Heimsmynd - 01.06.1987, Page 36

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 36
KomitilátakaverðurEvrópaaðöllum líkindum vígvöllurinn — hvaða vopnum sem verður beitt. Hópur friðarsinna á torgi í Frankfurt nýlega. ráða yfir kjarnorkuvopnum en í tilfelli Breta skipti það þó ekki sköpum sökum traustra tengsla, hins vegar ríkti tor- tryggni í garð Frakka sem þóttu líklegir til að reka fleyg í samskiptin milli Vestur- Evrópuríkja annars vegar og Bandaríkj- anna hins vegar. Pá ríkti einnig ótti um að kjarnorkuuppbygging Frakka myndi hvetja Vestur-Þjóðverja til að fara út í sama kapphlaupið þegar fram liðu stund- ir. En fátt fannst aðildarríkjum NATO eins ógnvekjandi upp úr 1960 og vestur- þýskur kjarnorkuherafli og það sama hefur Kremlverjum líka þótt. Hegar varnarmál ber á góma gæt- ir þess oft hér á íslandi að rætt er um NATO sem órofa heild samhuga ríkja. En því fer fjarri. Eiginlega hefur innbyrðis ágreinings og tortryggni gætt innan bandalagsins frá upphafi. Um leið og bandarísk stjórn- völd voru því mótfallin að iðnríki Vestur- Evrópu kæmu sér upp eigin kjarnorku- vopnum gerðu þau sér samhliða grein fyrir því að nauðsynlegt væri að eyða öllum efasemdum um trúverðugleika Bandaríkjanna í kjarnorkuvörnum ef til átaka kæmi. Ef efinn um trúverðugleika Bandaríkjanna næði yfirhöndinni var ljóst að æ fleiri ríki myndu leitast við að koma sér upp eigin kjarnorkuvörnum. Hernaðarstefnan um sveigjanleg við- brögð eða flexible response er því grund- völlur þeirrar viðleitni að viðhalda trú- verðugleika svörunar við sovéskri árás. Þegar Vestur-Evrópuríki standa frammi fyrir því á næstu vikum og mán- uðum að bandarísk stjórnvöld eru enn að ráðskast með varnir þeirra eiga umræð- urnar um hlutverk þessara vopna í hern- aðarstefnunni eftir að aukast. Hversu trúverðug verður stefnan eftir að meðal- drægu eldflaugarnar eru fjarlægðar? Margir eru þeirrar skoðunar að slík ákvörðun breyti litlu? Enn séu til staðar þúsundir kjarnaodda í Evrópu og á sama hátt og Shultz utanríkisráðherra Banda- ríkjanna segja margir Evrópabúar að nauðsynlegt sé að trúa því að Gorbachev leiðtoga Sovétríkjanna sé alvara, sem og Reagan Bandaríkjaforseta, að stíga öll þau nauðsynlegu skref sem í framtíðinni munu leiða til raunverulegrar afvopn- unar. inn helsti sérfræðingur Banda- ríkjanna á sviði þessara mála og fyrrum ráðgjafi Kennedys Bandaríkjaforseta, McGeorge Bundy, segir að ákvörðun NATO- ráðherranna 1979 um staðsetningu hinna umdeildu meðaldrægu eldflauga í Evr- ópu hafi fyrst og fremst verið gerð í friðþægingarskyni við evrópsk sjónar- mið. Hernaðarlegt gildi þessara eld- flauga hafi ekki skipt máli, því það kæmi út á eitt ef til árásar kæmi hvort banda- rísk stjórnvöld svöruðu með því að skjóta langdrægum eldflaugum frá heimalandi sínu eða meðaldrægum eld- flaugum frá Vestur-Evrópu, því sovésk stjórnvöld myndu ekki gera greinarmun þar á. Af þessu má ráða að taugatitringurinn sé helst ríkjandi í Evrópu, þótt flestir munu þegar til lengri tíma er litið kjósa að trúa því að leiðtogum stórveldanna sé alvara í þeirri viðleitni að stuðla að kjarn- orkuvopnalausum heimi. Ýmsir eru þeirrar skoðunar að heimur án kjarnorkuvopna skapi jarðveg fyrir hefðbundin stríð í auknari mæli. Aðrir segja hreint út að heimur án kjarnorku- vopna sé útópía. Hins vegar höfðu fyrstu kjarnorku- sprengjurnar vart litið dagsins ljós er menn fóru að tala um að fjarlægja þær aftur. Þó meðvitaðir um það að þekking sem eitt sinn er til staðar verður ekki aftur tekin. Þetta er sú þversögn sem við höfum búið við alla tíð síðan J.Robert Oppenheimer gerði þennan heim að veruleika með uppfinningu sinni. Reagan Bandaríkjaforseti er þekktur sem haukur í afstöðu sinni til hermála með tilvísun til dúfu hins vegar og þá átt við friðsamlegri afstöðu. Engu að síður lýsti Reagan því yfir þegar hann kynnti stjörnustríðsáætlunina svonefndu að draumurinn væri að gera kjarnorkuvopn getulaus. Hann treysti ekki á mannlegt eðli eða friðsamlega afstöðu í því sam- bandi heldur hátækni sem myndað gæti varnarskjöld úti í geimnum. En það er einmitt þessi stjörnustríðs- áætlun Bandaríkjaforseta sem er líkleg- asta orsökin fyrir vilja Sovétstjórnar til að gera alvöru úr viðræðum milli stór- veldanna. Að mati margra sérfræðinga er Gorbachev leiðtogi Sovétríkjanna maður sem sér hlutina í stærra samhengi en svo að hann nenni að eyða orku og tíma í að tvístíga yfir smáatriðum. En traust í garð Kreml verður ekki til á einum degi. Né verður heimurinn kjarnorkuvopnalaus á skömmum tíma. Megintilgangur kjarnorkuvopna er að þeim verði aldrei beitt og til að gegna því hlutverki er mikilvægasti eiginleiki þeirra hæfileikinn til að endurgjalda árás. Þetta er ein meginástæða vígbúnaðarkapp- hlaupsins. Fullkomin vopn kalla á enn fullkomnari vopn andstæðingsins. Það er hins vegar almenn skoðun manna um allan heim að því færri sem kjarnorkuvopnin séu því öruggara sé um- hverfi okkar. En margir spyrja þess hvort samningar um kjarnorkuvopn komi í veg fyrir stríð. Flestir sérfræðingar eru þeirrar skoðunar að fyrsta skrefið sé að semja um árásarvopn. Sú forsenda er lögð til grundvallar að þótt stórveldin semji og semji, fækki og fækki, þá verði þekkingin enn til staðar og önnur ríki og 36 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.