Heimsmynd - 01.11.1990, Qupperneq 64
Flugums]0narmenn „DC9 vélin frá Glasgow og BAC 1-11
• , ■ vélin frá Gatwick komu í samhliða stefnu
iil miSSU íOlitll á ratsjánni með fimm mílna millibili. Báðar voru
á sömu ratsjárstefnu og í klifri upp í hæð 280. Tvisvar sinnum rugluðust
kallmerkin og röng vél svaraði, þegar ég kallaði þær upp.“
„Byrjendur koma til starfa án nokkurrar reynslu af þéttri umferð. Á tíma-
skeiði með sæmilega þéttri umferð, sem við reyndum að nýta til þjálfunar
nýliða, varð að leysa úr fjórum tilfellum, sem hefðu getað þróast á hættu-
legan veg.“
„Á gífurlegum annatíma beindi ég vél frá Brussel inn á hæð 290 og
annarri frá Manchester á sömu hæð. Vélarnar komu mjög náiægt hvor
annarri og ég fékk aðeins viövörun frá starfsbróður úr annarri deild, sem
kom hlaupandi til mín. Athygli mín hafði hvað eftir annað verið rofin þar
sem ég varð að sjá um að bæði ratsjárumsjónarmennirnir og aðstoðar-
menn fengju hvíldarpásur, þar sem ekki var gert ráð fyrir afleysingarfólki til
að sjá um að þeir fengju nauðsynlega hvíld.“
þúsund keyrslustundum á vél, og mögu-
leikinn á að missa báða hreyfla út í einu
er um það bil einn á móti hundrað millj-
ónum.“
Flugmenn eru ekki jafnsannfærðir.
Mike Wallace flugstjóri, formaður
breska atvinnuflugmannasambandsins,
bendir á: Ef flugmaður á tveggja hreyfla
vél drepur á öðrum hefur hann bara einn
hreyfil eftir. Vélin hefur líka misst 50
prósent af stjórnkerfum sínum. Hún
missir hæð og verður að berjast við að-
stæður í mun erfiðari loftlögum. Við er-
um ekkert hrifnir af þessu, alls ekki
hrifnir.“
eir hafa líka áhyggjur af því sem
þeir sjá sem tilslökun öryggisyfir-
valda á reglum, sem taki óeðlilegt
mið af fjárhagshagsmunum flugfélag-
anna. Bandarísk félög hafa fengið leyfi
til að fljúga tveggja hreyfla vélum á leið-
um þar sem næsti varaflugvöllur mundi
vera í þriggja flugstunda fjarlægð, ef eitt-
hvað kæmi fyrir. Með því móti var hægt
að hefja rekstur tveggja hreyfla véla á
flugleiðum frá vesturströndinni til Hawa-
ii. Bresku reglurnar varðandi leiðina yfir
Atlantshafið leyfa að leiðin sé 120 eða
138 mínútur frá næsta varaflugvelli, en
breska flugmálastjórnin er með í athug-
un að breyta því í 180 mínútur. „Við er-
um harðir á móti þeirri breytingu,“ segir
Wallace. „Okkur finnst flug á tveggja
hreyfla vélum yfir Atlantshafið hæpið
því að varaflugvellirnir eru á stöðum eins
og íslandi og Grænlandi, sem eru þekkt
veðravíti.“
Meðal íslenskra flugmanna er skoðan-
ir um þetta skiptar eins og annars staðar.
Þeir sem hafa mestan hluta starfsævi
sinnar flogið fjögurra hreyfla vélum hafa
vissar efasemdir um öryggi tveggja
hreyfla vélanna. Hinir hafa ekki af því
stórar áhyggjur. Ekki virðast heldur
stórar áhyggjur af fækkun í áhöfn í tvo
menn. Islensku flugmennirnir fara sjald-
an í einum áfanga yfir hafið og telja
þreytu flugliða nær óþekkt vandamál.
Ný og fullkomin tæki í mælaborðið komi
fyllilega í stað þriðja mannsins við okkar
aðstæður. Hins vegar taka þeir að
nokkru undir áhyggjur starfsbræðra
sinna handan hafsins um Atlantshafsflug
á tveggja hreyfla vélum, þar sem tækni-
búnaður á Keflavíkurflugvelli hafi ekki
verið efldur að sama skapi til að taka við
nauðlendingum véla í hvaða veðri sem
er. Um tveggja ára skeið hefur FIA, Fé-
lag íslenskra atvinnuflugmanna, einmitt
átt í viðræðum við utanríkisráðuneytið,
sem fer með mál Keflavíkurflugvallar,
og yfirmenn hersins, sem kostar fram-
kvæmdir þar, um uppsetningu ILS blind-
lendingarkerfis við braut 29. Þessi braut
er einkum notuð í vestlægum vindáttum,
þegar gera má ráð fyrir lágskýjuðu veðri,
þokulofti og skúra- eða éljaveðri og get-
ur aðflugsbúnaður skipt sköpum um það
hvort lending næst eða flugvél þarf að
bíða eða hverfa brott. IFALPA, Al-
þjóðasamband atvinnuflugmanna í áætl-
unarflugi, hefur eindregið stutt þessar
kröfur og staðfest áhyggjur sínar bréf-
lega til FIA: „Keflavík hefur vaxandi
þýðingu fyrir flug í einum áfanga yfir
Atlantshafið með tveggja hreyfla vélum.
Ef þið óskið eftir því að þessi flugvöllur
verði flokkaður sem ófullnægjandi sam-
kvæmt kröfum IFALPA (Annex 19, 3.
hluta), vinsamlega látið okkur vita.“ Það
virðist þannig aðeins muna hársbreidd
TÍU IERSTU FLUGIEILIR HEIMS
„Meingallaðir" flugvelllr samkvæmt lista IFALPA, Alþjóðasambands atvinnuflugvalla. Þótt Keflavíkur-
flugvöllur hafi gott orð á sér fyrlr flugumsjón, veðurþjónustu, eldvarna- og björgunarþjónustu og
tæknilegan aðbúnaö, á hann á hættu að komast á þennan lista vegna skorts á nákvæmnilendingar-
tækjum á braut 29.
64' HEIMSMYND