Heimsmynd - 01.05.1990, Síða 47
Helga hefur mjög gaman af því að
ferðast og er á leiðinni út úr dyrunum í
páskafrí til London sama dag og við er-
um að ræða saman. Ferðalög eru snar
þáttur í hennar tilveru og hún er óhrædd
við að skella sér út í flakk þegar svo ber
undir: „Ég vann í mörg ár sem flug-
freyja hjá Flugleiðum og síðastliðið sum-
ar skellti ég mér til Parísar og vann sem
flugfreyja hjá Air France. Það var mjög
eftirminnilegt sumar og svalaði ágætlega
ævintýraþránni sem er svo rík í mér. Eg
heimsótti marga fjarlæga staði sem ég
þekkti ekki áður, til dæmis Afríku,
Egyptaland, Karíbahafið og Grikkland
og fékk tækifæri til að skoða mig um
þar. Ég nýtti sumarið vel til að skoða
París fara á söfn og kanna nýjar bygging-
ar og hafði mjög gaman af. Það er margt
merkilegt að gerast í frönskum arkitekt-
úr núna og það er alveg lífsnauðsyn að
komast annað slagið til annarra landa og
hlaða rafhlöðurnar, því þótt ég reyni að
fylgjast sem best með og lesa fagtímarit
er ákveðin hætta á því að staðna héma
heima ef maður fær ekki ný sjónarhorn
og nýja strauma frá öðrum löndum."
Helga er á milli vita í húsnæðismálum,
býr í leiguhúsnæði eins og er, en er að
festa kaup á sérhæð í vesturbænum og
hlakkar til að flytjast þangað: „Þegar ég
var yngri var ég ákveðin í að komast í
einbýlishús en með aldrinum fer maður
að slá af kröfunum og draumurinn um
að eignast sitt eigið einbýlishús hefur
fallið í skuggann. Það getur þó vel verið
að ég eigi eftir að teikna mitt eigið hús,
en það er ekkert meginmarkmið í lífinu
lengur. Ég hef með árunum þróað annað
gildismat og keppi ekki eins mikið og áð-
ur eftir veraldlegum gæðum. Ég viður-
kenni þó að það er erfitt að slá af kröf-
unum og sætta sig við að sleppa ein-
hverju sem maður er orðinn vanur, en
það er ekki ómögulegt."
Það er auðséð á heimili Helgu að listin
spilar stóran þátt í lífi hennar. Mikið af
myndverkum á veggjum og listmunir til
skrauts á borðum og bekkjum. Það er þó
tónlistin sem skipar æðsta sessinn á
heimilinu. Helga hefur mikinn áhuga á
tónlist, lærði á píanó í mörg ár og hefur
gaman af því að syngja: „Ég og maður-
inn minn erum bæði í Dómkómum og
förum á æfingar tvisvar í viku. Oft er ég
svo þreytt eftir vinnudaginn að ég ætla
ekki að hafa mig af stað, en kem alltaf
endumærð heim. Jónas var atvinnumað-
ur í tónlist í mörg ár og mikið af vinum
okkar er tónlistarfólk svo tónlistin skipar
stóran sess í okkar lífi. Við reynum að
fylgjast með sem flestu sem gerist í tón-
listarlífinu.
Myndlistin er líka áhugamál hjá mér.
Ég fer mikið á sýningar, en því miður
hef ég sjaldan efni á því að kaupa mynd-
Amerísku „Sealy '-rúmin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð
í samráði við færustu beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar
dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman og ná þannig að gefa
þér góðan nætursvefn án bakverkja að morgni. 15 ára ábyrgð.
Marco hf., Langholtsvegi 111, 2. hæð sími 680690.
HEIMSMYND 47