Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 24

Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 24
Steingrímur Hermannsson. Andstaða við afnám æviráðninga kom helst frá embættismönnum og fyrir þeirra þrýsting voru gerðar breytingar á frumvarpi til laga um Stjórnarráðið. Frumvarpið dagaði uppi. Ragnar Arnalds: Flutti frumvarp um afnám ævi- ráðninga hjá opinberum stofnunum en það dag- aði uppi. Sverrir Hermannsson: Vék tveimur opinberum starfsmönnum úr starfi á kjörtímabilinu og úr varð hinn mesti hávaði. Það sama yrði þó svo að ástæðan væri ekki óhlýðni eins og Sverrir taldi að hefði verið áferðinni, heldur einföld, hrein og klár leti starfsmannsins... að nein brottvikning embættismanna geti gengið hávaðalaust fyrir sig. Stjórnmálamenn sem HEIMSMYND ræddi við töldu að þessu væri eins varið með ráðuneytismenn. Peim verður hvorki vikið úr starfi né færðir til. „Sú leið sem hefur verið farin er að ráðuneyt- isstjórar, sem ekki hefur verið hægt að vinna með, hafa verið gerðir óvirkir með virkni aðstoðarmanns ráðherra," sagði einn stjórnmálamanna sem HEIMS- MYND ræddi við. Annar benti á dæmi úr stofnanageiranum þar sem nafni stofn- unar var breytt og skipulagi um leið, til þess að geta sagt forstöðumanninum há- vaðalaust upp og ráðið nýjan í staðinn. STJÓRNSYSLAN... En er yfirleitt æskilegt að stjórnmála- menn reki embættismenn úr störfum að vild. Þarf ekki vissan stöðugleika og festu í stjórnkerfinu og stofnunum þess, eins og minnst var á að hefði haldið Frakk- landi gangandi á árunum fyrst eftir stríð? Eins og vikið er að hér að aftan undir fyrirsögninni Hverjir eru œviráðnir var á síðasta kjörtímabili sett saman frumvarp til nýrra laga um Stjórnarráðið. Þá urðu margir til að gagnrýna þá hugmynd sem þar kemur fram að ráða menn aðeins til sex ára í senn og sagt að með því myndi mikilvæg þekking tapast. Helga Jóns- dóttir aðstoðarmaður forsætisráðherra, sem ásamt fleirum vann að frumvarps- gerðinni, kvaðst telja að störf í ráðuneyt- um væru ekki þess eðlis að þar þyrfti að hafa áhyggjur af faglegri þekkingu. Störf í ráðuneytum sagði Helga að ættu að vera stjórnunarstörf en sérfræðiþekking- una sæktu menn í stofnanir. Stjórnsýslan þyrfti að vera kerfi sem opnaði ýmis mál og virkaði hvetjandi. Þar skipti því miklu að menn væru ferskir í hugsun en séu menn lengi við það sama er hætta á að þeir aðlagist misfellunum og hætti að sjá hvað má fara betur. „Okkur var aftur á móti bent á að með þessu færu þekking og festa og jafnvel í einstökum tilfellum myndi starfsemi lam- ast ef einstakur maður færi. Það síð- astnefnda sýnir einmitt að það er galli í þessu kerfi sem við búum við,“ sagði Helga Jónsdóttir. ...OG HÁSKÓLINN En eiga æviráðningar þá frekar við þar sem sitja sérfræðingar heldur en í stjórn- unarstörfum. Stærsta stofnun fræðinga er væntanlega Háskólinn og þar eru pró- fessorar og lektorar nær undantekningar- laust æviráðnir. Þar sitja menn aftur á móti frekar stutt í stjórnunarstöðum eins og fyrr er vikið að. Þar er núna verið að koma á svokölluðu framgangskerfi, sem á að vinna gegn ókostum æviráðninga. Prófessorum og öðrum verður þá umb- unað í launum fyrir góð afköst. Sigmund- ur Guðbjarnason háskólarektor telur ekki vera kjaralegar forsendur fyrir því að afnema æviráðningar: „Ég tel að það sé ekki hægt að afnema æviráðningar, þá myndu menn ekki sætta sig við þau kjör sem eru í boði. Aftur á móti held ég að það fari aldrei vel á því að æviráða í stjórnunarstöður; það er eðlismunur þar á hvort maður er ævi- ráðinn til vísindastarfa eða kennslu ann- arsvegar eða stjórnunar hinsvegar. Það ríður mikið á framkvæmdastjórn og það getur engin stofnun þolað að þar verði alger stöðnun." Gunnar Karlsson prófessor í heim- spekideild sagðist í samtali við HEIMS- MYND vera því hlynntur að æviráðning- ar yrðu afnumdar, en á því væru þó ýmsir annmarkar. Til þess yrði sú breyting að ganga yfir stærra svið en bara háskóla- menn, þar sem talsverður samgangur er milli hinna einstöku atvinnugeira hins opinbera. Ef æviráðningar væru ekki á einhverjum stað er hætt við að menn sæktu þaðan yfir í þær stöður þar sem meira öryggi er. Þannig væri núna búið að úthluta nokkrum nýjum tímabundn- um lektorsstöðum við háskólann. Þeir sem sækja um þær eru ráðnir til þriggja ára, en eftir það getur það eins gerst að staðan verði lögð niður. Ef það losnar föst staða á þessu þriggja ára tímabili er líklegt að sá sem situr lausu stöðuna sæki um að komast í þá föstu þó tími hinnar sé ekki útrunninn. Lausa staðan gæti þann- ig orðið varaskeifa þeirra sem bíða eftir álitlegra brauði. Gunnar sagði ennfrem- ur: „Ef allir væru ráðnir tímabundið hver ætti þá að taka ákvörðun um að endur- ráða? Þetta gæti orðið erfiðara hér en víða annars staðar þar sem yfirleitt yrðu vandfundnir menn til að leggja faglegt mat á starf hskólakennara aðrir en vinnu- félagar þess sama manns. Það er bara á örfáum sviðum sem við höfum aðgang að sérfræðingum utan háskólans sem gætu metið störf háskólamanna. Ég hef aldrei séð eða heyrt menn svara þessum erfiðu spurningum varðandi afnám æviráðn- inga.“ 24 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.