Heimsmynd - 01.06.1987, Page 19

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 19
viljum blandað hagkerfi og við viljum tryggja þá velferð sem okkur þykir sæmi- leg. Það er hættuleg skammsýni sem leiðir af sér stóra láglaunastétt, sem gerir það að verkum stór hópur í þjóðfélaginu hefur ekki tíma til að vera með börnum sínum og er úrvinda af þreytu á kvöldin. Það er hættulegt þessu þjóðfélagi ef fjórða hver fjölskylda er undir fátækra- mörkum og það getur orðið þjóðinni dýr- keypt þegar til langs tíma er litið. Nú er sorglega mikill fjárlagahalli miðað við góðærið undanfarin þrjú ár. Þessi fjár- lagahalli verður ekki jafnaður á skömmum tíma. En við viljum leiðrétta hann um leið og við viljum stoppa í götin á buddum láglaunafólks. Þeim lægst launuðu hefur verið sagt að bíða of lengi. Við viljum ekki bíða. Við viljum færa til fé, laga skattakerfið, ekki einungis með því að auka skattstofna heldur með því að lagfæra innheimtukerfið. Það eru kostir og gallar við bæði virðisaukaskatt og söluskatt en við aðhyllumst síðar- nefnda kerfið. Við viljum endurbæta skattaeftirlit og viljum að þau fyrirtæki sem eru aflögufær greiði hærri skatta. Onnur leið til að afla fjár til félagslegra aðgerða er hagræðing í ríkisrekstri. Eitt dæmi um eyðsluna þar er risnu- og ferða- kostnaður sem er um 400 milljónir og við viljum breyta forgangsröð verkefna ríkis- ins. Við erum á móti stóriðju og viljum endurskoða sjóðakerfið, sérstaklega í landbúnaðinum. Þessi samningur, sem var gerður á vegum landbúnaðarráð- herra í skyndi fyrir síðustu kosningar, mun reynast næstu ríkisstjórn mjög erfið- ur, þótt hann hafi verið bændum ákveðið réttlætismál. Við viljum endurskoða kvótakerfið með tilliti til byggðasjónar- miða og teljum nauðsynlegt að finna leiðir til að aðlaga atvinnuhætti okkar kröfum markaðarins." Eitt meginskilyrði Kvennalistans fyrir stjórnarþátttöku er að hækka laun hinna lægst launuðu, „án þess að öll röðin komi á eftir og við viljum bæta hag ellilífeyris- þega og öryrkja. Við viljum einnig heildarlöggjöf um umhverfismál". „Við erum ekki tilbúnar til málamiðl- ana í meginkröfum okkar. Við setjum fram ákveðnar kröfur um dagvistunar- mál, þar sem ríkið hefur ekki staðið við skuldbindingar sínar. En við teljum flest- ar okkar meginkröfur mjög raunsæjar.“ Um utanríkismálin, hugsanlega stærsta fleyginn í samstarfi Kvennalista við Sjálf- stæðis- og Alþýðuflokk, segir hún. „Við viljum ekkert framhald á hernaðarfram- kvæmdum hér á landi eins og til dæmis byggingu varaflugvallar fyrir bandarískt fé. Við viljum að fslendingar standi við samninga um þróunaraðstoð og styðjum hugmyndina um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Fólk vill ekki kjarnorku- vopn. Skoðanakannanir hafa sýnt það en ráðamenn taka ákvarðanir þvert gegn vilja fólksins. Það eru ekki vopnin sem eru meginmálið heldur hugsunin að baki vígbúnaðarkapphlaupinu og það er sú hugsun sem við viljum breyta. Þetta er eins og í ævintýrinu um nýju fötin keisar- ans. Allir sáu að hann var á nærklæðun- um en aðeins barnið þorði að benda á það.“ í þessu ferli og stjórnmálum almennt segir hún að mikilvægast sé að treysta fólki. Helgi eiginmaður hennar segir: „Hún á gott með að umgangast fólk og er mjög næm á fólk. Hún myndar sér til- finningu út frá innsæi sínu um hvort óhætt sé að treysta fólki.“ Hann segir enn fremur að hún sé ekki í mikilli hættu að verða prímadonna. Völd stígi henni ekki til höfuðs. „Fyrir hið fyrsta útiloka „Við erum ekki að berjast fyrir frama, hvorki per- sónulegum né fyrir hópinn sem slíkan. starfsreglur Kvennalistans prímadonnur og í öðru lagi er náttúran svo stór þáttur í lífi Guðrúnar og persónuleg samskipti utan stjórnmála.“ Þó hafa verið uppi raddir um ágreining innan Kvennalistans, jafnvel afbrýðisemi í garð þeirra kvenna sem mest hafa verið í sviðsljósinu. Einhverjir segja Sigríði Dúnu hafa yfirgefið þingið með trega og benda á að Guðrún sé í hættu vegna afbrýðisemi sumra flokkssystra sinna. Guðrún þvertekur fyrir þetta en segir hins vegar að Kvennalistakonur forðist að líta á einhverja eina konu sem eitt- hvert hjálpræði. Þó eru innan samtak- anna konur sem bera sérstakt traust til hennar. Ein þeirra segir: „Við vorum heppnar með allar þingkonurnar þrjár á síðasta kjörtímabili. Þær voru allar vinnuþjarkar. Guðrúnu þekkti ég minnst þá og hafði líka minnstan áhuga á að kynnast henni. Ég hélt að hún væri húmorlaus og tæki sjálfa sig afar hátíð- lega. Hún er hins vegar sú þeirra þriggja sem hefur þennan hárfína húmor og kann að gefa eftir á réttum augnablikum, hún blikkar til manns þegar aðrar eru komnar í þá stöðu að taka sig of hátíð- lega. Allt þetta kom mér á óvart þegar ég kynntist henni betur og fyrir vikið hef ég sett Guðrúnu stalli ofar.“ Þessi kvenna- listakona bætti við að kannski væri Guð- rún þrátt fyrir allt persónugervingur hins góða, Florence Nightingale stjórnmál- anna. Þegar ég hitti Guðrúnu í síðasta sinn er hún farin að treysta mér nægilega til að vera ofurlítið persónuleg. Eiginmaður hennar segir hana hafa mikinn persónu- styrk. Sjálf segir hún: „Ég finn stöðugt fyrir eigin breyskleika. Ég finn bæði fyrir styrk mínum og vanmáttarkennd. Ég verð oft mjög kvíðin, kófsvitna í lófum og fæ magaverki. Minn megingalli er skortur á umburðarlyndi. Ég er gagn- Við kjörkassann ásamt eiginmanni sínum, Helga Valdimarssyni lækni. rýnin á sjálfa mig en stundum of gagn- rýnin á aðra. Það tekur langan tíma að öðlast þann skilning á lífi og tilveru að allt er afstætt, meira að segja sann- leikurinn.“ Hún tekur eyrnalokk úr öðru eyranu og strýkur mjúklega. „Það var kvenna- listakona fyrir vestan sem gaf mér hann,“ segir hún. „Ég hef aldrei verið með göt í eyrunum, því ég vil ekki gera göt á lík- ama minn,“ segir hún. „En þessi eyrna- lokkur er smíðaður úr steini undan Jökli. Honum á að fylgja kraftur," brosir hún. Hún er með eyrnalokkinn á vinstra eyra. Þegar líður á kvöldið tek ég eftir því að hann er kominn yfir á snepil hægra eyra. Hún hefur lengst af forðast að ræða nokkurn þeirra aðila sem hún á í við- ræðum við persónulega. Þó hún segi að sumir séu áfjáðari en aðrir í að mynda stjórn og talar einu sinni um litla bróður Machiavellis og geti hver sem vill. „And- inn í þessu nú er að finna samhljóma atriði og það ætti að vera leiðarljós manna í pólitík." Guðrún Agnarsdóttir er læknir í stjórnmálum. HEIMSMYND 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.