Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 82

Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 82
„Foreldrar mínir höfðu kynnst Einari Jónssyni myndhöggvara ÍÞýskalandi og milli þeirra var alltaf mikill samgangur. Þau tóku mig jafnframt alltaf íheimsóknir til listamanna, svo sem Einars Jónssonar og Guð- mundar Einarssonar frá Miðdal." Myndin er úr kvöldveislu í Listvinahúsinu árið 1935. Umhverfis borðið frá vinstri eru Valgerður, móðir Guðmundar frá Miðdal (föður Erró), Martha Clara og Björn Th. sonur hennar, Björn Björnsson teiknari, Lydiafósturdóttir Guðmundarfrá Miðdal, Einar Jónsson myndhöggvari, Theresia Einarssonog Baldvin Björnsson gullsmiður. Myndina tók gestgjafinn, Guðmundur frá Miðdal. hann listina hafa tilgang? Og hvar og undir hvernig kringumstæðum þrífst hún best? Björn Th. Björnsson fékk ungur áhuga á myndlist. Hann er af listrænu fólki kominn og þýskur í aðra ættina. Hann er kvæntur Ásgerði Búadóttur sem löngu er orðinn þekkt fyrir vefnað sinn og eiga þau þrjú börn. Á heimili þeirra í Karfa- vogi í Reykjavík prýða verk Ásgerðar hluta hússins, þar sem er vinnustofa hennar, en málverk og myndir íslenskra og erlendra listamanna aðra veggi húss- ins. Á efri hæðinni er vinnustofa listfræð- ingsins í yfirlætislausu herbergi. Þar er að finna hafsjó af fróðleik um myndlist í gegnum aldirnar í troðfullum bókahill- um. Á vegg hanga tvö portrett af honum sjálfum. Annað er eftir Einar Hákonar- son og sýnir Björn eins og hann lítur út nú. Hitt verkið er af honum ungum, ljós- hærðum með kringlótt gleraugu. Það er málað í London af Waistel Cooper vorið 1944 þegar Björn var þar við nám. Þegar ég sit andspænis Birni við skrif- borðið hans rifjast upp fyrir mér þáttur með honum í sjónvarpi fyrir mörgum árum þar sem hann útlistaði verk Edou- ard Manet af ungri konu bak við bar- borð. Fræg mynd sem fékk á sig fleiri víddir. Hvílíkur munur það hlýtur að vera að þræða listaverkasali í fylgd slíks manns. En að baki liggur áratuga fræði- mennska í heimi listarinnar, heimi svo fjarri allt of mörgum. „Faðir minn, Baldvin Björnsson, var gullsmiður sem málaði í frístundum," segir hann aðspurður um uppruna sinn og menningarlegt uppeldi. „Afi minn, Björn Árnason, var einnig gullsmiður og föðurbróðir minn, Björn, var bæði gull- smiður og teiknari, sem kenndi í lista- skóla í Reykjavík sem hann setti sjálfur á fót, ásamt Marteini Guðmundssyni myndhöggvara. Nína Tryggvadóttir, Karl Kvaran og fleiri fengu sína fyrstu menntun hjá honum. Móðir mín var þýsk, fædd í Leipzig en ólst upp í Berlín þar sem foreldrar mínir kynntust. Hann var verkstjóri í stóru gullsmíðafyrirtæki þar sem hún starfaði á skrifstofunni. Hann fór utan 1898 og var eins og margir ungir listamenn í þá daga með sítt, krull- að hár niður á herðar. Hann ku hafa haft þann sið að leggja sig fram á borðið í verkstæðinu þegar hann hafði lokið við Móðir Björns var þýsk, ættuð frá Leipzig, en for- eldrar hans kynntust í Berlín og fluttust til islands árið 1915. „Ég held að hún hafi aldrei séð eftir að hafa komið hingað og þótt stríðsárin hafi verið erfið og efnahagurinn bágborinn hélt hún áfram að vera heimsborgari og áhugasöm um menn- ingarlíf." að snæða hádegisnestið sitt. Móður minni og fleiri stúlkum á skrifstofunni fannst þetta fyndið. Eitt sinn ákváðu þær að stríða honum með því að binda bláan borða í ljóst hár hans meðan hann svæfi. Þegar til kastanna kom var móðir mín sú eina sem hafði kjark til að binda slaufuna. Þegar hann komst að því að Martha Clara væri sökudólgurinn ákvað hann að hefna sín með því að bjóða henni í óperuna og hlusta á Pétur Jóns- son, helsta óperusöngvarann í Berlín þá, enda kölluðu Þjóðverjar hann Unser Pet- er\ Á eftir var þeim boðið til borðs með Pétri í Óperukjallaranum. Það fannst móður minni mikil upplifun og því fór sem fór. Eldri bræður mínir, Haukur og Harald, eru báðir fæddir í Þýskalandi og síðan þá hefur Björnsson verið ættar- nafn. Fjölskyldan fluttist til íslands árið 1915 þar sem þeim fannst ekki lengur vært í Þýskalandi vegna stríðsins. En að- koman til Reykjavíkur var ekki falleg. Skipið lagðist í höfn daginn eftir að brun- inn mikli varð í Reykjavík. Þau gengu í land yfir rjúkandi rústir en ég held að móður minni hafi strax þótt vænt um þetta land. Ég held að hún hafi aldrei séð eftir því að koma hingað og þótt stríðsár- in hafi verið erfið og efnahagurinn bág- borinn hélt hún áfram að vera heims- borgari og áhugasöm um menningarlíf. Fyrsta heimilið þeirra var í Sauðagerði við Kaplaskjólsveginn, en síðan fluttu þau á Ránargötu 29 þar sem ég fæddist árið 1922. Um tíma fluttum við til Vestmannaeyja. Þar var auðugt pláss sem vantaði gullsmið. Síðan fluttum við aftur til Reykjavíkur þar sem ég gekk í gagnfræðaskóla í húsi franska spítalans. Þar átti að vera svo reimt að æskilegast þótti að ganga um með franska orða- bók.“ Björn Th. segist snemma hafa fengið áhuga á myndlist. Þegar hann var við nám í Menntaskólanum í Reykjavík sótti hann allar myndlistarsýningar. Hann var þá þegar staðráðinn í að læra listasögu, „þótt næstum enginn hér vissi að þessi fræðigrein væri til. Að vísu höfðu tveir fslendingar numið listasögu en þeir voru báðir fæddir og uppaldir erlendis. Annar var Sturla Guðlaugsson sem starfaði í ríkissafninu í Amsterdam og hinn var Hjörvarður Árnason, síðar forstjóri Guggenheim-safnsins í New York. Ég vissi varla um tilvist þessara manna fyrr en löngu síðar.“ Hann segir að hugur sinn hafi meðal annars hneigst í þessa átt strax á unga aldri vegna beinna kynna við merka lista- menn. „Foreldrar mínir höfðu kynnst Einari Jónssyni myndhöggvara í Þýska- landi og milli þeirra var alltaf mikill sam- gangur. Þau tóku mig jafnframt alltaf með í heimsóknir til listamanna, svo sem Einars Jónssonar og Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal.“ 82 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.