Heimsmynd - 01.03.1986, Side 74

Heimsmynd - 01.03.1986, Side 74
/ „Eg held að þetta hljóti, að þessu leyti, að endurspegla það óöryggi sem ríkir í samskiptum kynjanna — við eigum svo erfitt með að nálgast hinn aðilann og opna okkur og taka fulla ábyrgð á því sem við gerum.“ THECOMEDYOF STEVEN WRIGHT ROGER KAIIN CRAIG VETTER ASA BABER AND MUCH. MUCH MORE mrmmmmm “i TKTÍ ENTERTAINMENT FOR MEN THE WALTONS GIKL, JUDY NORTON-TAYLOR IN A GROWN-UP NUDE PICTORIAL THE PLAYBOY INTERVIEW FIDEL CASTRO ONREAGANAND a REVOLUTION jÆ kynlífsvandamála má ætla að um það bil 10 prósent fólks eigi við kynlífsvandamál að stríða. Eitt af algengari vandamálum kvenna eru erfiðleikar við að ná há- marki, fá fullnægingu, en hjá karl- mönnum er bráðasáðlát algengast. Áhugaleysi á kynlífi og kynmökum kem- ur yfirleitt upp hjá báðum kynjum ein- hvern tíma á lífsleiðinni. Hins vegar er algert getuleysi og kynkuldi næsta sjald- gæft vandamál. Og það er meðal annars fólk sem á við ofangreind vandamál að stríða sem leitar til Þorgeirs. í mörgum tilfellum er vanda- málið að mati viðkomandi hjóna það að maðurinn hefur bráðasáðlát, eða nær há- marki of fljótt þannig að konan nær ekki hámarki. Upphaf erfiðleika af þessu tagi má oft rekja til vítahrings í samspili hjónanna. Ennþá eru þær hugmyndir algengar í okkar þjóðfélagi að karlmaðurinn eigi að fullnægja konunni og bera ábyrgð á að samfarirnar heppnist. Stundum gengur þetta svo langt að hann gleymir sjálfum sér og fer að hugsa of mikið um konuna -og fœr sjálfur of fljótt sáðlát. Óánœgjan magnast enn og jafnframt kemur hrœðsla til skjalanna; maðurinn verður hrœddur við kynlíf vegna þeirra vissu sinnar að hann geti ekki fullnœgt konunni. Óttinn og kvíðinn leiðir stundum til þess að manninum hættir að standa. Dæmi sem þetta að ofan er oftast leysanlegt með réttu hug- arfari, þar sem fyrsti þátturinn er ef til vill að leita sér aðstoðar og ráðgjafar sé í óefni komið. Markmiðið er að lengja annað stig samfaranna þannig að örvun verði meiri og báðir aðilar nái að njóta þeirra rétt. Þetta getur náðst til dæmis með líkamsæfingum þar sem konunni er „kennt á líkama sinn og viðbrögð hans“ en Þorgeir sagði HEIMSMYND að venjulega þekktu ungir karlmenn útrás- artilfinninguna mun betur en konur, enda oft búnir að stunda sjálfsfróun frá kynþroskaskeiði. í viðtali við danska kynlífs- sérfræðinginn og lækninn Sören Buus Jensen í Morgunblaðinu fyrir rétt rúmu ári síðan, kom fram að með aukinni um- fjöllun um tæknileg vandamál, svipuð þeim sem hér voru rakin, í fjölmiðlum, hefur fjöldi þeirra sem leitar til sérfræð- inga vegna þeirra minnkað. í staðinn kvartar fólk nú yfir öðru vandamáli, eða áhugaleysi fyrir kynlífi. Þetta var, sagði læknirinn, mikið við- kvæmnismál sérstaklega fyrir karlmenn, að viðurkenna að þeir hefðu ekki áhuga á kynlífi. En þetta hefur breyst og æ fleiri leita sérfræðiaðstoðar vegna þessa. Meginorsökina sagði Jensen vera valdabaráttu innan heimilisins. Báðum aðilum finnst hinn hafa valdið og ráða yfir sér og eru til dæmis ekki á eitt sátt um hversu oft þau eigi að hafa kynmök. Um meðhöndlunina sagði Jensen í viðtal- inu: Við lítum á kynlífsvanda eins og hvert annað einkenni um að jafnvœgi fjöl- skyldukerfisins eða hjónaeiningarinnar hafi raskast. A þann hátt eru aðferðir okkar mjög skyldar fjölskyldu- og hjóna- meðferð. Annar helsti flokkur kynlífsvandamála eru frávik frá venjulegri kynhegðun, og þá oft hegðun sem kemur viðkomandi aðila í kast við lögin. Undir þennan flokk falla til dæmis þeir sem leita á börn, bera sig á almannafæri og þeir sem beita aðra ofbeldi til að fá vilja sínum framgengt. Litlar sem engar upplýsingar liggja fyrir um kynhegðun íslendinga þar sem fáar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi. En nú hefur verið stofnað félag sem meðal annars hefur slíkar rannsókn- ir á stefnuskrá sinni, Kynfræðifélag ís- lands. Stjórnarformaður félagsins er Nanna Kolbrún Sigurðardóttir, félags- ráðgjafi, en í starfi sínu með fjölskyldum og hjónum fæst hún meðal annars við kynlífsvandamál. í lögum félagsins segir meðal annars: Markmið félagsins er að efla frœði- greinina kynfrœði (sexologi) á íslandi og stuðla að samstarfi fagfólks, sem fæst við meðferð, kennslu eða rannsóknir á sviði kynfræða. Nanna sagði í viðtali við HEIMS- MYND að stofnfélagar hefðu verið 23 talsins, en sennilega væru þeir er fengjust við kynfræði í störfum sínum helmingi fleiri, fyrir utan kennara, sem fást við þessi mál við venjulega kennslu. Stofn- endur Kynfræðifélagsins voru læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sál- fræðingar og fólk sem vinnur önnur störf á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu. Enn sem komið er hefur félagið ekki tekið til starfa af fullum krafti, enda stofnað aðeins skömmu fyrir jól, en verk- efnin eru næg. Hvaða orsakir liggja að baki kynlífs- vandamálum? Eins og Þorgeir benti á hér á undan geta þær verið margskonar en Nanna bætti við að töluvert væri af fullorðnu fólki sem hefði fengið litla fræðslu í þessu efni en væri að glíma við kynlífsvandamál sem rekja mætti til þekkingarleysis og erfiðleika við að tjá sig um kynlíf. Síðan mætti ekki gleyma því að kynlífsvandamál væru ákaflega eðlilegur þáttur í mannlegu lífi og að flestir glíma við einhvers konar erfiðleika af þessu tagi fyrr eða síðar á lífsleiðinni. Kynlífsfræðsla er að hluta til fræðsla um ákveðnar staðreyndir, varðandi t.d. líffærafræði og lífeðlisfræði, en annar þáttur snertir frekar tilfinningalíf og sið- ferðiskennd. Og þar er komið að breyttum þjóðfélagsháttum, því áður fyrr eyddu börn og unglingar meiri tíma með foreldrum sínum, allavega öðru þeirra, og fengu þannig siðferðiskennd foreldr- anna smátt og smátt. Nú hefur þessi sam- vera fjölskyldunnar minnkað án þess að nokkur hafi tekið við þeim þætti uppeld- issins sem snýr að siðferðiskennd nema ef telja ætti þátt fjölmiðla. 74 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.