Heimsmynd - 01.04.1992, Side 28
smáfréttir
HÁLF ÖLD HILDIBERGS
SAMKVÆMISLIFIÐ
Hildiberg og
vimr.
Baldvin
Jónsson,
„besti
ræðumaður
kvöldsins “ á
tali við
Guðlaug
Bergmann og
Guðrún konu
hans.
immtugsafmæli Jóns Hildibergs var hald-
ið með pompi og prakt í norðursal Hótels Is-
lands. Mikill fjöldi var þarna samankominn
til að samfagna Jóni, sem er vel kynntur í vissum
hópum skemmtanabransans. Hann hefur unnið mik-
ið fyrir Ólaf
Laufdal í ár-
anna rás, Ingvar
Karlsson og
eitthvað hefur
hann verið að
þvælast fyrir
Herluf Clau-
sen.
Hófið hófst
með því að skál-
að var í freyði-
víni. Kokkurinn
hafði matreitt
pottrétt, sem allir
gátu gengið í og
var vel veitt af
fljótandi veigum. Nokkrir vina Jóns héldu skemmti-
legar tölur þar á meðal Baidvin Jónsson út-
varpsstjóri Aðalstöðvarinnar og var hans ræða áber-
andi best. Með Baldvini var mætt allt starfslið Að-
alstöðvarinnar þar á meðal Þuríður
Sigurðardóttir söngkona sem söng fyrir afmælis-
barnið. Allir skörtuðu
sínu fínasta pússi. Þarna
var einn stærsti áfengis-
innflytjandi bæjarins,
Ingvar Karlsson ásamt
sínu starfsfólki. Einnig
voru þarna flestir starfs-
menn Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur. Oddur í
Kjaliaranum heilsaði
upp á afmælisbarnið.
Hermína og Lóló
voru mættar í sínu fín-
asta pússi og Pétur
Kristjánsson tónlistarmaður sem einnig tróð upp.
Stefán blómasali var að sjálfsögðu á svæðinu,
Björgvin Halldórsson
söngvari og frú, Björn Em-
ilsson hjá Sjónvarpinu og
Ragna Fossberg förðun-
armeistari voru á staðnum,
sem og Magnús Ketils-
son og Herluf Clausen. Ól-
afur Laufdal, aldagamall vin-
ur Jóns Hildibergs var þarna
mættur ásamt Kristínu konu
sinni og gat ég ekki séð að
hann væri neitt beygður þrátt
fyrir neikvæða blaðaumfjöll-
un og áföll á síðustu misserum. Ólafur Laufdal lét
opna á milli sala og bauð gestum að fylgjast með
sýningunni Aftur til fortíðar og þar tróðu hinir og
þessir upp auk Þuríðar og Péturs til heiðurs Jóni
Hildiberg. Hófið stóð langt fram á nótt og skapaðist
mikil stemmning.B
Ólafur Laufdal og Kristín kona
hans.
á nœstunni
RITA GENGUR MENNTAVEGINN
ver man ekki eftir þessari
frábæru bresku gaman-
mynd með Michael Ca-
ine og Julie Walters í aðal-
hlutverkum. Þjóðleikhúsið ætlar
að setja leikrit þetta á svið á næst-
unni með Tinnu Gunnlaugs-
dóttur og Arnari Jónssyni í
aðalhlutverkum. Upphaflega stóð
til að sýna verkið á litla sviðinu en
þar sem ekkert lát er á aðsókninni
á Kœru Jelenu, var ákveðið að
setja Ritu fyrst um sinn á svið ut-
an Reykjavíkur. Leikstjóri er
María Kristjánsdóttir.B
BUGSY
emur í bíó bráðlega. Og loksins, loksins fáum
við að sjá Warren Beatty njóta sín á tjaldinu.
Gamli kvennabósinn stefnir ekki á Hvíta húsið
eins og rithöfundurinn Norman Mailer var að ýja að
í tímaritsviðtali við hann á síðasta ári. Reyndar fer eng-
inn kvennabósi í Hvíta Húsið nema ef Bill Clinton (sá
best kvænti af öllum sem í framboði eru?) skyldi vera
ævinlega stimplaður eftir sín hliðarspor. Það er að
minnsta kosti ljóst að það verður ekki piparsveinn sem
sest þar að nú þegar þegar Bob Kerry og Jerry
Brown eru úr sögunni. Rétt fyrir þá að snúa sér aftur
að Debru Winger og Lindu Ronstadt (sumir pólit-
rkusar í Ameríku hafa rosalegan sjens). Forystufruma
(svo gripið sé til orðalags Friðriks Þórs Friðrikssonar)
piparsveina frá Hollywood til Istanbul, Warren Beatty,
er nýkvæntur mótleikkonu sinni í Bugsy, Annette
Bening, og hefur eignast sitt fyrsta barn. Burtséð frá
því þykir Bugsy í leikstjórn Barry Levinson
skemmtilegasta og mest spennandi myndin, sem gerð
var 1991. Beatty þykir sýna afburða góðan leik og allir
hans bestu eiginleikar eru sagðir njóta sín: Strákslegur
sjarminn, glæsimennskan, háðið og kraftur-
inn. Það er gott að halda sig við það sem
maður kann og gera það vel.B
28 HEIMSMYND