengisdrykkja til dæmis er aðeins ein afleiðing smáborgaraástands- ins og líta má á hana sem tilraun til þess að bæta sér upp ósannfærandi líf. Slík tilraun tekst að sjálfsögðu aldrei, hún stækkar mann og smækkar til skiptis, en læknar engan af „ósannfærandi" líferni. Margir halda því fram að íslendingar séu einmitt sú þjóð, þar sem smáborgara- hátturinn sé allsráðandi í þjóðlífinu. Þessu til sönnunar er bent á hversu óhamingjusamir og óöruggir íslendingar eru, hversu uppteknir þeir eru af sjálfum sér og þar af leiðandi ómálefnalegir. Þeir sveiflast á milli oflátungsháttar og van- máttar. Hvort smáborgaraháttur fslend- inga er meiri eða minni en annarra þjóða er aukaatriði. En hvers vegna eru íslend- ingar slíkir smáborgarar? Þetta er viða- mikil spurning en víst er að svarið tengist þeim gildum, sem þjóðin telur mikilvæg. Þessi gildi eru verðgildi fremur en mann- gildi og siík gildi eru magnbundin. Við spyrjum hvort einhver sé meiri eða minni, smáborgari eða háborgari í stað þess að velta vöngum yfir því hvern mann viðkomandi einstaklingur hafi að geyma. Við sækjumst eftir að falla inn í eftirsóknarverða ytri mynd og þráum að vera yfir aðra hafin. Hvort ætli sé þó eftirsóknarverðara þegar til lengri tíma er litið, að Iifa lífi sem okkur finnst öf- undsvert á ytra borði (líf háborgarans eða réttara sagt smáborgarans) eða að sættast við sjálfan sig og lifa og deyja fyrir innri sannfæringu? Ert þú Mozart eða Saliére? HEIMSMYND 61
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.