Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 36
HEILSA
Til hvers að fasta?
Sumir fasta til að grenna sig, aðrir til að
hreinsa líkama sinn af óæskilegum efnasam-
böndum, eða til að auka lífslíkur sínar. Menn
fasta í trúarlegum tilgangi eða til að öðlast þá
andlegu vellíðan sem því fylgir að sigrast á
líkamlegum þörfum eins og hungri. Það er reynsla
flestra sem hafa fastað um nokkurra daga, eða jafnvel
nokkurra vikna skeið að upplifa ákveðið andlegt frelsi
og margir telja hugsun sína einnig verða skýrari og
HAFA VERÐUR 1HUGA
Dasta í takmarkaðan tíma, samkvæmt faglegum ráðlegg-
ingum, þegar hvorki andlegt né líkamlegt álag hvflir á við-
komandi er að mati flestra sérfræðinga hættulaus. Það eru
þó nokkur atriði sem vert er að hafa í huga. 1. Enginn nema sá
sem er líkamlega heilbrigður ætti að fasta. Að vera án matar get-
ur til dæmis haft mjög slæmar afleiðingar fyrir þá sem hafa náð
sér í einhverja umgangspest eða eru á lyfjum, þá ættu sykursjúkir
og barnshafandi konur alls ekki að fasta. 2. Enginn ætti að fasta
lengur en í tuttugu og fjóra tíma nema undir handleiðslu sérfræð-
inga. 3. Líkamleg og andleg áreynsla krefst orku, og hana fær lík-
aminn úr fæðunni. Ef ætlunin er að fasta ætti því að reyna að
koma málum þannig fyrir að það sé gert á degi þegar lítið liggur
fyrir, helst á frídegi. 4. Það er líka nauðsynlegt að undirbúa föstu
með því að borða létta fæðu einn til tvo daga á undan. Að borða
á sig gat í þeim tilgangi að kveðja hið ljúfa líf gerir líkamanum
aðeins erfitt fyrir því þá verða umskiptin svo skörp, auk þess sem
komið hefur á daginn að fólk finnur mun meira fyrir hungri ef
þau borðar mikið daginn fyrir föstu. J. Þennan tíma er einnig
nauðsynlegt að drekka mikinn vökva til að koma í veg fyrir of-
þornun líkamans. Þeir sem hafa vanið sig á að drekka mikið af
koffeíndrykkjum, kaffi eða kóladrykkjum, ættu að nota viku til
að draga smátt og smátt úr neyslunni, svo fráhvarfseinkenni af
völdum þess geri ekki óþyrmilega vart við sig þegar byrjað er að
fasta. 6. Það verður einnig að fara mjög varlega daginn sem hætt
er. Að borða þunga máltíð strax eftir föstu getur valdið vanlíðan
og jafnvel verið hættulegt, þess í stað er æskilegt að fá sér létta
máltíð, fitusnauða en kolvetnaríka. Múslimar sem fasta reglulega
af trúarástæðum, rjúfa jafnan föstuna með því að borða döðlu og
drekka dálítið saltvatn.B
einnig mjög mismunandi hversu mikinn svefn fólk þarf
meðan á föstu stendur. Sumir sofa tólf tíma meðan aðr-
ir fara allt niður í þriggja tíma svefn á sólarhring. Hins
vegar geta allir verið sammála um að dagurinn nýtist
þeim sem fastar betur því sá tími sem áður fór í að nær-
ast, hátt í fjórir tímar á dag, nýtist nú til annarra verka.
Yfirleitt fastar fólk þó ekki algjörlega líkt og gert er
samkvæmt trúarbrögðum Gyðinga og Islam heldur
neytir ýmissa grænmetis og ávaxtadrykkja yfir daginn.
Þetta gerir fólki auðveldara með að halda uppi hefð-
bundnu lífsmynstri sínu, því þegar sykur í blóði verður
mjög lágur getur það fengið sér ávaxtasafa sem virkar
eins og orkuinnspýting.
Föstur hafa komist í tísku með vissu millibili síðustu
áratugina. Léttmjólkur og bananafasta var til dæmis æði
vinsæl um síðustu aldamót. Við upphaf áttunda áratug-
arins tóku uppskriftir af kúrum sem byggðust á að
sneiða hjá eggjahvítuefni að ryðja sér rúms. Kílóin
runnu af eins og ráð hafði verið fyrir gert, en mörgum
brá í brún þegar í ljós kom að kúrarnir höfðu hættuleg
áhrif á hjartað og gátu reynst banvænir. Þeir fljótandi
kúrar sem nú eru í boði eru yfirleitt mun betur samsett-
ir og öruggari en þeir fyrstu. Þess er jafnan gætt að þeir
innihaldi nauðsynleg vítamín og bætiefni og oftast er
gert ráð fyrir að viðkomandi borði eina máltíð á dag.
HENTAR FASTA ÞÉR?
amkvæmt fornri indverskri heilsufræði má skipta fólki í
þrjá ólíka fokka eftir líkamsbyggingu og skapgerð. í fyrsta
lagi er það, Kapha sem útleggst, vantspersónuleikinn.
Þennan hóp skipa þeir sem hafa yfirvegað fas, hæg efnaskipti, eru
hávaxnir og ættu samkvæmt kenningunni að geta fastað á vatni án
vandkvæða. Þá er það Vata eða vindpersónuleikinn, sveimhugar,
með hröð efnaskipti og sterkbyggðir. Þeir sem falla í þennan flokk
eiga almennt mjög erfitt með að fasta. Þriðji hópurinn er, Pitta, eld-
hugarnir. Kraftmiklið og blóðheitt fólk, yfirleitt meðalhátt og hefur
meðalhröð efnaskipti, þessu fólki henta hóflegar föstur. Flestir eiga
auðvelt með að finna sér stað í einhverjum þessara hópa og þeir
geta gefið vísbendingar um hvers vegna sumir eiga mun auðveldara
með að vera án fæðu í lengri tíma en aðrir.B
markvissari. Grísku heimspekingarnir, Plató og Sókra-
tes, munu til dæmis hafa haft það fyrir reglu að fasta tíu
daga áður en þeir hófust handa við nýtt ritverk. Föstur
eru umdeildar og var-
Fasta hefur þekkst frá örófi alda, öll höfum við lesið
um Móse sem var matarlaus í fjörutíu daga á Sinaifjalli
meðan hann beið þess að Guð léti honum í té boðorðin
tíu. Mörgum kann að
"O
(0
hugaverðar nema undir
handleiðslu þeirra sem
þekkja til málanna.
Áhrif föstu eru ekki að-
eins líkamleg. Margir telja
sig öðlast aukið andlegt
og líkamlegt þrek við að
fasta og sumir ganga svo
langt að líkja andlegri líð-
an sinni við vímu. Þeir eru
einnig til sem upplifa ýmis
óþægileg einkenni eftir að
hafa verið matarlausir um
tíma eins og þreytu, þung-
lyndi og kvíði. Það er
36 HEIMSMYND
HELGA MOGENSEN
jógaleiðbeinandi
yrstu tvo til þrjá dagana finn ég fyrir hungri,
en þegar líður á föstuna tekur við léttleika-
tilfinning og vellíðan. Mér finnst ég verða
hrein að innan við að fasta, að vissu leyti má líkja
því við þá tilfinningu sem maður fær þegar maður
hefur hreinsað húsið sitt hátt og lágt. Annað sem
gerist er að fólk finnur hvernig líkamlegar og and-
legar þarfir eru oft ekki samstíga því líkaminn getur
verið ánægður meðan hugann langar í lax. Hugurinn
er eins og trylltur ffll, það er lang erfiðast að takast á
við hann. Annars finnst mér mikilvægt að gera ekki
hlutina þannig að gangi út í öfgar, það verður að
fara varlega í þessum efnum sem öðrum. Almennt
get ég sagt að mér finnst fasta mannbætandi því hún
hre.insar hæ.ði hupa n? lfkama.“
finnast sem slíkt mein-
lætalíf gangi þvert gegn
náttúrulögmálunum, enda
þarf maðurinn þá orku
sem hann fær úr fæðunni
til að lifa. Að leika sér ör-
lítið við dauðann kann að
kitla ævintýraþrá ein-
hverra og því er ekki að
neita að fasta getur brotið
upp tilbreytingarleysi
hversdagsins og getur einn-
ig verið ágæt byijun ef ætl-
unin er að stokka upp
gamlar matarvenjur.B