Heimsmynd - 01.05.1990, Qupperneq 69
inn Evrópubúi komist. Þcgar
hann sneri til Tanganyika
stöðuvatnsins í átt að austur-
ströndinni 1871 var hann orð-
inn alvarlega sjúkur og þar
fann fréttaritarinn Henry M.
Stanley Livingstone en blað-
ið New York Herald hafði
sent Stanley til að skrifa um
'r Livingstone. Stanley færði
honum vistir og lyf en Liv-
ingstone neitaði að fara með
honum til Bretlands. Hann
hélt þess í stað í suðurátt og í
Zambíu fundu afrískir þjónar
hans hann látinn í maí 1873.
Þeir skáru úr honum hjartað
og grófu í afrískri mold. Lík-
ið báru þeir til strandarinnar
en sú ferð tók nokkra mán-
uði. Davíð Livingstone var
jarðsettur með mikilli við-
höfn í Westminster Abbey
ári síðar.
A ferðum sínum um Afr-
íku í þrjá áratugi kannaði
Livingstone slóðir sem eng-
inn hvítur maður hafði áður
gert. Án efa hefur hann haft
meiri áhrif á viðhorf Evrópu-
búa til Afríku en nokkur
annar fyrr og síðar. Rann-
sóknir hans voru slíkar að
enn er byggt á þeirri vitn-
eskju sem hann aflaði. Þrátt
fyrir að hann væri þjóðernis-
sinni og barn Viktoríutímans
trúði hann innilega á mátt
Afríku og sjálfstæði álfunnar
í framtíðinni.
Einangrunarsinninn Lodge.
Henry Cabot Lodge
fæddist 12. maí,
1850 í Boston.
Hann var öldungadeildar-
þingmaður repúblíkana í
meir en þrjátíu ár og barðist
harðast gegn því í þinginu að
Bandaríkjamenn tækju þátt í
Þjóðabandalaginu í kjölfar
fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Lodge var fyrsti nemandi
Harvardháskóla sem hlaut
doktorsnafnbót í stjórnmála-
fræði og skrifaði mikið um
stjórnmál og stjórnmálamenn
allt sitt líf.
Hann barðist fyrir samein-
uðu átaki Bandaríkjamanna í
fyrri heimsstyrjöldinni en
varð einnig fyrstur til vekja
máls á alþjóðlegri friðar-
stofnun 1916. Þegar Woodr-
ow Wilson forseti kvatti til
stuðnings við Þjóðabandalag-
ið óttaðist Lodge að sjálf-
stæði Bandaríkjanna gæti
beðið hnekki í slíku banda-
lagi og sem formaður utan-
ríkismálanefndar Bandaríkja-
þings var hann í aðstöðu til
að móta andstöðu Banda-
ríkjamanna við Versalasamn-
inginn og þar með Þjóða-
bandalagið. Hann var því í
hópi hörðustu einangrunar-
sinna og fékk sínu fram-
gengt. Þegar Warren G.
Harding forsetaefni repúblík-
ana vann sigur í forsetakosn-
ingunum 1920 varð Cabot
Lodge einn fjögurra sendi-
fulltrúa Bandaríkjanna á ráð-
stefnunni um takmörkun víg-
búnaðar í Washington 1921.
Barnabarn hans, Henry
Cabot Lodge, varð einnig
öldungadeildarþingmaður en
hann tapaði í kosningunum
um varaforsetaembættið
1960.
Fjölhæf leikkona.
/
rska leikkonan Siobhan
McKenna, en uppruna-
legt nafn hennar var
Siobhan Giollamhuire Nic
Cionnaith, fæddist í Belfast
24. maí 1923. Hún var ein-
—
og Marshall-áætlunarinnar. Árið 1952
barðist hann um sæti í öldungadeildinni
við Henry Cabot Lodge yngri og sigraði
hann. Robert bróðir hans stjómaði
kosningabaráttu þeirri en móðir hans
Rose og systurnar Eunice, Patricia og
Jean héldu teboð út um allt til að afla
honum fylgis.
Öldungadeildarþingmaðurinn John F.
Kennedy hóf starf sitt á því að hafa skrif-
stofudyrnar ætíð opnar. Það orðspor fór
því af honum strax að hann væri opinn
og móttækilegur fyrir hugmyndum og
vandamálum fólks. Flokksbræður hans
létu það fara í taugarnar á sér að Kenn-
edy skyldi ekki vera á móti Joseph
McCarthy sem frægur var fyrir „norna-
veiðar“ sínar á þessum árum en hann
leitaði uppi alla þá sem hann grunaði um
að vera kommúnista í opinberum em-
bættum. Jósef gamli Kennedy borgaði í
sjóði McCarthys og voru þeir ágætir
kunningjar. Þegar þingið fordæmdi að-
gerðir McCarthys 1954 var John hvergi
nærri og gerðu biaðamenn óspart grín að
því.
Árið 1956 sendi John F. Kennedy frá
sér bókina Profiles in Courage sem fjall-
aði um átta bandaríska stjórnmálaleið-
toga sem þorðu að fylgja sannfæringu
sinni í trássi við almennar vinsældir.
Bókin hlaut Pulitzerverðlaunin 1957.
Hann barðist fyrir auknum mannrétt-
indum í þinginu og fjárhagsaðstoð við
nýsjálfstæðar þjóðir Afríku og Asíu.
Hann hneykslaði marga þegar hann
ákallaði Frakka um að veita Alsír sjálf-
stæði.
í janúar 1960 lýsti John F. Kennedy
því yfir að hann hygðist bjóða sig fram til
forseta. Hann var þegar orðinn lands-
frægur en myndir af honum og Jacquel-
ine konu hans höfðu prýtt ótal tímarita-
forsíður. Hann var fyrsti kaþólikkinn
sem náði kjöri í forsetaembætti enda
lagði hann ríka áherslu á aðskilnað ríkis
og kirkju í ræðum sínum. Hann valdi
Lyndon B. Johnson sem varaforsetaefni
sitt en Johnson hafði sjálfur stefnt að út-
nefningu.
Kennedy sagði forsetakjör sitt marka
nýtt landnám en nýi stfllinn sem hann
innleiddi í embætti fór ekki framhjá
neinum. Hann var glæsilegri en nokkur
annar lifandi stjórnmálamaður. Hann
var vellauðugur, Harvardmenntaður
með fjölskyldu sem sópaði að á bak við
sig. Eiginkona hans fylgdi nýjustu París-
artískunni og tilheyrði gamalli banda-
rískri yfirstéttarætt. Rúsínan í pylsuend-
anum voru hámenntaðir ráðgjafar sem
hann safnaði í kringum sig, rjóminn í
landinu.
Hann var yngsti forseti Bandaríkjanna
fyrr og síðar. Valdatíð hans stóð í eitt
þúsund þrjátíu og sjö daga. í innsetning-
arræðu sinni ákallaði hann þjóðina að
berjast gegn sameiginlegum óvini mann-
kyns: harðstjórn, fátækt, sjúkdómum og
styrjöldum.
Hvert ólánið rak annað í utanríkismál-
um Kennedystjórnarinnar: Misheppnuð
innrás í Svínaflóa þar sem gera átti til-
raun til að steypa Fidel Castro af stóli á
Kúbu en innrásarmennirnir voru ýmist
drepnir eða hraktir til baka og Kennedy
einn ábyrgur. Næst lenti hann í útistöð-
um við Krushjeff vegna Berlínarmúrsins
sem reistur var 1961 og ári síðar í Kúbu-
deilinni þegar það uppgötvaðist að Sov-
étmenn höfðu komið kjarnorkueldflaug-
um fyrir á Kúbu. Þá deilu vann Kennedy
og flaugamar voru fjarlægðar. Stærsta
sigur sinn vann John F. Kennedy í utan-
ríkismálum þegar hann fékk Breta og
Sovétmenn til að undirrita samning sem
bannaði tilraunir með kjarnorkuspreng-
ingar.
Hann náði litlum árangri í tveimur
hugðarefnum sínum sakir veikrar stöðu í
þinginu: niðurskurði á tekjuskatti og
mannréttindamálum. Engu að síður var
hann óvenju vinsæll heima og annars
staðar. Hann virtist geisla af hreysti og
heilbrigði og áhersla hans á opnari
stjórnsýslu vakti aðdáun manna.
Hann var myrtur 22. nóvember 1963 í
opinni bifreið í heimsókn í Dallas. Ekki
hefur tekist að sanna að um samsæri hafi
verið að ræða. Morðingi var fundinn Lee
Harvey Oswald, 24 ára gamall Dallas-
búi, sem var myrtur tveimur dögum síð-
ar af Jack Ruby, næturklúbbseiganda.
Kennedy var dáinn en goðsögnin lifir
enn.D
HEIMSMYND 69