Heimsmynd - 01.03.1986, Side 103

Heimsmynd - 01.03.1986, Side 103
Sidney Pollack leikstjóri. í viðtali við HEIMSMYND sagði hann að hann hefði mikinn áhuga á að fjalla um samskipti manns og konu af mjög ólíkum bakgrunni. MERYL SU EINA SEM KOM TIL GREINA í HLUTVERKIÐ - SEGIR SIDNEY POLLACK LEIKSTJÓRI í SAMTALI VIÐ HEIMSMYND ' KAREN BLIXEN „Ég átti býli í Afríku við rœtur Ngong hæðanna... “ Þannig eru upphafsorð bókar danska rithöfundarins Karen Blixen (rithöfund- arnafn hennar var Isak Dinesen) í Out of Africa, bók um líf hennar á kaffiekrum í Kenýa í byrjun þessarar aldar. Hún varð þó að gefast upp á búskapnum í Kenýa 1929 og hjónaband hennar og Bror Blix- en var farið í hundana — hann hafði smitað hana af sárasótt og hún þjáðist af afleiðingum þess það sem hún átti eftir ólifað. í Afríku varð Karen ástfangin af breskum ævintýramanni að nafni Denys Finch-Hatton. Pað ástarsamband fór út um þúfur og setti mjög mark sitt á hana, en Denys Finch-Hatton fórst í flugslysi skömmu áður en hún yfirgaf Afríku. Hún var fertug og hafði misst allt sem var henni kærast... Karen Dinesen fæddist í Danmörku árið 1885. Hún sýndi fljótlega mikla hæfi- leika sem greind og varð uppreisnarsegg- ur fjölskyldunnar, sem tilheyrði dönsku yfirstéttinni. Hún giftist frænda sínum Bror Blixen, að því að talið er til að losna undan yfirráðum fjölskyldunnar. Þau fluttust til Kenýa árið 1912 og hófu rækt- un á kaffi. í Afríku bjó Karen í sautján ár og gekk undir nafninu Blixen barónessa. Á þessum tíma horfði hún á margt um- ^ hverfis sig fara í súginn og hélt niðurbrot- in kona heim til föðurhúsanna, fertug að aldri. Nokkrum árum síðar fór hún að skrifa endurminningar sínar og kom bókin Out of Africa út 1938. Hún tók upp rithöfundarnafnið Isak, sem á he- bresku þýðir „sá sem hlær,“ og notaði sitt gamla ættarnafn Dinesen. Eftir hana komu síðan út mörg fræg verk, sem í fyrstu var hafnað af gagnrýnendum heima í Kaupmannahöfn en urðu síðar viðurkennd á alþjóðavettvangi. Hún var í tvígang tilnefnd til nóbelsverðlauna. Karen Blixen lýsti sjálfri sér sem sögu- manni og hún sagði eitt sinn: „Ef maður endursegir ekki lífið í hugarheimi sínum, þá lifir maður ekki til fulls!“ ► „Ég valdi Meryl Streep í hlutverk Kar- en Blixen eftir að hafa prófað fyrir mér víða,“ sagði leikstjórinn Sidney Pollack í samtali við HEIMSMYND nýlega. „Ég hafði rætt við og prófað fjöldann allan af evrópskum leikkonum — þar á meðal skandinavískar en eftir að hafa prófað Streep einu sinni í hlutverkið, fannst mér engin önnur koma til greina,“ sagði þessi frægi leikstjóri og kvikmyndaframleið- andi, sem á ótal vinsælar og þekktar myndir að baki. Hann sagði hins vegar að öðru máli hefði gegnt með Robert Redford. Með valinu á Redford í hlutverk breska ævin- týramannsins Denys Finch-Hatton, elsk- huga Karen Blixen, teldi hann sjálfur að hann hefði tekið meiri áhættu, án þess að hann kysi að fara nánar út í þá sálma. Out of Africa er fjórtánda kvikmyndin sem Sidney Pollack leikstýrir en samtals hafa myndir hans hlotið 31 kvikmynda- verðlaun og átta eru á lista yfir vinsæl- ustu myndir allra tíma. Þar á meðal er grínmyndin Tootsie með Dustin Hoff- man í aðalhlutverki, sem hann fékk verð- laun fyrir. Hann fékk einnig verðlaun fyrir myndina They Shoot Horses, Don't They?, þar sem Jane Fonda steig sín fyrstu skref á braut til alþjóðlegrar frægð- ar, árið 1969. Fyrsta stóra kvikmyndin sem Pollack leikstýrði var The Slender Thread árið 1965 með Anne Bancroft í aðalhlutverki. I næstu mynd hans lék Robert Redford og var það fyrsta myndin af sex, sem Redford hefur leikið í undir stjórn Poll- acks, má þar meðal annars nefna Jeremi- ah Johnson, mynd sem var mjög ódýr í framleiðslu en varð feykilega vinsæl. Af öðrum þekktum myndum Pollacks síðasta áratug má nefna, The Way We Were, Three Days of the Condor, Bobby Deerfield, The Electric Horseman auk þeirra sem fyrr hafa verið nefndar. - Aðspurður um hver væru uppáhalds við- fangsefni hans, svaraði Pollack: „Myndir þar sem lögð er áhersla á hversu við- kvæmt samband getur verið á milli karla og kvenna af mjög ólíkum bakgrunni. Slíkt munuð þið sjá sérstaklega í Out of Africa, danska yfirstéttarkonu og bresk- an ævintýramann. HEIMSMYND 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.