Heimsmynd - 01.06.1987, Blaðsíða 16
erum í svo góðri uppsveiflu núna að sam-
staðan eflist,“ segir sú.
Guðrún er þeirrar skoðunar að sigur
Kvennalistans og þá hlutfallslegt tap ann-
arra flokka sé afleiðing þess að þeir hafi
ekki hlýtt kalli tímans. „Kjósendur
skynjuðu kannski ákveðinn ferskleika
hjá Kvennalistanum. Fólk vill að kjör
þeirra lægst launuðu, kjör kvenna, séu
bætt. Ég held að sumir flokkanna hefðu
getað komið í veg fyrir þetta afhroð
hefðu þeir gegnt kalli tímans. í stað þess
eru þeir eins og risaeðlur í sandi og allir
vita hvernig fór fyrir þeim. Það er svo-
lítið kaldhæðið að nafnið Heimdallur í
norrænni goðafræði var nafn útvarðar
guðanna sem hlustaði á grasið gróa. Út-
verðir flestra íslenskra stjórnmálaflokka
virðast orðnir ansi heyrnardaufir. Foryst-
an er í fílabeinsturni án nokkurs jarðsam-
bands. Þessir flokkar hafa ekki hlustað
nægilega vel á raddir fólksins og af því
stafar fylgistap þeirra. Auðvitað eru aðr-
ar ástæður innan hvers flokks einnig að
verki. En enginn flokkur getur slegið
eign sinni á fólk eins og landnámsmenn á
land forðum. Stór hluti kjósenda er
óánægður og auk þess er komin heil ný
kynslóð til sögunnar með breytt gildis-
mat og mennskari viðhorf, þar sem þarfir
manneskjunnar eru í miðdepli. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum treystir fólk
lögregluþjónum betur en stjórnmála-
mönnum. Það var algengt viðkvæði úti á
landi í síðustu kosningabaráttu að fólk
segði um stjórnmálamenn, að það væri
sami rassinn undir þeim öllum.“
Hún segir Kvennalistakonur ganga
með opnum huga í stjórnarmyndunarvið-
ræður. „En ég er sannfærð um að við
tökum á málum á mannúðlegri hátt en
hinir.“ Ef Kvennalistinn fer í stjórn og
Guðrún í ráðherrastól telur hún ekki
skynsamlegt að hætta nýju starfi eftir tvö
ár. „Það yrði óskynsamlegt í ráðherra-
stöðu. En við erum mjög varkárar og
sýnum fyllstu gætni í þessum viðræðum,“
segir hún. Fáir efast um að einlægni fylgi
hugsjónum þeirra. Markmiðin eru skýr
en margir setja spurningu við stefnumál
þeirra. „Það er erfitt að vita hvar okkar
málstað er best borgið. Það er sama hvað
við gerum, við verðum alltaf gagnrýndar.
En það sem við gerum nú kemur til með
að hafa áhrif á kvennabaráttu næstu ára-
tugina. Því er ábyrgð okkar mikil.“
Margar Kvennalistakonur hafa lýst því
yfir að þær ættu meira sameiginlegt með
svokölluðum félagshyggjuflokkum og
Guðrún tekur undir það. „En það eru til
staðar flokkar sem þykjast sammála
mörgum stefnumálum Kvennalistans en
þora þeir að taka þátt í þeirri byltingu
sem við viljum?“
Við hittumst á þeim tíma þegar stjórn-
armyndunarviðræður eru að hefjast við
Sjálfstæðisflokk og við ræðum þau skil-
yrði sem Kvennalistinn mun leggja til
grundvallar. Um ráðherraembætti segir
hún sem minnst. Hvort vill Kvennalistinn
vera undir forsæti Alþýðuflokks eða
Sjálfstæðisflokks? „Hví ekki einhvers
annars?“ spyr hún á móti og á við þær
sjálfar.
„Ef af stjórnarsamstarfi verður mun-
um við gera skriflegan samning með
þeim skilyrðum sem við semjum um og
tímasetningum líka.“ Um Sjálfstæðis-
flokkinn segir hún: „Á þingi greiddum
við oft atkvæði með stjórnarflokkunum
líka. Það fór eftir málefnum. Frjáls-
hyggjustefnan innan Sjálfstæðisflokksins
gengur hins vegar þvert á stefnu Kvenna-
listans, þar sem frumskógarlögmál sam-
keppninnar ýtir félagslegri velferð til
hliðar. Fólk hefur misjafna hæfileika til
að taka þátt í samkeppninni.“
Hún útilokar spurninguna um vinstri
og hægri. „Það er úrelt skilgreining. Við
ENGINN VENJULEGUR
LJOSALAMPI
SILVER PROFESSIONAL
SATELLIT
□
□
Sérhannaöur tyrir speglaperur
sem skila betri árangri
2 andlitsljós með Silver
Færri tímar - tyrr brún
Sunna er lítil og notaleg sólbaðsstofa í
miðborg Reykjavíkur. En bekkirnir okkar
eru ekki litlir. Silver solarium sólbekkir eru
án efa bestu bekkirnir á markaðnum með
speglaperum og tveimur andlitsljósum.
Færri tímar fyrr brún. Verið velkomin við
munum taka vel á móti ykkur.
-SUWW/1
Sólbaöstofa
Laufósvegi 17,
sími 25280
Opiö
virka daga: 10.00—22.00
Laugardaga: 10.00—20.00
Sunnudaga: 13.00—19.00
16 HEIMSMYND