Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 10

Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 10
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar stendur nú á tímamótum. Pegar þetta er skrif- að er að draga til úrslita um gerð samninga við launþega. Takist samn- ingar á hófsamlegum nótum er grunn- urinn lagður að tímabili áframhaldandi stöðug- leika með lágri verðbólgu. Takist þeir ekki, má búast við hatrömum átökum, á vinnumarkaði og í þjóðfélaginu í heild, sem vart munu leiða til annars en gengisfellingar og sjálfvirkrar óða- verðbólgu. Takist samningar fær ríkisstjórnin umþóttunartíma til að leggja skynsamlegan grundvöll að stefnu sinni til lengri tíma, og þá má ætla henni langlífi á mælikvarða íslenskra samsteypustjórna. Takist þeir ekki munu dagar hennar verða fljótt taldir, formaður og forsætis- ráðherra glata trausti flokks síns jafnt sem al- mennings, á þann veg að ekki verði aftur endur- heimt í bráð. Það verður tæpast sagt að upphafsferill þess- arar ríkisstjórnar hafi verið glæsilegur. Stjórnin marði þó meirihluta í fyrstu skoðanakönnun- um, en síðan hefur línan legið stöðugt niður á við. í síðasta mán- ~r r T—T Y var sv0 komið, # # B—j # #V^ að einungis um A__J A_ A AA\ þriðjungur kjós- STJÓRNIN? enda lýsti yfir stuðningi við stjórnina, og forsæt- isráðherrann skipaði efsta sæti óvinsældalistans þótt samtímis merði hann líka að verða efstur á vinsældalista stjórnmálamannanna. Það fylgi var þó nær einungis bundið við yfirlýsta flokks- menn Sjálfstæðisflokksins. Ekki verður séð að neitt bjartara sé framundan, nema hvað lengd- ur sólargangur og hlýnandi veður með vori eflir mönnum alltaf kjark og þor. Eftir er að sjá, hvort sú bjartsýni dugir til að efla atvinnu svo að hver hönd fái verk að vinna, þegar þúsundir skólanema streyma út á vinnumarkaðinn. Hinir stuttu hveitibrauðsdagar stjórnarinnar og kjósenda áttu sér ýmsar skýringar. Kosn- ingabaráttan hafði almennt verið háð undir merkjum bjartsýni og batnandi efnahags. Allir flokkar kepptust um að bjóða kjósendum upp á hærri skattleysismörk, og Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að afnema alla skatta vinstri stjórnarinn- ar svo fljótt sem við yrði komið. Varla höfðu menn komið sér fyrir í Stjórnarráðinu, þegar myndin dökknaði að mun. Kosningavíxlarnir féllu sem óðast og tæpra fimm milljarða fjár- lagahalli fyrri stjórnar stefndi í þreföldun. Að auki voru birtar langtímaskuldbindingar stjórn- valda, sem ekki gefa tilefni til að ætla að unnt sé að lækka skatta sem neinu nemi á þessum áratug. Til að ná inn lánsfé á innanlandsmark- aði varð ríkissjóður að hækka vexti á skulda- bréfum og spariskírteinum. Bankarnir urðu að bæta sér upp vaxtatap á fyrra helmingi ársins með hærri vöxtum. Með þeirri skuldsetningu, sem hér hvflir almennt á fyrirtækjum og heimil- um, er ekkert sem virkar jafnfljótt til að rýra trú manna á stjórnmálamönnum og hækkun vaxta langt umfram ríkjandi verðbólgustig. For- sætisráðherrann • greip til gamalkunnugs ráðs: Að skrifa Seðlabankanum með tilmælum um að hann stýrði vöxtunum til lækkunar. Jóhhannes Nordal svaraði með því að benda á að ríkið stýrði vöxtunum með ákvörðunum á sínum skuldabréfum, um leið og hann hækkaði þá einu vexti, sem Seðlabankinn hefur beina stjórn á, dráttarvextina. A meðan skemmtu ráðherrarnir í fjölmiðlum með vangaveltum um hvaða bíla þeir hyggðust kaupa. Heilbrigðisráðherrann einn hóf aðgerðir til sparnaðar með aukinni kostnaðarhlutdeild Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar verður að byggja lífslíkur sínar einungis á innri styrk. 10 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.