Heimsmynd - 01.03.1986, Síða 102
MERYL
STREEP
eftir síðustu skorpuna, þrjár kvikmyndir,
Plenty, Out of Africa og Heartburn. Ég
er ennþá þreytt og það bitnar ofurlítið á
fjölskyldunni.“
-Hefur sú staðreynd að þú ert móðir,
breytt viðhorfi þínu til hlutverka, eða
hvernig þú leikur eða jafnvel skynjar
konurnar, sem þú leikur?
„Það brýtur niður varnir manns á viss-
an hátt. Maður er ekki eins harður af sér
og við sumum hlutum í kvikmyndum of-
býður mér, sérstaklega ofbeldi og tilfinn-
ingakulda. Ég get ekki hugsað mér að sjá
kvikmyndir, þar sem mikið ofbeldi er. A
sama hátt loka ég oft augunum yfir
kvöldfréttunum í sjónvarpinu — ég vil
ekki vita af því að þessi þjáning sé til í
þeim heimi sem ég hef alið börnin mín í,
skilurðu? Pegar ég var ein, var þetta allt
öðruvísi — þjáning og sorg umheimsins
voru einhvern veginn utan ramma míns
lífs. Nú óttast ég ekki lengur hvort ein-
hverjir hræðilegir hlutir hendi mig —
heldur hvort einhverjir hræðilegir hlutir
hendi börnin mín og það er óbærileg
tilhugsun."
-Eru leikhæfileikar meðfæddir — eða
finnst þér þú hafa haft mikið gagn af
leikmenntun þinni?
„Ekki MA gráðunni sjálfri en reynslan
hefur kennt mér sitthvað. Ég er hins
vegar mjög fegin að ég lauk námi. Þó
þarf maður enga gráðu til að ná langt í
leiklist. En námið var mjög mikilvægt
fyrir mig, því ég hóf það svo seint, var 27
ára þegar ég hætti í skóla. Og námið
veitti mér ákveðið öryggi síðar meir. Ég
þurfti ekki að vinna á börum eða í öðrum
slíkum störfum eins og margir ungir
leikarar — ég gat einbeitt mér alfarið að
leiklistinni. Þannig voru þessi ár mikil-
væg en slíkt er á engan hátt trygging fyrir
árangri.“
-Horfirðu einhvern tíma á sjálfa þig á
hvíta tjaldinu innan um áhorfendur?
Hlær. „Nei, ég er of taugatrekkt til
þess í bili. Ég gat það þegar ég var yngri
en því eldri sem ég verð því meira fer það
í taugarnar á mér, ef fólk hlær að drama-
tískum senum og hrýtur þegar fyndnu
senurnar eru.“
-Hvað finnst þér um gagnrýni?
„Ég held að því meir sem fólk haldi að
það hafi eitthvað á hreinu, því sann-
færðara verði það í skoðun sinni, sama
hve röng hún kann að vera. Því skiptir
það engu máli hvað ég geri, það virðist
ekki breyta áliti viss hóps. Og ég viður-
kenni að gagnrýni, sem mér finnst ekki
sanngjörn, fer í taugarnar á mér. Því
meiri fórnir sem ég færi persónulega, þar
sem mikil vinna gerir það að verkum að
ég er miklum fjarvistum frá fjölskyldu
minni eða hef mjög lítinn tíma fyrir hana,
þá vildi ég gjarna fá umbun eða hrós fyrir
starf mitt, fái ég skammir er erfitt að taka
þeim í ljósi þess hvað þetta starf kostar
mann.“
-Er það þá pínulítið erfitt að vera ein
þekktasta kvikmyndaleikkona hins vest-
ræna heims?
„Nei, ég tel mig mjög heppna.“
-Þú sérð enga hættu fólgna í því?
„Jú, vissa hættu - auðvitað! Ég veit
ekki alveg hvernig ég á að svara þér, hver
hún er, er það af því að ég er fræg eða af
því að fólk kannast við kvikmyndir mínar
en fer kannski samt á þær með neikvæðu
hugarfari. Fólk hefur fyrirfram mótaðar
skoðanir á mér, af því það þekkir mig úr
öðrum myndum. Fólki finnst ég kannski
ekki lengur fersk — ég er ekki nýtt andlit,
Karen Blixen eða Isak Dinesen á efri
árum. Andlitið ber þess merki að hún
hefur þjáðst af sárasótt og öðrum
sjúkdómum. Þannig sá Meryl Streep
hana eingöngu á ljósmyndum og
myndböndum. „Ég reyndi að ímynda
mér hvernig hún hefði litið út ung . . .“
heldur bara Meryl Streep. Sjálfri finnst
mér ég vera ný með hverju nýju hlut-
verki, þess vegna er ég leikkona og því
hef ég valið leiklistina af því að hún gefur
mér tækifæri til að lifa mig inn í svo
margvísleg hlutverk. En það er erfitt að
sætta sig við að áhorfendur skynji þetta
kannski allt öðru vísi. Það er það erfið-
asta við frægðina. Það er slæmt að maður
geti ekki endurholdgast — en það er það
sem maður er alltaf að reyna!“
-Þessi spurning er ósanngjörn en finnst
þér hafa dregið úr eftirsókn eftir þér -
eða að mjög þekktir leikarar séu valdir
með þér, eins og til dæmis Robert de Niro
til að tryggja örugga aðsókn?
„Þetta er ekki ósanngjörn spurning.
Hins vegar hef ég ekki orðið vör við slíka
skynsemi! Það eru ekki allir sem vilja
gera mynd með Sly Stallone til að tryggja
fjórfalda aðsókn.“
-Það er verið að sýna Rocky IV í
Reykjavík. Þú verður kannski á móti
honum í Rocky V?
„Ég myndi elska að fara inn í hringinn
með Sly. Nei, ég er bara að grínast. Það
er fullt af fólki, sem mig langar að leika á
móti. Ég ætla hins vegar engin nöfn að
nefna — ekki núna. Er þetta ekki orðið
gott!“ Og hún flissar. En í þetta sinn að
ástæðulausu...
102 HEIMSMYND