Heimsmynd - 01.05.1990, Blaðsíða 56
TÍMAMÓT
EF
Árni Ibsen, skáld og leiklistar-
ráðunautur Þjóðleikhússins,
hefði ekki fæðst í Stykkishólmi
þann 17. maí 1948 hvar og hve-
nær hefði hann þá viljað fæðast?
„I London í kringum aldamót-
in sextán hundruð.“
Hvers vegna?
„Til þess að geta verið í leik-
flokki Shakespeares og kynnst
honum.“
Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst viljað vera?
„William Shakespeare.“
Hvaða tímabil í sögunni heillar þig mest?
„Elísabetartíminn í Englandi.“
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
„Samuel Beckett."
Hvernig húsgögn viltu hafa í kringum þig?
„Eitthvað djúpt og mjúkt til að sitja í og mikið af bókahill-
um fullum af bókum.“
Hvaða matur finnst þér bestur?
„Harðfiskur. Ég er eins og ófrísk kona að því leyti að ég fæ
stundum ómótstæðilega og óútskýranlega löngun í harðfisk,
sérstaklega á vorin.“
Hvernig fatnaði viltu helst klæðast?
„Einhverju léttu og þægilegu sem hvergi þrengir að mér.“
Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mest?
„Aphra Behn. Hún var uppi í lok sautjándu aldar og samdi
leikrit og smásögur en féll í gleymsku og hefur nýlega verið
enduruppgötvuð. “
Hvernig slapparðu af?
„Með því að lesa eða skrifa. Allt annað afslappelsi fer í
taugarnar á mér.“
Hver er besta leiksýning sem þú hefur séð?
„Uppfærsla Becketts á Beðið eftir Godot á þýsku.“
Hverju sérðu mest eftir?
„Að hafa ekki komið mér upp frekju. Hún er svo nauðsyn-
leg í þessu smákóngaþjóðfélagi okkar.“
Fyrsti maí er hátíðis-
dagur verkalýðsins. Á
miðöldum var þessi
fyrsti dagur maímánaðar
haldinn hátíðlegur sem tákn
vorsins og á það sér fornar
rætur í öllum landbúnaðar-
samfélögum. Sums staðar
voru krýndar maídrottningar
og maíkóngar í kjölfar alls
kyns uppákoma. Þá var það
lengi vel trú manna að sá er
baðaði andlit sitt í morgun-
dögginni þann 1. maí fengi
fagra húð.
Á alþjóðaþingi sósíalista
1889 var ákveðið að fyrsti
maí skyldi vera alþjóðlegur
dagur verkalýðsins. I Sovét-
ríkjunum og öðrum komm-
únistaríkjum hefur hann ver-
ið haldinn hátíðlegur með
mikilli viðhöfn og skrautsýn-
ingum en annars staðar hefur
dagurinn verið notaður til að
fara í kröfugöngur.
Fjórða maí hreyflngin
er heiti á byltingu
menntamanna í Kína
árin 1917 til 1921. Þeir börð-
ust fyrir félags- og stjórn-
málalegum umbótum og
beittu sér í sjálfstæðisbarátt-
unni fyrir frelsi einstaklings-
ins og uppbyggingu menning-
ar og samfélags.
Vegna ásóknar Japana í
Kína fóru menntamenn að
beita sér fyrir endurbótum á
kínversku samfélagi árið 1915
og í fararbroddi þar var tíma-
NAUTIÐ
Nautið er merki maímánaðar (20.
Nautin eru fædd að vori þegar (sóld
að lengja og náttúran farin að\aknA/íit' lífi
Vorið er frjósamur og gjöfull árstími og YHttfylífjíinyer já-
kvæður og bjartur. í vorinu býr ákveðin mýkt.nóngjarn-
leiki og tilhlökkun, sem endurspeglast í skapaerijtnímtsins.
Hið dæmigerða naut er duglegur nautnama^ur, efth þv/
sem Gunnlaugur Guðmundsson stjömuspakingur se
Eitt sterkasta einkenni þess er hæfileikinn íil að einbá
sér að ákveðnum málum og útiloka allt annkð. Það er :
legur og traustur persónuleiki oftast vingjarídegt og gi
lynt en nokkuð þungt í skapi. Nautið er jarðarnNrki og 1
sjá áþreifanlegan árangur gerða sinna, hafa fast lahd uú
fótum, fást við h^gnýt mál og hafa röð og reglu á ui/ihv
inu. Menning er ríkur þáttur í lífi margra nauta og áliug
tónlist, bókmenntum og málaralist algengur. Mörg naírt-1
hafa góða söngrödd og tónlistargáfu og í stofum þeirra má
gjaman sjá píanó, sem kallað hefur verið nautshljóðfæri.
Nautið er líkamlegt jarðarmerki og fellur stundum í þá
gryfju að hugsa of mikið um mat og líkamleg þægindi.
NEjárhagslegt öryggi og eignir skipta það miklu og það getur
genþi^útíöfg^r við að skapa sér og fjölskyldu sinni fjár-
hagslega-^suggAie þægilegt líf. Það er mikið fyrir að eiga
lluti IjgsúhMfeð^tur færst yfir á fólk og orðið til þess að
nabtið eT^feg^Wýðisamt. Þetta er í samræmi við lífstakt
naut\ins,(is«rfn er •yngra lagi, það þarf næði til að einbeita
sér og þarfaðsk^a sér öryggi meðal annars með því að
hafa eigur síhStí friði fyrir öðrum.
NmitiAMjómar hálsinum og því eru það ýmsir hálskvill-
ar s/m íSgna heilsu þess mest. Það þarf einnig að gæta sín á
hóglítinu, temja sér hófsemd í mat og drykk og gæta þess
r hreyfa sig.
^Meðal þekktra íslendinga í nautsmerkinu má nefna
Halldór Laxness, Sigfús Daðason, Þóru Friðriksdóttur,
Áma Ibsen og Þorvarð Helgason.
56 HEIMSMYND