Heimsmynd - 01.06.1987, Page 6
FRA RITS'
MSMYND
júní 1987, 3. tbl. 2. árg.
ÚTGEFANDI
Öfeigur hf. Aðalstræti 4, 101 Reykjavík
SlMI
62 20 20 og 62 20 21
AUGLÝSINGASÍMI
1 73 66
RITSTJÓRI
Herdís Þorgeirsdóttir
FULLTRÚI RITSTJÓRA
lllugi Jökulsson
STJÓRNARFORMAÐUR
Kristinn Björnsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir
AUGLÝSINGASTJÓRI
Edda Sigurðardóttir
ÚTLIT
Jón Óskar Hafsteinsson
AOSTOÐ A RITSTJÓRN
Bjarni Harðarson
Sigríður Gunnarsdóttir
Helga Guðrún Jónasdóttir
FORSlÐUMYND
Rut Hallgrímsdóttir
LJÓSMYNDARAR
Bragi Þ. Jósefsson
Jim Smart
Rut Hallgrímsdóttir
Sigurður Bragason
UMBROT
Leturval sf.
LITGREINING OG PRENTUN
Oddi hf.
ÚTGÁFUSTJÓRN
Herdís Þorgeirsdóttir
Kristinn Björnsson
Helgi Skúli Kjartansson
Sigurður Gfsli Pálmason
Jóhann Páll Valdimarsson
Ólafur Harðarson
HEIMSMYND kemur út sjö sinnum árið
1987. Verð þessa eintaks í lausasölu er
kr. 297. Sé áskrift HEIMSMYNDAR GREIDD
með EUROCARD er veittur rúmlega 40%
afsláttur af útsöluverði en annars 20%.
A löngum björtum sumarnóttum nú í júní vonum við að
HEIMSMYND svari þörfum lesenda okkar. Blaðið er óvenju
fjölbreytt að þessu sinni. Blaðamenn okkar skrifa jöfnum
höndum um líffólks á Djúpavogi og afkomu íbúa hins stríðs-
hrjáða Nicaragua. Það er Hope Millington, einn greinarhöf-
unda HEIMSMYNDAR, sem fór til Nicaragua nú fyrir skömmu
og lýsir ástandinu þar. Hún er búsett á íslandi og hefur meðal
annars skrifað greinar fyrir bandaríska stórblaðið Time.
Bjarni Harðarson blaðamaður og Bragi Þ. Jósefsson Ijós-
myndari HEIMSMYNDAR gerðu úttekt í máli og myndum á lífi
fólks í litlu plássi á Austfjörðum. Þar skilar hvert mannsbarn
þrjú til fjögur hundruð þúsundum í gjaldeyri til þjóðarskút-
unnar á ári. Og allir vinna mikið, segja þeir. Við skoðum ís-
land einnig út frá augum útlendings í þessu blaði. Það er
Sverrir Hólmarsson sem fjallar um breska skáldið W.H. Auden
sem ferðaðist um landið fyrr á þessari öld. íbók sinni um ís-
land lýsir Auden hrifningu sinni en fer ekki í launkofa með
það sem honum finnst miður.
HEIMSMYND gerir stjórnmálum skil að vanda. Leitað er
svara við spurningunni um œviráðningar embœttismanna í
grein eftir Bjarna Harðarson. Við fjöllum um þróunina t víg-
búnaðar- og afvopnunarmálum og ágreininginn innan NATO.
Guðrún Agnarsdóttir, prímus interpares hjá Kvennalistanum,
er í ítarlegu viðtali.
Björn Th. Björnsson er fyrsti menntaði listfrœðingurinn sem
Islendingar eiga. Hann gefur okkur innsýn í þann heim sem
allir hafa gott afað kynnast. Illugi Jökulsson varpar hins veg-
ar Ijósi á skuggahliðar mannlífsins í ítarlegri umfjöllun um
eina óleysta morðmálið í Islandssögu þessarar aldar.
Halldór Gíslason arkitekt fjallar um hönnun skoska arki-
tektsins C.R. Mackintosh, en stólar hans eru vinsæl skreyting
í hvítmáluðum uppa-íbúðum nú, segir Halldór. Ari Garðar
Georgsson matreiðslumeistari fjallar um kínverskan mat, sem
verður stöðugt vinsœlli á Vesturlöndum, og Einar Thoroddsen
um þýsk vín. Heiðar Jónsson varpar Ijósi á mini-tískuna og
áhrif klœðaburðar á líf og sjálfsvitund fólks eru könnuð í ann-
arri grein. Þar sem minnst var á stóla, sem uppar hrífast af,
er ekki úr vegi að athuga hvernig þeir kjósa að ala upp börnin
sín. Sálfrœðingar hræðast þá þróun sem felst í auknum kröf-
um margra nútímaforeldra til barna sinna. Við kynnumst svo
uppeldi og fjölskyldulífiþeirrar kynslóðar sem nú er að setjast
í helgan stein í hugnœmu viðtali sem Illugi Jökulsson átti við
Gígju Björnsson, ekkju Henriks Sv. Björnsson, sendiherra og
ráðuneytisstjóra. Hún lýsir lífinu í utanríkisþjónustunni og
kynnum af athyglisverðu fólki.
Ef marka má fjölbreytni þessa blaðs stendur HEIMSMYND
undir nafni en kan nski er greining Illuga Jökulssonar á kynlífi
stjórnmálamanna allt frá Marcusi Antoníusi, sem fórnaði
Rómaveldi fyrir Kleópötru, til Gary Hart, sem fórnaði valda-
mesta embœtti heims fyrir bandarískt smástirni, enn betra
dœmi. Enda sagði franski heimspekingurinn Michel Foucault
að kynlíf vœri þess virði að deyja fyrir það. HEIMSMYND fólks
er mismunandi....
6 HEIMSMYND