Heimsmynd - 01.03.1986, Side 124

Heimsmynd - 01.03.1986, Side 124
FTÖLMIÐLUN NÝR ÚTVARPSSTJÓRI - EINAR SIGURÐSSON Er dópisti á fiölmiðla Hægur, prúður, norðlenskur, fastur fyrir með djúpa rödd. Þótt sjálfur lýsi hann sér sem „voðalegum galgopa“, það er þegar hann er meðal vina. Að öðru leyti segist hann feiminn. Það kom reyndar ekkert á óvart að íslenska útvarpsfélagið skyldi velja Einar Sigurðsson til þess starfs að verða fyrsti útvarpsstjóri hinnar nýju stöðvar, þeirrar fyrstu sem sett verður á laggirnar eftir rúma hálfrar aldar einokun ríkisútvarps- ins. Flestir þekkja andlit hans úr frétta- tímum sjónvarpsins, þar sem hann hefur starfað í tæp þrjú ár, eða frá því að hann lauk námi í fjölmiðlun og stjórnmála- fræði í London. Hann segist vera dópisti á fjölmiðla. Eftir að hann lauk stúdentsprófi frá menntaskólanum á Akureyri, þar sem hann er fæddur og uppalinn, fór hann til Reykjavíkur til að hefja nám í líffræði, en snerist hugur og fór að vinna á Alþýðublaðinu. Það var árið 1976, þegar tilraun var gerð til að „rífa“ blaðið upp. „Reykjaprent, sem gaf út Vísi tók við rekstrinum. Margt ungt fólk, sem síðar fór á fréttastofu útvarpsins,var ráðið á blaðið. Árni Gunnarsson var ritstjóri sem og Vilmundur Gylfason. Það var góður skóli og maður sá tilgang í því, þar til flokkurinn tók við því. Petta var eigin- lega dæmt spil frá upphafi eins og margt annað í sorglegri blaðasögu á íslandi." Einar var á Alþýðublaðinu í tvö ár eða þar til hann réði sig sem morgunþul hjá ríkisútvarpinu. Þar var hann í tvö sumur en hóf nám haustið 1978 í fjölmiðlafræði við Polytechnicháskólann í London, það- an sem hann lauk BA prófi. Því næst lauk hann magisterprófi í stjórnmála- fræði frá London School of Economics. Á meðan náminu stóð hélt hann tengsl- um við útvarpið í Reykjavík, þar sem hann starfaði á sumrin, fyrst sem þulur og síðar sem fréttamaður. Auk þess var hann fréttaritari útvarpsins í London. „Þá var Margaret Thatcher nýkomin til valda og miklar sviptingar í breskum stjórnmálum, það gustaði um hana og ég held að fréttir mínar frá London hafi farið fyrir brjóstið á sumum hægri mönn- um. Ég var alla vega skammaður hressi- lega í Velvakandabréfum.“ Um pólitísk viðhorf sín, segir hinn nýi útvarpsstjóri, „ég er þessi táknræni blaðamaður, vægur krati, þó ekki í flokkslegum skilningi, örlítið kaldhæð- inn. Ég held að flestir blaðamenn séu á þessari línu“, segir hann. „Alla vega níu af hverjum tíu. Þó held ég að það sé engan hægt að hanka á hlutdrægni af þeim sem starfa á fréttastofum útvarps og sjónvarps. Mín reynsla af ríkisútvarp- inu er sú, að þar séu stunduð fagleg vinnubrögð í krafti ákveðinnar hefðar en sem miðil skortir ríkisfjölmiðlana ákveð- ið bit. Þeir standa frekar fyrir samstöðu en átök. Þó hefur umfjöllun fréttastof- anna orðið miklu hispurslausari hin síð- ari ár og er það viðbragð gagnvart opnari fjölmiðlun í landinu, nýju fólki, nýjum áhrifum..." Einar segir aðspurður enga launung á því að í íslenska útvarpsfélaginu séu „eintómir hægri menn í stjórn. En ég er ekki ráðinn í starfið til að útvarpa þeirra skoðunum. Ég mun halda mínum fag- kröfum - á þann hátt einan getur maður haldið trúnaði hlustenda. Fari fólk að * tortryggja fjölmiðil um hlutdrægni minnkar traustið í hans garð og þar af leiðandi hlustun. Með því móti minnkar markaðsgildi miðilsins - en þetta útvarp verður eingöngu fjármagnað með auglýs- ingum og verður í beinni samkeppni við ríkisútvarpið, án þess að það verði líkt annarri hvorri stöðinni, það er rás 1 eða rás 2. Það verður öðruvísi. Það verður , staðbundnara, stefnir aðallega að þjón- ustu við stór-Reykjavíkursvæðið og ná- grannabyggðalög. “ Þessa dagana er Einar Sigurðsson mjög önnum kafinn maður. Hann er í verki bæði framkvæmdastjóri og útvarps- stjóri. Hann sér ekki eingöngu alfarið um mótun dagskrárstefnu heldur og rekstur stöðvarinnar, ráðningar, útvegun tækja- kosts og húsnæðis svo nokkuð sé talið. Stjórnunar- og peningahliðin er honum nokkuð framandi. Hann brosir feimnis- lega. „Ég hef aldrei unnið öðruvísi held- ur en eftir stimpilklukku - og ég hef aldrei þurft að fást við fjármálastjórn áður, en þetta er mjög spennandi. Ég er mér þó meðvitaður um markaðsumhverf- ið og þau öfl, sem þar eru að verki. Og auglýsingamarkaðurinn mun ráða úrslit- •* um um framtíð þessa útvarps. En það á eftir að koma í ljós hversu atkvæðamikill yfirmaður ég verð,“ segir hann hálf hlæj- andi. „Fjölmiðlun er ekki og getur aldrei , orðið færibandavinna." Hann mun hafa innan við einn tug starfsmanna á sínum 124 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.