Heimsmynd - 01.06.1987, Síða 115
karlinn fékk fram stökkbreytingu, sem
reyndist framleiða tvisvar sinnum meira
i vín fyrir hvert tré en venjulegur Riesling.
Riesling er sú tegund sem gefur beztu
vínin þegar vel árar, en hefur þann ókost
að þroskast seint. Þegar haustið svo svíf-
ur að og svalviðri gnýr með rigningu og
látum vilja berin belgjast út þannig að
safinn þynnist og vínið verður ekki eins
gott. Kosti Rieslingsins þarf varla að
rekja. Kaup einn Bernkastler Doktor og
drekk!
Þýzk hvítvín urðu ekki til matarins
vegna heldur sjálfra sín. Allir ráða hvað
þeim líkar að drekka og þá með hverju
en ég drekk ekki þýzk hvítvín með svart-
fugli. Bezt er að eiga garð og drekka
þessi vín á hlýjum sumarkvöldum. Sól-
skýli nægja ef í harðbakka slær. Þau eru
ekki bragðsterk og þeim hættir til að
kafna í bragðsterkum mat eins og kjöti,
graflaxi og öðrum krydduðum mat. Ný-
lega hafa Þjóðverjar sjálfir farið að gerja
t vínin lengur en áður til að gera þau þurr
eða hálfþurr (trocken, halbtrocken), en
um þetta framtak eru mjög skiptar skoð-
anir. Sjálfum finnst mér venjulegi vín-
stíllinn beztur og drekk þessi vín sjaldan
með mat.
Aðaleinkenni þýzkra hvítvína eru
ávaxtabragðið og mjög þægilegur sæt-
leiki. Moselvínin eru heillandi, hafa
mikinn þokka þegar bezt lætur og súrsæt-
an keim. Vín frá Rheingau eru höfugri
án þess að glata þokkanum, ekki eins súr
en heldur ekki eins hressandi. Á vondum
árum, þegar Moselvínin eru bara súr, eru
Rheingauvínin aðallega lítilla sanda og
sœva.
» Rheinessen er stærsta vínhéraðið í
Þýzkalandi og vínin þaðan eru mýkri en
Moselvínin og bragðminni en þau frá
Rheingau. Þaðan kemur hin fræga Lieb-
fraumilch. Dellan byrjaði í Worms þaðan
sem Liebfrauenstift kemur. Vínið er
þægilegt og vinalegt en kemst sjaldan í
hæðir.
Rheinpfalz er stórt hérað og liggur að
t Alsace, sem ég held að tilheyri Frakk-
landi í ár. Þar er hlýrra en í hinum héruð-
unum og að auki gömul eldvirkni, sem er
talin hafa áhrif á bragðið. Vínin eru oft
mjög góð en þurfa yfirleitt að tylla sér á
tær til að sjá sunnudagssteikina í Mosel
eða Rheingau.
Á fslandi fást mörg þýzk vín, flest í
sama gæðaflokki. Þetta eru mjög almenn
vín og mörg þægileg til drykkjar. Hið
i tignasta er Graaéher Himmelreich, sem
þar að auki er Spatlese sem þýðir oft
minna áfengismagn en betra vín. Þar að
auki er það hálfsætt sem fellur ekki í allra
smekk. Þetta vín er frá 1985, sem var
mjög gott ár, og það þýðir að vín af
þessum gæðaflokki á eftir að þroskast og
dafna. Þá þarf eigandinn að sýna þolin-
mæði í eitt til þrjú ár. Yfirleitt má drekka
I þýzk vín ung, því að fæst þeirra batna við
langa geymslu, en eitt ár sakar aldrei.
P E N N I N N
Reykjavíkurskáldið Tómas Guðmundsson orti eitt sinn
Ijóð um penna. Þá grunaði hann sjálfsagt ekki að kvæðið
um pennann yrði flutt ítilefni af opnun Pennans hf. í nýju
húsnæði í Austurstræti 10 þar sem áður var verslunin
Torgið, enda Ijóðið ort um stílvopnið en ekki fyrirtækið. En
Ijóðið er gott og vegir listarinnar órannsakanlegir. Ftenninn
hf. flutti af einni hæð í Hafnarstræti og tekur nú yfir þrjár
hæðir í nýja húsnæðinu. Á efstu hæðinni er málaradeildin,
sem áður var í Hallarmúla, í nýrri og bættri mynd. Þar hef-
ur og Gallerí Borg opnað nýjan sýningarsal og munu þar
ýmist verða einkasýningar eða upphengi Gallerfsins.
Fyrsta einkasýningin er á verkum Magnúsar Kjartans-
sonar sem einmitt hélt fyrstu einkasýninguna sem haldin
var í Gallerí Borg, fyrir tæpum þremur árum.
Sýningarsalur Gallerí Borgar er Ftennanum skemmtileg
viðbót.
Magnús Kjartansson og
Ingibjörg Siguröardóttir
hlýða á Úlfar Þormóðsson
útíista lögmálið. Hann hef-
ur nú tekið sér leyfi frá
stjórnunarstörfum við Gall-
erí Borg og er haldinn til
sólskinseyjunnar Rhodos
við að fararstýra íslenskum
ferðalöngum.
Anna Borg verslunarstjóri
Pennans í Austurstrætinu
ásamt Stefáni Jónssyni
húsverði Ríkisútvarpsins
sem einnig er að flytja, af
Skúlagötu og inn í Efsta-
leiti.
HEIMSMYND 115