Heimsmynd - 01.06.1987, Page 136

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 136
keðjunni. Þegar lífsbaráttan var hörð voru minni líkur á að öll börnin kæmust á legg en foreldrar vildu að sjálfsögðu sjá flest sín afkvæmi vaxa úr grasi, afkvæmi sem síðan myndu sjá þeim farborða í ellinni. Enn þann dag í dag gætir þessa viðhorfs, börnin eiga að vera ljósvaki aldraðra foreldra, börnin eru á vissan hátt fjárfesting, bæði í veraldlegum og andlegum skilningi. Og nú á tímum uppanna og æ færri afkvæma færist pressa fyrri alda á tíu eða átján börn yfir á eitt til tvö stykki. Og það er heilmikil ábyrgð fyrir krakkagrey- in. Hvað þá blessuð einbirnin sem fá athyglina og ábyrgðina óskipta. En svo aftur sé vikið að uppunum virðist það ekki eingöngu þessi framtfðarsýn um börn sem ljósvaka í ellinni sem ræður mestu, heldur eru börnin endapunktur á velheppnaðri ævisögu foreldranna. Börn- in eru rúsínan í pylsuendanum á frama- brautinni. Af þessum sökum meðal annars segja sálfræðingar að uppeldi uppakynslóðar- innar geti haft háskalegar afleiðingar í för með sér. Þegar foreldrar eru stöðugt að skipuleggja líf og frama barna sinna eru þau á vissan hátt að grípa í taumana á örlögunum. Foreldrarnir eru að ræna börn sín frumkvæði, axla ábyrgð gjörða þeirra og hirða hrósið fyrir velgengni þeirra. Slíkt uppeldi getur orsakað það að börnin verði afar ósjálfstæð og jafnvel haldin minnimáttarkennd. Því segja margir sálfræðingar að foreldrarnir sem vænta undrabarna megi einnig búast við miklum vandamálum. Haldi fólk að þetta sé ástæðulaus ótti er bent á þá þróun sem á sér víða stað erlendis. Tíðni sjálfsmorða meðal barna og unglinga hefur aukist að mun í iðn- væddum nútímasamfélögum, Bandaríkj- unum, Vestur-Þýskalandi og Japan svo dæmi séu tekin. Skólasálfræðingar verða í æ ríkari mæli varir við streitueinkenni hjá nemendum. Og margir foreldrar láta sér ekki segjast fyrr en það er orðið of seint. Vandamál barna eru tímanna tákn, segja sálfræðingar. Meginorsök vandans liggur í því að foreldrar virðast ekki kunna að þræða hinn gullna meðalveg. Börnin eru annaðhvort fordekruð eða undir alltof miklu álagi. Auðvitað á að gera kröfur til barna en þær kröfur eiga að vera í samræmi við hagsmuni barn- anna og getu. Er það ekki vel af sér vikið að kenna barninu almenna mannasiði, innræta því gott hjartalag og heilbrigða skynsemi? Er þá ekki líklegt að barnið verði síðar fært um að sjá um sig sjálft? Öll börn eru sérstök, sum hver einstök, jafnvel ein- stakari en foreldrar þeirra. Og það er ekki víst að foreldrar sjái alltaf hvaða hæfileikar búa í börnum þeirra og geta því með þrýstingi sínum verið að útiloka að vissir hæfileikar blómstri. Þau sómahjónin Kristín Jóhannesdótt- ir og Sigurður Pálsson eignuðust sitt fyrsta barn hinn 20. mars síðastliðinn, strák sem að sjálfsögðu hefur hlotið hið páfalega nafn Jóhannes Páll. Það eina sem þau hafa nokkrar áhyggjur af varð- andi framtíð stráksins er ef hann tæki nú upp á því að fara að spila fótbolta. „Þá vitum við ekki alveg hvernig við ættum að bregðast við,“ segir Kristín. „Að öðru leyti erum við búin undir hvað sem er og faðir hans hefur meira að segja fallist á að kynna strákinn fyrir sund- íþróttinni — sem hann hefur Iítið stundað sjálfur nema helst í heita pottinum. Ann- ars er það dásamlegast við svona nýjar persónur að þær skapa sig sjálfar. Þess vegna eru þær meistaraverk. Þær eru ekki einu sinni í höfundarleit.“ „En þarf ekki að leikstýra nýjum per- sónum?“ spyr ég. Þar ætti Kristín að vera á heimavelli; hún er ábyggilega einhver frumlegasti og færasti leikstjóri okkar ís- lendinga. Sigurður Pálsson kann líka ým- islegt fyrir sér á þessu sviði. „Maður getur vissulega þurft að stíga léttan tangó og það má vera að faðm- lögin verði einhvern tíma ansi ástríðufull. Aðalatriðið er að það séu faðmlög." Þau Kristín og Sigurður hafa verið gift í meira en áratug og fæstir vinir þeirra og kunningjar áttu von á því að þau legðust í barneignir úr þessu. Fréttirnar þóttu svo náttúrlega hinar ánægjulegustu og eina virta leikkonu þekki ég sem lýsti því yfir að hana langaði mest til þess að hætta í leiklistinni og gerast barnfóstra til að geta fylgst með þessum krakka alast upp. „Þegar tveir svona frumlegir listamenn eins og Siggi Páls og Kristín taka sig til og búa til barn þá hlýtur árangurinn að verða stórskemmtilegur!" sagði hún. Þessi leikkona stendur að vísu enn á sviði enda eru foreldrarnir fullfærir um að annast strákinn og taka hlutverk sitt afar hátíðlega. En þó ekki of hátíðlega. „Við erum heppin," segir Sigurður, „að því leyti hvað við fórum seint út í barneignir. Fyrir nokkrum árum var alls konar fræðileg pedagógía mjög í tísku; doktor Benjamín Spock og þeir félagar allir, en það vita nú allir hver urðu örlög þeirra kenninga Ef við hefðum farið að eignast börn strax hefðum við sjálfsagt lent á kafi í þessu öllu saman en nú erum við alveg óbundin.“ „Sigurður hefur sagt að það sé ekki til barnauppeldi, heldur bara börn,“ segir Kristín. „Já. Ég er líka þeirrar skoðunar að í raun og veru ætti fremur að tala um foreldrauppeldi. Foreldrarnir eru aldir upp af börnum sínum, ekki síður en öfugt. Það er því ærinn starfi sem bíður þessa litla drengs! Að ala okkur tvö upp, seint og um síðir!“ „En hann hefur víst alla burði til þess að geta það,“ bætir Kristín við. „Þetta verður karl í krapinu. Samkvæmt stjörnukortinu hans er í honum mikil togstreita milli nautna og aga. Hann er á síðustu gráðu í fiskamerkinu, varð næst- um því hrútur og Júpíter er mjög sterkur í kortinu hans. Hann verður samkvæmt því mjög agaður nautnaseggur!" „Sem hann sækir kannski að einhverju leyti,“ segir Sigurður, „til foreldranna „Miðað við stjörnukortið þarf í raun og veru ekkert að ala upp þetta barn. Hann mun sjá um það sjálfur. Það er alveg ónauðsynlegt að vera að bæta fleiri litum í litrófið hans.“ Drengurinn Jóhannes Páll liggur í vöggunni sinni og hlustar á spiladós sem hangir yfir höfði hans ásamt alls konar litskrúðugu dóti. Hann er rólegur og vær meðan ég er í heimsókn þó foreldrarnir segi að hann þjáist af magakrampa og við því sé víst ekkert að gera. „Það er kannski mest aðkallandi verk- efnið í uppeldinu,“ segir Kristín, „að hjálpa honum að komast heilu og höldnu yfir magakrampann." 136 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.