Heimsmynd - 01.03.1986, Page 126

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 126
BOKMENNTIR eftir Helga Skúla Kjartansson LIFAÐ AF LANDSINS GÆÐUM í AFMÆLISBORGINNI Tveggja alda borgarafmæli leiðir hug- ann að sögu Reykjavíkur, ekki síst sögu hennar þau tvö hundruð ár sem liðin eru frá því hún varð kaupstaður. Unnið er að því á borgarinnar vegum að semja ræki- legt yfirlit um þá sögu alla. Og er það gert í tilefni afmælisins þótt ekki komi fyrir almenningssjónir á afmælisárinu sjálfu. Það gerir hins vegar bók Þórunnar Valdimarsdóttur: Sveitin við Sundin. Bú- skapur í Reykjavík 1870 -1950. Hún mun koma út með vorinu, sjötta bókin í „Safni til sögu Rcykjavíkur" sem Sögufé- lagið gefur út í samvinnu við Reykjavík- urborg. Þórunn er ungur sagnfræðingur, lauk kandídatsprófi 1983, og hafði þá einmitt samið prófritgerð sína um búskap og jarðrækt í Reykjavík. Það lá því beint við að fala hana til að rannsaka efnið nánar og rita um það heila bók. Því verki lauk hún á síðasta ári, en hefur þó ekki lagt búnaðarsögu á hilluna með öllu, því að nú starfar hún að því að skrá ævisögu Einars Ólafssonar í Lækjarhvammi, eins af framámönnum bændastéttarinnar um áratuga skeið. Bók Þórunnar, sú sem nú er að koma út, fjallar um mjög margar hliðar á bú- skap og landnytjum Reykvíkinga. Hún ritar um lönd og lóðir, túnrækt og nýbýli, mjólk og kjöt, kýr og sauði, hesta, hunda, hænsni, áburð og nýtingu hans, mótekju og garðyrkju. Þórunn hefur vinsamlega leyft HEIMSMYND að birta stuttar glefsur úr bókinni. Einkum hefur orðið fyrir valinu efni sem bregður birtu á hreinlæti - nán- ar tiltekið skort á því - í borgarumhverf- inu og framfaraviðleitni á því sviði. Bókarkaflarnir sem hér birtast gefa glöggt dæmi um frásagnarhátt Þórunnar. Hún lýsir hlutunum einkanlega eins og þeir sneru við fólki í daglegu lífi og er óspör á að vitna í heimildir þegar þær eru til þess fallnar að krydda frásögnina og færa lesandann nær veruleika sögutím- ans. Það mun trúlega koma mörgum les- endum á óvart hve miklu er frá að segja í bók um þetta efni. Reykvíkingar voru um skeið í fararbroddi um búnaðarfram- kvæmdir, langumsvifamestir allra kúa- bænda, jarðabótamenn í fremstu röð og áhugasamir um fjölgun sveitabýla í bæjarlandinu. Nýjar aðstæður eftirstríðs- áranna gera þessa sögu æði framandi, að minnsta kosti yngri kynslóð Reykvík- inga, en þó eru ekki nema fimmtíu til Lœkjartorg 1885. Þá var líflegt í Austurstræti og við enda þess gnæfði grindin að Vinaminni, sem nú er eins og smákofi bak við Morgunblaðshöllina. Heybaggar og hestar voru jafn ómissandi hluti af bæjarlífinu og bílar og bensín er nú. (Ljósmynd: Sigfús Eymundsson, Þjóðminjasafn). 126 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.