Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 53

Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 53
eftir Pétur Gunnarsson Tímanna tákn Tímaritin voru fjölmiðill nítjándu aldar. Og frægasta tímarit íslendinga á nítjándu öld er Fjölnir. í upphafsgrein fyrsta heftis sem út kom árið 1835 er meðal annars vikið að hlutverki tímarit- anna: „Þau eru rödd tímans, en tíminn er aldur mannkynsins, og þeir sem ekki ’vlgja honum verða á eftir í framförun- | úm. Allir lesa þau sem vilja kynna sér ’ tímann sem líður og veröldina sem er; því í þeim er á fáum dögum það sem við þar í Vesturálfunni komið hingað í Norðurálfu, og þaðan til Austurálfunnar endimarka ... Þjóðirnar þurfa líka að kynna sér hver annarra framfarir og yfir- burði til að geta fært sér í nyt það sem aðrir hafa fundið og umbætt í sínum högum. En þetta gætu þær með engu móti án aðstoðar tímaritanna, ekki einu- sinni þar sem löndin liggja áföst, hvað þá þær þjóðir sem liggja afskekktar á hnett- inum og eiga lítið samneyti við önnur lönd ..." Til marks um áhrifavald tímarita er nærtækast að taka Fjölni sjálfan, en hann er talinn marka tímamót á íslandi: „Fjölnir gerir meira en boða nýja tíma: með honum hefjast nýir tímar á íslandi, endurvakning þjóðarinnar,“ skrifar Kristinn E. Andrésson í bókmenntasögu sinni. En í raun og veru var Fjölni tekið af miklu tómlæti hjá hinni útvöldu þjóð. Upplagið mun hafa verið þrjú til fimm hundruð eintök sem iðulega rigndi niður | á hafnarbakkanum í Flöfn, eða fúkkuðu í g einhverri skemmunni í Reykjavík. Og g undirtektir landsmanna voru heldur dræmar. Til marks um það er boðsbréf sem Fjölnismennirnir Jónas, Konráð og Brynjólfur sendu frá Kaupmannahöfn til íslenskra presta að láta liggja frammi í kirkjum landsins til áskriftar. Eintak af einu slíku hefur varðveist og á það hefur enginn ritað nafnið sitt en sóknarprestur- inn krotað eftirfarandi klausu: „Upplesið við Staðarbakka- og Efra Núps-kyrkjur: enn feck nejtandi Svar hjá sérhverjum." En ef þetta er dæmigert um móttökur landsmanna, hvernig má þá vera að Fjölnir hafi haft þau afgerandi áhrif sem allir eru sammála um að eigna honum. Hugsanlega liggur það í eðli tímaritanna, að þau eru ekki eins og útsendingin sem er fyrir bí um leið og hún líður - heldur velkist tímaritið milli manna, skríður upp í hillur eða ratar ofan í koffort, menn blaða í því, lesa jafnvel stubb, ár líða og jafnvel aldir en prentað mál getur haldið HEIMSMYND 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.