Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 18
stjornmal
ekki fyrir endann á því og áttu þeir sem eftir
urðu eftir að heyja nokkra hildina enn. Uppúr
kosningunum 1990 fer fólk að flytja sig um set.
Össur fer yfir í Alþýðuflokkinn og einnig stór
hluti Birtingarmanna. Guðmundur Ólafsson,
Margrét Björnsdóttir, Hrafn Jökulsson og
fleiri. Petta fólk tók sér síðan bólfestu í Félagi
frjálslyndra jafnað-
armanna og hefur
gert félagið eitt það
öflugasta innan Al-
þýðuflokksins.
Pröstur Ólafsson fer
líka yfir í Alþýðuflokkinn og ætlar sér stóra
hluti. Menn hætta líka alveg í flokkastandinu,
Svanur Kristjánsson hættir í Alþýðubandalag-
inu, seinna hættir Jóhannes Gunnarsson líka en
heldur áfram að vera í Birtingu og var svo um
fleiri. Nokkuð löngu áður en þetta gerðist hafði
Birgir Árnason yfirgefið Alþýðubandalagið og
gengið í Alþýðuflokkinn, en hann er frændi
Jóns Sigurðssonar, iðnaðarráðherra - og líkt og
svo margir Alþýðuflokksmenn þá endar hann í
utanríkisþjónustunni. Gunnlaugur Júlíusson
sem var atkvæðamikill í Birtingu fer hinsvegar
yfir á ABR-vænginn og er nú formaður þess fé-
lags. Nýjasta dæmið er að Birtingarmaðurinn
Einar Karl Harldsson var gerður að fram-
kvæmdastjóra Alþýðubandalagsins. Það var
stutt milli kosninga, eitt ár. Og þeir sem voru
nýkomnir í Alþýðuflokkinn af eyðimerkur-
kynslóðinni einhenda sér í prófkjörsframboð
með litlum árangri. Þar má nefna Valgerði
Gunnarsdóttur og Ragnheiði Davíðsdóttur. I
prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík voru Jón
Baldvin og Jóhanna Sigurðardóttir örugg með
efstu sætin. Össur og Pröstur stefndu á þriðja
sætið. Flóttinn úr Alþýðubandalaginu nær há-
marki.
Jón Baldvin
Hannibalsson:
Vonda stjúpan?
Um sumarið og haustið 1990 gengu
200-300 manns í Alþýðuflokkinn,
flestir í Reykjavík. Ekki allt Al-
þýðubandalagsmenn en mest
ungt fólk. Hin óflokksbundna
Ólína gengur einnig í flokkinn. Það kitlaði
margan Alþýðuflokksmanninn að ef til vill væri
flokkurinn orðinn að sameiningartákni vinstri
manna. En Össur og Pröstur börðust. Það var
álitið svo að ef Þröstur yrði ofaná kæmi Guð-
mundur J. Guðmundsson inní flokkinn og tæki
örugglega marga með sér. En Össur varð
hlutskarpari og Jakanum er ekki hlýtt til Össur-
ar og straumurinn til Alþýðuflokksins stöðvast
af þessari og öðrum ástæðum. Um haustið er
flokksþing Alþýðuflokksins haldið og var það
með fjörugustu þingum í manna minnum. Eyði-
merkurkynslóðin er farin að hafa áhrif á hlut-
ina og færir fjör í um-
ræðuna. Kynslóðin er
opin fyrir nýjungum.
Henni lýst ekkert illa á
frjálst markaðshagkerfi
eða einkavæðingu inn-
an vissra marka og hún
vill opna á hina ýmsu
möguleika í alþjóðleg-
um viðskiptum, hún er
höll undir veiðileyfa-
gjald og uppstokkun í
landbúnaðarkerfinu.
Það er því ekki nema
Ólafur Ragnar
Grímsson: Fóstri
kynslóðarinnar
sem nú er í klípu.
von að stór hluti kynslóðarinnar hafi verið til-
búinn til að setjast að í Alþýðuflokknum og
hafi jafnvel talið sig vera komin með fyrir-
heitna landið í augsýn. En kynslóðin vill líka
jöfnuð í þjóðfélaginu og hún vill tryggja vel-
ferðarkerfið. Þar slær í brýnu. Fyrir glettni
kosningarlaganna kemst Össur á þing vorið
1991 en ekki til dæmis Jón Sæmundur Sigur-
jónsson. Þá hefst alveg nýtt stig í eyðimerkur-
göngunni. Össur var sá eini af flóttaliðinu sem
varð eitthvað ágegnt innan Alþýðuflokksins ef
undan er skilinn Þröstur sem var gerður að að-
stoðarmanni og formanni í tvíhöfða sjávarút-
vegsnefndinni. Össur er nýkominn í flokkinn
en lendir strax í forystu andstöðunnar við
myndun ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Nei,
hér var ekki verið að horfa af Sinaí-fjalli inn til
fyrirheitnalandsins. Heldur í þveröfuga átt. En
menn geta ekki endalaust hlaupið á milli
flokka. Við tekur sumarið 1991 með viðeigandi
svartsýnisspám um efnahagshorfur og ríkis-
| 5iurt é
íwsrtlfyw afe
^ Æ
r r\ I 1
stjórnin situr sveitt við að smíða fjárlagafrum-
varp. Þingflokkur Alþýðuflokksins er klofinn í
afstöðu til efnahagsmálanna. Þar er Össur í
klípu. Hann var gerður að þingflokksformanni
og er í þeirri einkennilegu aðstöðu að leiða
andófið en eiga á sama tíma að halda þing-
flokknum saman og stýra honum. En Össur og
þau Gunnlaugur Stefánsson, Sigbjörn Gunnars-
son og Rannveig Guðmundsdóttir eiga sér
bakhjarl í einum ráðherra, Jóhönnu Sigurðar-
dóttir. Þannig er hinn tíu manna þingflokkur
klofinn nákvæmlega í tvennt. Þegar líður að
hausti 1991 kveður Jóhanna uppúr með það að
hún geti ekki stutt þessar hugmyndir að fjár-
lagafrumvarpi. Henni finnst of langt gengið í
niðurskurði á velferðinni. Össur og hans fólk
mótmælir hástöfum hugmyndum um skólagjöld
á framhaldsskóla og háskóla. Eftir hið háværa
framhald á bls. 92
Svart á hvítu: Björn
Jónasson, forkólfur
þess fyrirtækis, var
einn helsti
stuðningsmaður
Ólafs Ragnars
Grímssonar, í hópi
framsækinna ungra
vinstri manna.
Ólafur launaðl
honum stuðninginn
með því að láta
ríkið fá 25 milljóna
króna veð gegn
skattaskuld í
gagnabanka sem
síðar reyndist
einksis virði.
18 HEIMSMYND