Heimsmynd - 01.03.1986, Page 72
„Upphaf erfiðleika af
þessu tagi má oft rekja
til vítahrings í samspili
hjónanna. Ennþá eru
þær hugmyndir al-
gengar í okkar þjóðfé-
lagi að karlmaðurinn
eigi að fullnægja kon-
unni og bera ábyrgð á
að samfarirnar heppn-
ist."
„Ýmiskonar draumór-
ar eru auðvitað eðli-
legir og raunar nauð-
synleg forsenda
heilbrigðs kynlífs.
Hvaða draumórar okk-
ur finnast eðlilegir eða
óeðlilegir ræðst nokk-
uð af ríkjandi siðferð-
islögmálum í þjóðfé-
laginu hverju
sinni . . ."
Nanna Kolbrún Sigurðardóttir félags-
ráðgjafi. Ljósm.: Árni Bjarna.
Djúpar tilfinningar og væntumþykja í
garð hins aðilans eru að mati Þorgeirs
Magnússonar, sálfræðings, meginfor-
sendur þess að fólk geti lifað ánægjulegu
kynlífi. Þannig veitir líkamleg svölun
kynhvatarinnar ekki endilega þá lífsfyll-
ingu sem fólk sækist eftir heldur verða að
fylgja kynlífinu tilfinningar í garð rekkju-
nautsins.
En þýðir þetta að kynlífsbyltingin svo-
kallaða sé liðin undir lok, og að fólk láti
sér ekki nægja frjálst kynlíf í kjölfar
skyndikynna heldur geri meiri kröfur til
tilfinningalegs bakgrunns?
Já, sögðu margir viðmælendur
HEIMSMYNDAR, góðu kynlífi verða
að fylgja fjölþættari tilfinningar en kyn-
hvötin ein.
En kynlífsbyltingin hafði víðtæk áhrif.
Menn áttu allt í einu að vera svo opnir og
frjálsir að þeir fóru að skammast sín fyrir
eðlilegar hömlur á kynlífssviðinu, segir
Þorgeir en hann hefur lagt stund á kyn-
lífsfræði og veitir meðal annars fjöl-
skylduráðgjöf þar sem hann aðstoðar
fólk sem á við einhvers konar kynlífs-
vandamál að stríða.
Kynfræði (sexologi) er fræðigrein sem
fjallar um forvarnarstarf og meðferð
kynlífsvandamála og tengist ýmsum öðr-
um greinum svo sem læknisfræði, sálar-
fræði, félagsfræði og kennslu.
Hinn lífeðlisfræðilegi þáttur kynlífsins
hefur verið rannsakaður sérstaklega af
þeim Masters og Johnson. Þau hafa skipt
kynmökum lífeðlisfræðilega í fjögur stig.
Á fyrsta stigi hefst örvun og blóð
streymir til kynfæranna. Á næsta stigi
heldur örvunin áfram og forleikur á sér
stað og kynmök hefjast. Á þriðja stigi
verður útrás, eða fullnæging, en lokastig-
ið felur í sér hjöðnun, þar sem kynfærin
fara í samt lag aftur.
Þorgeir Magnússon sálfræðingur
Við höfum auðvitað þetta lífeðlis-
fræðilega ferli, en til viðbótar koma önn-
ur atriði sem gefa ferlinu gildi og eru
tilfinningalegs eðlis og ráða úrslitum um
gœði samlífsins, sagði Þorgeir í viðtali við
HEIMSMYND.
Þorgeir sagði orsakir erfiðleika á kyn-
lífssviðinu geta verið af ýmsum toga.
Stundum stæðu líkamlegir þættir í vegin-
um, stundum væri fáfræði og misskilningi
um að kenna, þá væri ónóg örvun og
röng tækni oft til hindrunar auk ýmissa
sálfræðilegra þátta; togstreita milli aðil-
anna, valdabarátta og tjáskiptaörðug-
leikar. Ein megin ástæðan væri oft sú að
fólk hætti ekki á að treysta öðrum fyrir
sjálfum sér og tilfinningum sínum, þyrði
ekki að gefast annarri manneskju und-
anbragðalaust.
Og svo virðist sem nokkurs óöryggis
gæti í kynlífi íslendinga, því allflestir
unglingar verða trúlega fyrir sinni fyrstu
kynlífsreynslu undir áhrifum áfengis og
eldra fólk og óbundið leitar gjarna á
veitingastaði til að stofna þar til tíma-
bundinna kynna sem snúast aðallega um
kynlíf en hafa litla aðra ábyrgð í för með
sér.
Petta lýsir einhvers konar ótta hjá okk-
ur við náin tengsl við aðra manneskju og
áfengi gerir okkur nokkurn veginn óá-
byrg. íslendingar drekka mikið í einu og
kasta af sér hömlunum og eru fljótir að
ganga alla leið.Morguninn eftir er hins
vegar dregið í land aftur og fólk orðið
algjörlega óábyrgt á því sem gerðist.
Fólk tekur ekki ábyrgðina sem þvífylg-
ir að hafa nálgast aðra persónu heldur
notar það sem afsökun að hafa verið
drukkið. Og þannig verður kynlíf þessa
fólks að mati Þorgeirs innantómt þrátt
fyrir að líkamleg fullnæging náist
kannski.
Af tölum erlendis frá um tíðni og eðli
72 HEIMSMYND