Heimsmynd - 01.06.1987, Page 104

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 104
BILALEIGA ER OKKAR FAG Viö útvegum yöur interRent bílaleigubíl hvar sem er erlendis, jafnvel ódýrara en nokkur annar getur boðiö: Dæmi: í íslenskum krónum m/söluskatti. Ótakmarkaður akstur Danmörk: 3 dagar = 4.281.- 7 dagar = 8.560.- Aukadagur 1.220,- Þýskaland: 3 dagar = 4.000,- 7 dagar = 7.041,- Aukadagur 996,- Luxemburg: 3 dagar = 3.975.- 7 dagar = 6.651.- Aukadagur 930,- Einnig bjóöum við úrval húsbíla og campingbíla í Þýskalandi. interRent er stærsta bílaleiga Evrópu. Viö veitum fúslega allar upplýsingar og póntum bílinn fyrir yður. interRent interRent á íslandi/ Bílaleiga Akureyrar Reykjavík - Skeifan 9 - Símar 91-686915,91-31615 Akureyri - Tryggvabr. 14 - Símar 96-21715, 96-23515. Telex: 2337 IR !CE IS. húðin meira en hins venjubundna við- halds. Fyrstu geislar sólarinnar eru sterk- ir og geta auðveldlega skaðað húðina sem er óvön sólinni og alls óvarin. Ónýtir dagar frísins vegna þess að of geyst er farið fyrstu dagana eru með því verra sem hægt er að lenda í í fríinu. Misþyrm- ingin á húð sem steikt hefur verið eins og humar er gífurleg, öll eðlileg starfsemi er rifin niður og varnarkerfi meira og minna laskað, að ekki sé minnst á alla þá vanlíð- an sem sólbruna fylgir. Hvernig ætli hinn almenni íslendingur beri sig að? Við skulum fylgjast með því. Hanna vinnur á skrifstofu allan ársins hring en er nú að skipuleggja langþráð sumarleyfi sitt, stefnir á eina af vinsælu baðströndunum í Evrópu. Húð hennar er líflaus og gráhvít og hún er engan veginn í formi eftir veturinn. Á hverju byrjar Hanna? Hún hefur ekki mikla löngun til að mæta laxableik á ströndina, né heldur langar hana til að líða þjáningar sólbruna (hún hefur nefnilega brunnið áður) eða eyða fyrstu dögunum meira eða minna undir þaki. Hanna byrjar á því að panta tíma í ljósum. Einn tími á dag í nokkrar vikur. Hún fer að stunda eróbikk, línurnar verða að vera í lagi, og strípur eru settar í hárið. Hanna er tilbúin í fríið. Á ströndina er komið. Hanna flat- magar í sólinni, sæmilega ánægð með sjálfa sig. Henni er heitt en ætti ekki að hafa áhyggjur því hún fékk ágætan lit á sig áður en hún lagði af stað og telur sig vel undirbúna fyrir fríið. Að kvöldi dags þegar inn er komið finnur Hanna til mikils hita í húðinni og hún sér einnig að hún er nokkuð rauð. Hún ber krem á sig í tonnatali en hvorki roðinn né hitinn hverfa. Síðar um kvöld- ið er hana farið að svíða og hún fær kuldaköst í öllum þessum hita. Aumingja Hanna og aumingja húðin. Hvað ætli sé að gerast innundir ysta lagi húðarinnar? Öflugt varnarkerfi hefur verið sett í gang, kæling stendur yfir og keppst er við að bæta úr því vökvatapi sem húðin hefur orðið fyrir. Þjáningum Hönnu verður ekki lýst með orðum. Hún slapp með skrekkinn. Flestir hafa fengið smjörþefinn af sólbruna og kannast við framhaldið. Húð Hönnu tók að flagna eftir nokkra daga svo eftir voru bleikar klessur um allan líkama. Hefði Hanna getað farið aðrar leiðir? Hún hefði getað undirbúið hörundið og allan líkamann miklu betur, að vísu hefði það kostað aðeins meira en er það ekki þess virði? Allra fyrsta skrefið til undirbúnings fyrir sólina og að endurlífga ferskt og hraust útlit er að næra hana og þá innan frá. Byrja á næringarríkum kúr, hefja æfingar undir beru lofti, sund, skokk og öll útivera örvar blóðrásina og endurnýj- un húðfrumanna. Síðan er nauðsynlegt að hefja uppbyggingu á húðinni sjálfri. Flest höfum við hreinsi- og rakalínu sem við notum daglega en meira þarf til. Andlitsböð og hreinsanir eru nauðsyn- legar. Búast má við tveimur til þremur vikum í slíkt. Hreinsa verður burt dauðar húðfrumur sem borist hafa upp á yfir- borðið. Gott er að nota peeling-maska sem auðveldir eru í notkun. CLARINS framleiðir Gentle Facial Peeling og EST- ÉE LAUDER Gentle Action Skin Polis- her. CLINIQUE hefur Exfoliante Scrub Cream og 7 day Scrub Cream. Ekki má gleyma líkamanum sem þarfnast sinnar meðferðar einnig. Body Exfoliating Scrub frá CLINIQUE og Ex- foliating Body Scrub frá CLARINS eru dæmi um krem sem hreinsa burt óæski- lega húð af líkamanum. Undirbúningur fyrir sólböð er mikil- vægur en mikilvægari er þó vörnin. Á markaðnum er mikill fjöldi krema sem gegna því hlutverki að verja húðina geislum sólar. Fyrir hvíta húð og húð sem er viðkvæm fyrir sól eru krem þessi ómissandi en fyrir húð sem auðveldlega verður brún gefa þau möguleika á dekkri lit. Húðin sjálf hefur sína eigin vörn gegn UV-geislum sólar og framleiðir litarefnið melanium með hjálp amínósýrunnar tyr- osin. Framleiðsla á melanium hefst þegar sólin kemst í snertingu við húðina. Litar- efnið fer þá inn í húðfrumurnar og berst með þeim upp á ysta lag húðarinnar. Einstaklingsbundið er hversu mikið magn litfruma er í húðinni. Húðfrumurn- ar taka einungis við ákveðnu magni svo jafnvel þótt legið væri dögum saman í þrjá mánuði myndi lítið bætast við ef hámarki væri náð eftir þrjár vikur. Sá litur sem kemur á húðina við úti- veru og sólböð er náttúruleg varnarvið- brögð húðfrumanna við sólargeislum og því hraðar sem liturinn kemur því minni tíma þurfum við líklega að eyða á strönd- inni. Á markaðnum eru krem sem bera á á líkamann þremur dögum fyrir sólböð. Þau örva litfrumurnar til framleiðslu en eru ekki vörn. Generateur de Bronzage frá CLINIQUE og Pre Tan Accelerator frá ESTÉE LAUDER eru dæmi um slík krem. Þá er gott að bera Hawaiian Trop- ic Pre-Tan Activator á líkamann degi áður en farið er á ströndina. Enn fremur má nefna Pre-Tan lotion frá ROC. Þessi krem styrkja húðfrumur og auka virkni tyrosin-amínósýru sem örvar myndun lit- arefnisins melanium. Einnig eru til lituð krem sem veita vörn. Hentugt fyrir þá sem kunna því illa að mæta næpuhvítir á ströndina. Þegar á ströndina er komið framleiðir ROC Sun Filter lotion sem er mjög raka- gefandi og nærir húðina. ESTÉE LAUDER hefur sérstakt andlitskrem, Anti Wrinkle Sun Cream, sem hindrar hrukkumyndun. Fyrir líkamann er Gold- en Bronzing Oil sem inniheldur E-víta- 104 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.