Heimsmynd - 01.06.1987, Page 56

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 56
Leigubílstjóramorðið við Laugalæk í janúar 1968 er á margan hátt mjög merkilegt í íslenskri réttarsögu. Það telst vera eina óupplýsta morðmálið á íslandi, að minnsta kosti á seinni tímum, og er jafnframt eina málið sem endað hefur með sýknudómi fyrir Hæstarétti. Maður nokkur var nefnilega dreginn fyrir dóm og sakaður um að hafa myrt Gunnar Sigurð en hann hélt staðfastlega fram sakleysi sínu og hafði að lokum sigur. Hér verður þetta mál rifjað upp og skal skýrt tekið fram að eingöngu er byggt á opinberum gögnum, einkum dómsforsendum Hæstaréttar. Á stöku stað er vitnað til samtala eða yfirlýsinga ZZ\//s talaöi rannsókn- arlögreglan viö 228 menn og konur sem unn- iö höföu meö hinum ákœröa á ýmsum tímum og enginn kannaöist viö aö hann og hinn myrti heföu þekkst eöa átt nokkur samskipti sín á milli. ýmissa aðila og er það alltaf tekið stafrétt upp úr Hæstaréttardómum. Flestöllum nöfnum þeirra sem við sögu koma hefur verið breytt, nema löggæslumanna, og gildir þá einu hver tengsl viðkomandi við málið voru. Nöfnin sem notuð eru í greininni eru valin af algeru handahófi og svipar því ekkert til raunverulegra nafna. Um klukkan sjö að morgni fimmtudagsins 18. janúar 1968 lagði maður einn af stað frá heimili sínu við Laugarnesveg í Reykjavík og hugðist, eins og vanalega, aka syni sínum í vinn- una áður en hann héldi sjálfur til starfa. Sonurinn var þá læknanemi á síðasta ári og starfaði í Borgarspítalanum en bjó við Austurbrún. Maðurinn ók því sem endranær austur og suður Laugalæk og miðja vegu milli Bugðulækjar og Sund- laugavegar sá hann hvar leigubíll stóð við gangstéttina, skáhallt út á götu. Vélin virtist vera í gangi og stöðuljósin voru kveikt. Enda þótt rigning væri og slag- veður sá maðurinn greinilega, um leið og hann ók framhjá, að bflstjórinn sat í sæti sínu, hallaði höfðinu aftur á bak og virtist hreyfingarlaus. Honum datt undireins í hug að eitthvað hefði komið fyrir en hélt eigi að síður áfram ferð sinni upp að Austurbrún þar sem sonurinn beið tilbú- inn. Þcir feðgar ákváðu síðan að kanna málið nánar, ef bifreiðin væri enn á sama stað. Svo reyndist vera og öll ummerki voru sem áður. Læknaneminn ungi fór því út í rigninguna, gekk að Benzinum og bankaði í framrúðuna bílstjóramegin. Maðurinn við stýrið hreyfði sig ekki. Eft- ir svolítið hik opnaði þá læknaneminn bflinn og leit inn. Það lá blóðtaumur úr munnviki bflstjórans og ekki þurfti mikla kunnáttu í læknisfræði til að átta sig á því að maðurinn væri látinn. Til þess að fullvissa sig um það greip læknaneminn úlnlið mannsins og fann engan púlsslátt; þvert á móti var auðfundið að líkið var þegar farið að kólna. Læknanemínn gætti sín þá á því að hreyfa ekki við neinu frekar, lokaði bílhurðinni og flýtti sér yfir í bifreið föður síns. Feðgarnir keyrðu síðan sem leið lá á heimili föðurins og hringdu þaðan á lögregluna. Þannig hófst þetta dularfyllsta sakamál á íslandi á síð- ari tímum. Lögreglan var komin á staðinn þegar klukkan var um það bil tuttugu mínútur gengin í átta. Feðgarnir höfðu aftur ekið að Benzinum og lýstu nú málavöxtum nánar fyrir lögreglumönnunum þremur sem fyrstir mættu á vettvang. í fyrstu var haldið að leigubflstjórinn hefði fengið hjartaáfall eða eitthvað ámóta, enda var hann svo gildvaxinn að sú tilgáta virtist ekki fráleit. Þegar einn lögregluþjónanna ætlaði hins vegar að reisa við höfuð hins látna kom annað í ljós. Aftan á höfðinu var sár sem lögreglumennirnir sáu strax að líktist skotsári og kringum það hringur sem þeir ályktuðu að væri púður úr byssuhlaupi. Þegar einn þeirra kom svo auga á notaða patrónu á gólfinu við hægra framsætið þurfti vart lengur vitn- anna við. Maðurinn hafði verið myrtur. Allt tiltækt lögreglulið var þegar í stað kallað út og tæknideildin sömuleiðis. Leitað var hátt og lágt í nágrenninu að vísbendingum um ferðir morðingjans og Benzinn var dreginn á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla þar eð rign- ingin var svo mikil að ekki var talið ger- legt að rannsaka hana á morðstaðnum. En leitin á Laugalæk og þar um kring skilaði engum árangri og rannsóknin á bflnum sorglega litlum. Á hægra fram- sætinu lá bók á grúfu; Tiger by the Tail hét hún, ensk pappírskilja og opin á blað- síðum 35 til 37. Lengra hafði bflstjórinn ekki komist. í öskubökkum, bæði frammi í og aftur í, voru sígarettu- og vindlastubbar af ýmsum gerðum eins og eðlilegt mátti heita meðan reykingar voru enn leyfðar í leigubflum og ekki tókst að tengja neinn þeirra við ódæðið. Þá fannst svolítið ofið merki á gólfinu við aftursætið sem á stóð „8112“ og reyndist vera af hanskategund sem eingöngu var seld í Herradeild PÓ. í ljós kom að bíl- stjórinn hafði ekki átt neina slíka hanska en ekki tókst heldur að bendla þetta litla merki við morðið. Að sjálfsögðu var svo leitað hátt og lágt að fingraförum í bíln- um en þar eð hann var meira og minna klæddur leðri, sem fingraför tolla illa við, skilaði sú leit heldur ekki marktækum árangri. Einu nothæfu fingraförin reyndust vera eftir bflstjórann sjálfan. Við krufningu á líki bílstjórans kom á daginn, eins og augljóst mátti vera, að hann hafði látist samstundis eftir byssu- skot í hnakkann. Hann hafði verið skotinn af manni í aftursætinu og ekkert benti til þess að til neins konar átaka hefði komið áður en skotið reið af. Byssuskotið, sem fannst í höfði hans, og patrónan tóma við hægra framsætið voru því í rauninni það eina sem lögreglan hafði við að styðjast í upphafi rann- sóknarinnar, en það var líka allnokkuð eins og síðar verður vikið að. Hinn myrti reyndist heita Gunnar Sig- urður Tryggvason, maður rúmlega fer- tugur og hafði stundað leiguakstur hjá Hreyfli um langt skeið. í vösum hans fannst fátt eitt sem að gagni mætti koma við rannsóknina. í rassvasa hafði hann svart leðurveski og í því 1500 krónur í peningum, tékkhefti og ökuskírteini; í innra jakkavasa voru nafn- og sjúkrasam- lagsskírteini og í ytri jakkavösunum fundust lyklaveski, vindlakveikjari, vasa- hnífur, kúlupenni, greiðubrot og 12 krónur í krónu- og túkallspeningum. Þetta var allt og sumt. Þegar rætt var við föður hins látna, en þeir höfðu búið sam- an, kom hins vegar í ljós að eitt vantaði: annað seðlaveski sem hann hafði að jafn- aði borið á sér og geymdi í fjögur eða fimm þúsund krónur í seðlum. Það mun hafa verið siður hans, eins og fleiri leigu- bflstjóra, að geyma peninga í horfna veskinu en skipta fyrir viðskiptavini sína úr hinu. Að sögn föðurins var týnda veskið mjög svipað hinu sem fannst í rassvasanum, svart með gylltum röndum, og geymdi Gunnar Sigurður það alla jafna í brjóstvasanum innan á jakka sín- um. Við leit á heimili þeirra feðga fannst hvorki tangur né tetur af þessu veski og var því þá slegið föstu af það hefði morð- inginn haft á burt með sér er hann hvarf út í rigninguna. Fjögur þúsund krónur í gömlum krón- um í janúar 1968 mun jafngilda tæpum fimm þúsund nýkrónum nú, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka íslands, og áttu menn að vonum bágt með að trúa því að hér á íslandi, þar sem vopnuð rán þekkjast varla og ránmorð því síður, gæti maður hafa verið myrtur með köldu blóði fyrir ekki hærri upphæð. Lögreglan leitaði því dyrum og dyngjum að senni- legri ástæðu en hún reyndist torfundin. Það var sama hver spurður var, enginn gat ímyndað sér að nokkur maður gæti hafa átt eitthvað sökótt við Gunnar Sig- urð Tryggvason. Hann var maður mjög hæglátur og lítið gefinn fyrir að fara út á meðal fólks; hann keyrði aðallega á nótt- 56 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.