Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 70

Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 70
 við að dópistar segi aldrei til slíkra eitur- lyfjasala. „Þeir halda kjafti til að eiga ekki á hættu að fá ekki dóp þegar þeir þurfa.“ Áður en Birgir fór í meðferð fór hann á hálfsmánaðar túr á amfetamíni eða spítti. Eftirköstin voru ofsóknarbrjálæði og þunglyndi. Hlín lýsir ofsalegri vanlíð- an í kjölfar sýruneyslu (LSD). „Ég var búin að vaka í sjö sólarhringa. Ég var að koma út úr vímunni og sat í eldhúsinu heima hjá pabba ásamt vinkonu minni sem var í sama ástandi. Við reyktum og drukkum kaffi en gátum ekki talað sam- an. Maður var fullur af ranghugmyndum og heimurinn virtist svo lítill. Húðin á manni opnast og verður óhrein og augun virðast anda. Maður ruglar bara... Svo minnist ég þess að hafa verið komin nið- ur á Lækjargötu. Ljósin voru svo falleg og skær og fólkið á götunni líka.“ Árni var á amfetamíntúr samfleytt í þrjá mánuði. Hann talar um svitaköst og skjálfta á niður-túrnum, eins og hann orðar það. Áður en hann fór í meðferð reyndi hann að fara á sjóinn til að losna. Hlín reyndi að fyrirfara sér en brast kjarkur á síðustu stundu. „Hefði ég haft byssu, hefði ég ekki hikað,“ segir hún. „Sumir foreldrar halda manni óbeint við ástandið," segja þau. „Mamma hringdi í vinnuna fyrir mig ef ég var í dópi og gat ekki mætt. Þannig stuðlaði hún óbeint að því að ég þyrfti ekki að taka afleiðingunum,“ segir eitt þeirra. „Margir dópistar reyna líka að spyrna við fótum sjálfir án þess að fara í með- ferð,“ segja þau. „Það er til undirheimur eiturlyfja á íslandi,“ segja þau. „Og hann er ekki aðeins bundinn við Reykjavík. Margir dópistar eru fjölskyldufólk og blanda geði við ýmsa. Aðrir eru einangraðri og umgangast nær eingöngu aðra dópista.“ Þannig var heimur þeirra. Þegar þau ganga götur bæjarins rekast þau sjaldan á gömlu félagana. „Þeir eru ekki í dagsbirt- unni,“ segir Birgir. Og það er eng- inn vandi að ná í eiturlyf," segja þau. „Það er nóg að rétta út hendina! Og það er auðveldara að ná í sterk lyf en hass. Það er hins vegar ekki mikið um gott kók (kókaín) og heldur ekki þetta crack.“ Sumt amfetamín er blandað heróíni, en ekkert þeirra segist hafa prófað heróín. Þau segja að dópi sé smyglað eftir mörg- um leiðum. Sýran (LSD) er lyktar- og litlaus og í pappírsformi. Ræma á stærð við nögl á litla fingri kostar um 800 krón- ur og dugir fyrir löngum túr. Sýran er veikari en hún var á hippatímunum, segja þau. Því segjast þau ekki óttast flash-back. Bæði Árni og Birgir óttast gamla hug- arfarið sem fylgir eiturlyfjaneyslu. „Mað- ur er svo fljótur að festast inni í þessu kerfi ranghugmynda. Og maður verður svo ömurlega fastur í þessu neti,“ segja þeir. Birgir sem nú er að ljúka námi í öld- ungadeildinni vill mennta sig meira. Hann segist samt óttast sjálfsblekking- una sem fylgi gömlu fíkninni. „Ég má aldrei telja mér trú um að ég geti neytt áfengis eða lyfja,“ segir hann. „Þetta er spurning um líf eða dauða,“ segir Hlín. Þau vita að freistingarnar eru skammt undan. Sum atvik úr fortíðinni eru skemmtileg í endurminningunni og verða oft ömurlegum þjáningum yfirsterkari í huga þeirra. En þau urðu að prófa, segja þau. „Ef við segjum við annað ungt fólk að það eigi ekki að prófa dóp hljómar það slagorðakennt. Eina leiðin er fyrir- byggjandi starf samtaka eins og foreldra- samtakanna Vímulausrar æsku.“ Birgir man þá tíð þegar honum fannst enginn ljós punktur við tilveru án vímu- efna. „En það kom sá tími að annaðhvort varð ég að fara í meðferð eða kála mér!“ Ástu hefur gengið illa að fá vinnu. Hún segir feimnislega að hana langi í skóla. Hún er aðeins sautján ára gömul. En hún veit ekki hvort hún hefur kjark til að setjast aftur á skólabekk. „Allt er betra en dópið,“ segir Hlín hughreyst- andi. Þær búa saman í svokölluðum áfangastað ásamt fleiri stúlkum. Andlit þeirra bera þess merki að þau hafa þekkt tímana tvenna. En um leið eru þau andlit þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref inn í nýja framtíð. Sambland eftirvæntingar og dulins ótta, bjartsýni og sakleysis sem dópvíman yfirgnæfði of lengi. „Ég er ennþá að átta mig á veru- leikanum," segir Árni sem ekur um á stóru mótorhjóli. En það er þessi veruleiki sem þau hafa nú valið. Veruleiki hversdagslífs, nýs lífs sem gerir miklar kröfur til þeirra. Veru- leiki sem þau áður flúðu en komast nú ekki hjá því að kynnast. Vímulaus veröld og heilt líf framundan. Sú mynd sem við höfum flestgert okkur afAlbert Einstein — utan- gátta vísindamanni sem hugs- aði afstætt og abstrakt og hafði varla jarðsamband — þessi mynd fer fyrir lítið í vœntanlegri bók sem birtir bréf hans og ungrar stúlku sem síðar varð fyrri kona hans. Þar kemur fram að þrátt fyrir ofsafengna andstöðu móður Einsteins héldu þau hjónaleysin sjó í ást sinni og sigruðust að lokum á allri mótspyrnu. En það virðist hafa kostað sitt: svolítið stúlku- barn sem þau eignuðust fyrir hjóna- bandið gufaði upp eins og dögg á vor- morgni og hefur ekkert til þess spurst síðan. Ástarbréf Einsteins fundust fyrir tveimur árum í öryggishólfi í Berkeley í Kaliforníu og eru um fimmtíu talsins. Þau verða gefin út í fyrsta hluta heildar- útgáfu á verkum vísindamannsins og er ætlað að útgáfan fylli að lokum þrjátíu þykk bindi. Einstein og stúlkan sem hann elskaði svo mjög hittust fyrst í Zúrich árið 1896 er bæði stunduðu þar nám við Tækni- stofnun borgarinnar. Hún hét Mileva Maric, var Serbi og þótt flestir hafi lýst henni sem býsna daufgerðri persónu heillaðist Einstein af henni. En mörg ljón voru í veginum áður en þau náðu í hjóna- bandshöfnina. f fyrsta lagi þurfti Mileva að sinna sínu fólki og var því langdvölum frá Zúrich; í öðru lagi átti Einstein erfitt með að finna vinnu við sitt hæfi og hikaði því við að stofna fjölskyldu, og í þriðja lagi var móðir hans, Pauline, í meira lagi andsnúin ráðahagnum. í júlí árið 1900 lýsti Einstein viðbrögðum móður sinnar við fréttum af sambandi þeirra fyrir Milevu: „Mamma kastaði sér á rúmið, gróf höfuð sitt í koddanum og grét eins og barn. Þegar hún hafði náð sér að mestu sneri hún vörn þegar í stað í örvæntingar- fulla sókn.“ Hún fullyrti við son sinn: „Þú ert að eyðileggja framtíð þína og leggja stein í götu þína allt lífið.“ Frú Pauline Einstein var þeirrar skoðunar að Mileva Maric gæti aldrei hlotið inngöngu í samfélag almennilegs fólks og minnti son sinn á að hún væri fjórum árum eldri en hann. „Þegar þú verður þrítugur verður hún orðin gömul norn!“ 70 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.