Heimsmynd - 01.04.1992, Side 14

Heimsmynd - 01.04.1992, Side 14
HEIMSMYND/ JIM SMART stjórnmál EYÐIMERKUR- Össur Skarp- háðinsson: Persónugerv- ingur eyði- merkur- kynslóðarinn- ar. Þrautaganga hans er dæmigerð. Eyðimerkurkynslóð- in er kynslóð vinstri manna sem ólst upp við það að það væri í tísku að vera til vinstri. En þegar þessi kyn- slóð komst á fullorð- insárin fann hún sér hvergi fastastað í tilverunni og er enn að leita. Pað er kaldhæðni örlaganna að jafnaldrarnir sem trúðu á frjálshyggjuna - en létu fara lítið fyrir sér á yngri árum af því að það var ekki í tísku að vera til hægri - eru nú við völd í land- inu. Þess sjást þó merki að eyðimerkurgöng- unni sé að ljúka en án þess að fyrirheitna land- ið sé fundið. Fólk af þessari kynslóð er búið að stofna flokka og mynda bandalög innan flokka og þvert á flokka og einstaklingar hafa verið mjög duglegir við að skipta um flokka. En fyr- irheitna landið finnst ekki - einn vinstri flokk- ur, sterkur, stór og nútímalegur flokkur, er ekki lengur í spilunum. Gangan er búin að vera löng GANGA KYNSLOÐAR I KLIPU eftir G. PETUR MATTHIASSON og ströng og einstakl- ingarnir virðast vera búnir að koma sér fyr- ir, hver á sínum stað. En þeir eru ekki sér- staklega ánægðir þar sem þeir eru. Þeir eru ekki í fyrirheitna land- inu og þeir eru í vandræðum því gönguþrekið er búið og Sínaí-fjall er ekki einu sinni í sjón- máli. Össur Skarphéðinsson, þingflokksformað- ur Alþýðuflokksins, er persónugervingur kyn- slóðarinnar og þrautaganga hans dæmigerð. íðasta tilraun eyðimerkurkynslóðar- innar til að ná fótfestu í íslensku stjórnmálalífi sem sameiginlegt afl var myndun Nýs vettvangs fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1990. Stuttu áður höfðu þeir Ólafur Ragnar Gríms- son og Jón Baldvin Hannibalsson þeyst um landið á rauðu ljósi. Alþýðubandalagið og Al- þýðuflokkurinn voru saman í stjórn og allt virt- ist geta gerst fyrst formennirnir voru orðnir mestu mátar. Að minnsta kosti olli þessi rauð- ljósaferð miklum taugatitringi víða í báðum flokkum. Einhverskonar sameining eða að minnsta kosti náin samvinna vinstri flokkanna kom vel til greina. Birting var orðið afl í Al- þýðubandalaginu og báðir flokkar tilbúnari til að opna sig og hleypa breiðari hópi fólks að. Þetta reyndi eyðimerkurkynslóðin að nýta sér. Löngu áður hafði hluti kynslóðarinnar reynt að hasla sér völl með stofnun Bandalags Jafnaðar- manna en það dagaði uppi sem Félag frjáls- lyndra jafnaðarmanna inní Alþýðuflokknum og kemur ekki við sögu fyrr en síðar. Um haustið 1989 fara hlutirnir að gerjast. í Alþýðubanda- laginu hafði lýðræðiskynsslóðin átt í stríði við flokkseigendur lengi. En lýðræðiskynslóðin er einmitt eyðimerkurkynslóðin að reyna að hasla sér völl innan Alþýðubandalagsins. Þar kemur Össur Skarphéðinsson við sögu. Því er rétt að fara nokkur ár aftur í tímann. Össur var rit- stjóri Þjóðviljans á árunum 1984-87 og ásamt Merði Arnasyni og Óskari Guðmyndssyni fór hann í stríð við þá sem fyrir voru í Alþýðu- bandalaginu og beittu þeir Þjóðviljanum í því stríði. Þetta var gert undir formerkjum þess að opna blaðið og losa það undan flokksvaldinu. En einsog Ólafur Gíslason blaðamaður benti á í lokablaði Þjóðviljans nú í endaðan janúar þá var raunveruleikinn einungis sá að skipt var um einstefnu: Össur og Mörður vildu banna hon- um að birta viðtal við Ásmund Stefánsson for- seta Alþýðusambands Islands í 1. maí blaði Þjóðviljans. Ásmundur var ekki á réttum stað í hinu pólitíska litrófi Alþýðubandalagsins. Árið 1986 voru borgarstjórnarkosningar og þá voru 14 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.