Heimsmynd - 01.06.1987, Side 73

Heimsmynd - 01.06.1987, Side 73
eftir Sverri Hólmarsson i W.H. Auden á Íslandi ánsama eyland Wystan Hugh Auden (1970-73) var frægasta skáld sinnar kynslóðar á Bretlandi. Hann ferð- aðist um ísland sumarið 1936 enda hafði hann frá blautu barnsbeini verið heill- aður af landinu og taldi ættarnafn sitt meira að segja af íslenskum uppruna. slendingar eru flestum þjóðum hör- undsárari fyrir þeim orðum sem er- lendir gestir láta falla um land og þjóð. Þeir hrífast sem börn af hverju hrósyrði en verða sárir og reiðir ef að einhverju er fundið. Petta er auðvitað hluti af hinum alkunna smáþjóðarkom- ^ plex okkar sem birtist í einkennilega mótsagnakenndri blöndu af rembingi og minnimáttarkennd. Á síðustu öld ortu þjóðskáldin ýmist um ísland sem nafn- kunna landið ellegar þá að það var fyrir löngu lítils virt/langt frá öðrum þjóðum. Á okkar dögum birtist komplexinn meðal annars í örum geðsveiflum landans í kringum Evrópusöngva- keppnina og alþjóðleg handboltamót, k svo dæmi séu tekin. Ýmsir ágætir og jafnvel nafnkunnir út- lendingar hafa ritað ferðabækur frá ís- landi og hefur margt þeirra verið þýtt á íslensku. En bók þess ferðalangs, sem að öðrum ólöstuðum er líklega heimsþekkt- astur þeirra sem slíkar bækur hafa samið, hefur aldrei verið þýdd á íslensku. Þetta eru Bréf frá íslandi (Letters from Ice- * land) eftir Wystan Hugh Auden. Til þess liggja eflaust ýmsar ástæður, bókin er ólík öðrum ferðabókum og full af illþýð- anlegum skáldskap. En hún birtir okkur líka mynd af íslandi sem þjóðin var ekk- ert ánægð með á sínum tíma, vegna þess að Auden sá ekki land og þjóð gegnum rósrauð gleraugu rómantíkurinnar, eins og til dæmis landi hans og skáldbróðir William Morris gerði á síðustu öld. n Auden var nú samt einlægur íslandsaðdáandi. Ætt hans tel- ur sig upprunalega komna frá íslandi og ættarnafnið mun vera afbökun á norræna nafninu Hálf- dan. í bernsku gleypti Auden í sig íslend- ingasögur sem hann mat alla tíð afskap- k lega mikils. Sjálfur segir hann að í bernskudraumum sínum hafi ísland verið heilög jörð og þegar hann kom hingað fyrst árið 1936, tuttugu og níu ára að aldri, hafi veruleikinn sannreynt draumana. Árið 1936 var Auden þegar orðinn nafntogaðasta skáld sinnar kyn- slóðar á Englandi og hann greip fegins hendi það tækifæri sem forlagið Faber og Faber bauð honum upp á, að fara til íslands og dveljast þar sumarlangt í þeim tilgangi að skrifa bók um landið. For- lagið borgaði ferðina fyrir hann og skáldbróður hans og vin, Louis Mac- Neice, sem skrifaði bókina með honum. Auden var róttækur í stjórnmálum á þessum árum eins og flestir af hans skáldakynslóð, þó að hann gengi reyndar aldrei í Kommúnistaflokkinn. Það var válegt um að litast í Evrópu árið 1936, nasistar héldu Þýskalandi í heljargreip- um og fasisminn varð sífellt skelfilegri ógnun við gamlar menningarhefðir. Það hefur því eflaust sumpart verið með það í huga að komast um stund burt frá þess- um váboðum að Auden tók sér ferð á hendur til fjarlægrar eyjar í norður- höfum, eyjar sem þá var ótrúlega miklu HEIMSMYND 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.