Heimsmynd - 01.06.1987, Side 14
BRAGI JÓSEFSSON
verið ráðandi. Við viljum njóta okkar á
eigin forsendum og leggjum áherslu á
samhjálp og samhygð. Og ef einhver ger-
ir grín að þessum fundum okkar á Vík-
inni þá bendi ég á ljónagryfjuna í hinum
flokkunum. Pað hefur vakið athygli mína
hversu stríðskennt talið um stjórnmál er
á þingi og í fjölmiðlum. Umræður um
stjórnarmyndunarviðræður eru kynferð-
islegar. Þaö er talað um þreifingar, hver
er að ná hverjum upp í til sín og Fram-
sókn er alltaf kvenkennd, oft uppi í rúmi
með Sjálfstæðisflokki á grínmyndum.
Finnst karlmönnum valdið auka kyntöfra
sína?“ spyr hún. Og bætir við að svo sé
ekki með konur, að minnsta kosti ekki
konur Kvennalistans. „Við erum ekki að
berjast fyrir frama, hvorki persónulegum
né fyrir hópinn sem slíkan. Ég hefði
hlegið að því fyrir nokkrum árum hefði
einhver sagt mér að ég ætti eftir að fara
út í pólitík og það hefði ég aldrei gert
nema með þessum hætti.“
Flennar fyrstu skref út í pólitíkina voru
í samræmi við skapgerð hennar, yfirveg-
uð, jafnvel hikandi. Hún kom aftur til
íslands árið 1981, hafði ekki upplifað
kvennafrídaginn haustið 1975 og hafði
losnað úr tengslum við þjóðfélags-
gerðina, eins og hún lýsir því sjálf.
Hún var ekki virk í kvennaframboðinu
fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982.
En það ár segir hún að samviskan hafi
ekki látið sig í friði vegna vaxandi ótta
við vígbúnaðarkapphlaupið. „Ég fór með
manninum mínum á fyrirlestur sem olli
straumhvörfum í lífi mínu. Það var sýn-
ing á myndbandsupptöku, þar sem Eva
Nordland uppeldissálfræðingur var með
viðtal við ástralskan lækni, Heien Caldi-
cott. Þær ræddu um vígbúnaðarkapp-
hlaupið út frá kvennapólitísku sjónar-
miði og það snart mig svo að ég fékk
þessa spólu lánaða. Málflutningur Helen
Caldicott truflaði mig svo að mér var
ekki vært fyrir sjálfri mér að vera lengur
aðgerðarlaus. Haustið 1982 bauð ég síð-
an hópum af fólki heim til mín í kaffi og
súkkulaðitertu og sýndi þeim þessa
spólu. Þetta leiddi oft til mjög athyglis-
verðra umræðna.“
Og smám saman varð Guðrún einnig
virkari í starfi Kvennalistans. „Eins og er
svo algengt með konur vanmat ég sjálfa
mig, eigin rödd og lífsreynslu sem fram-
lag í kvennabaráttunni. Þegar umræður
áttu sér stað um hvort konur ættu að
bjóða fram til þings vorið 1983 lenti ég í
þeim hópi sem var því fylgjandi. Við
nenntum ekki að bíða og í febrúar 1983
var einróma samþykkt á fundi á Hótel
Borg að bjóða fram. Þann 13. mars var
Kvennalistinn formlega stofnaður á fundi
á Hótel Esju. Nefnd var kosin til að setja
saman lista og það er lýsandi að flestar
konur töldu aðrar hæfari til að fara fram.
En það var aðeins rúmur mánuður í
kosningar. Það var mjög erfið ákvörðun
fyrir mig að taka 2. sæti á listanum í
Reykjavík. Ég var búin að velja mér allt
annan farveg og þótt ég fyndi til félags-
legrar ábyrgðar þýddi það ekki að ég
væri tilbúin að setjast inn á þing. Hins
vegar fann ég svo sterkt fyrir þeirri til-
finningu að þetta væri okkar vitjunar-
tími. Mér fannst strax þarna, að í þessu
litla húsi við Hallærisplanið, í þessari litlu
borg á hjara veraldar, væri eitthvað stór-
kostlegt að gerast. Þetta var sama tilfinn-
ingin og að standa við vogarstöng sem er
allt of þung en af því að staðsetning
manns er nákvæmlega rétt þarf svo lítið
til að hún hreyfist. Þannig held ég að
starf Kvennalistans hafi ekki aðeins áhrif
í íslenskri pólitík heldur og á alþjóðavett-
vangi. Og nú höfum við óafturkræfa
ábyrgð í þjóðfélaginu. Ég er sannfærð
um að óvirkjuð auðlind liggur meðal ís-
lenskra kvenna. Þessi duldi kraftur birtist
í einni mynd á kvennafrídeginum 1975 og
svo aftur tíu árum síðar. Konan hefur
mikla lífsorku og reynslu af því að vernda
lífið í sinni brothættustu mynd. Eins og
dönsk skáldkona, Charlotte Strandgárd,
sagði þá er manneskjunni ekki borgið
fyrr en nýju mæðraveldi er komið á, þar
sem allir rækta með sér hæfileikann til að
hlúa að öðrum, sem hingað til hefur aðal-
lega verið hlutverk kvenna.“
Eitt sinn, inni á skrifstofu Guðrúnar á
Skólabrú, bendir hún á innrammaða
mynd með þremur fígúrum sem virðast
límdar saman og hanga á línu. „Þessi
mynd minnir mig á okkur þrjár, mig,
Sigríði Dúnu og Kristínu Halldórsdóttur,
á þingi. Við þurftum að feta ókannaða
slóð þar sem enginn gat sagt okkur til.
Við vorum byrjendur í allra augsýn og
þurftum þrjár að standa undir heilum
þingflokki. Ég skynjaði fljótt þá hættu
sem við vorum í, hættuna á samtryggingu
og hættuna á að verða skilvirkir þrælar
kerfisins. Á DV- fundi í Háskólabíói
fyrir kosningarnar 1983 biðu frambjóð-
endur niðri í gryfju áður en þeir fóru upp
á svið. Þá tók ég eftir því að áður en
ljónunum var att saman fyrir framan
áhorfendur ríkti viss samhugur meðal
frambjóðenda. Sá sem ætlar að breyta
kerfinu verður að vera vakandi fyrir
þeim hættum sem fylgja samtrygging-
unni. Stundum finnst mér þessir aðilar
meiri andstæðingar í skilgreiningu fjöl-
miðla en þeir séu það í raun. En kerfið
hefur þúsund leiðir til að breyta fólki. “
Hún segir viðhorf annarra þingmanna í
garð Kvennalistakvenna hafa verið vin-
samleg í byrjun. „Alla vega á yfirborð-
inu. „Þeir voru forvitnir, ekki neikvæðir,
en það breyttist þegar leið á kjörtíma-
bilið. Þeir fóru að skynja okkur sem ógn
og þetta fundum við líka frá þingkonum
annarra flokka í síðustu kosningabaráttu.
Við höfðum á okkar hátt styrkt þær í
sessi en ógnuðum þeim um leið.“
Margir hafa lýst yfir efasemdum um
virkni grasrótarinnar hjá Kvennalistan-
um og benda á að þó samstöðu-aðferðin
dugi þeim í kosningabaráttu og við störf
á þingi sé hæpið að hún dugi í stjórnar-
myndunarviðræðum, hvað þá ríkis-
stjórn? Hún talar um muninn á valddreif-
ingunni hjá Kvennalistakonum og öðrum
stjórnmálaflokkum. „Mér fannst áber-
andi hvernig konum var til dæmis att
saman í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins,“
segir hún. „Sjálf kem ég úr fagi, læknis-
fræðinni, sem er mjög píramídalagað
valdakerfi. Því hefur það verið þroskandi
að starfa á vettvangi Kvennalistans. Þótt
okkar aðferð að ná samstöðu með gras-
rótinni sé tímafrek tel ég að hún sé lýð-
ræðislegri en öll þessi stjórnarapparöt
hjá gömlu flokkunum.“ Annar frambjóð-
andi Kvennalistans kemst svo að orði að
grasrótin hafi virkað mun betur en nokk-
ur þeirra hafi þorað að vona. „En við
14 HEIMSMYND