Heimsmynd - 01.04.1992, Page 40

Heimsmynd - 01.04.1992, Page 40
TÍSKA BUXUR í GÓÐU LAGI Coco Chanel hefði ekki orðið hrifin af því hvernig karlar í tískuheiminum hringsnúa kvenþjóðinni. Nú eru síð pils að halda inn- reið sína aftur, loksins þegar konur hafa sæst við þau stuttu. Coco hikaði ekki við að ganga í síðbuxum fyrir sjötíu árum þegar stallsystur hennar kúguðust í korselettum og hún hefði ugglaust haft gaman af því að sjá hvað buxnatískan er orðin glæsileg. Pökk sé hönnuðum á borð við Ralph Lauren, Calvin Klein og Giorgio Armani, sem kunna að hanna buxnadragtir fyrir konur. Pessir hönnuðir hófu feril sinn í fatnaði fyrir karlmenn og kunna því öðrum frem- ur að aðlaga upprunalegu hugmyndina gerólíku vaxta- lagi kvenna. Pegar þeir hafa lagt línuna er engin hætta á öðru en þessi snið nái almennum vinsældum. í megin- dráttum eru buxnasniðin nú mátulega víð, efnin falla vel og fylgja hreyfingum eftir. Jakkinn fellur einnig vel að búknum og nær niður á mjaðmir. Buxnadragtin er loksins orðin jafningi jakkafatanna. Pað er ekkert karlmannlegt við þessar dragtir. Pessi hönnun er þaulhugsuð og útkoma langrar þróunar. Hin næstum fullkomna buxnadragt: Nútímakonan vill buxnadragt sem er sniðin að hennar þörfum og hennar líkama, ólíkt buxnadrögtum í upphafi ________s áttunda áratugar. JCalvin Klein er hönnuður dragtarinnar a '■ til vinstri og Giorgio jj Armani, þeirrar að i| ofan. Coco Chanel, ein m ■ Wz framsýnasta kona JM fi -5 tískunnar, klæddist buxum fyrir sjötíu lÉjSflnBI áru m IV þegar kynsystur w í hennar || , ■ngl' kúguðust í j korse- ÁÁ lettum. Buxnadragtir þessar eru sniðnar fyrir konur í öllum stöð- um, ekkert síður í toppstöðum. Þetta er í raun hentugasti klæðnaðurinn fyrir nútímakonuna. Klæðilegur, kvenlegur, ákveðinn en um leið þokkafullur. Buxnadragt er í raun klæðnaður þeirrar konu sem er komin alla leið. Hún þarf ekki að aðskilja sig frá körlunum, með pilsdragt, og þarf ekki að vera eins og þeir, í jakkafötum. Giorgio Armani, segir að konur eigi ekki lengur stöð- ugt að velta fyrir sér hvernig þær eigi að vera til fara. „Eg hrífst af kvenfólki sem þorir að vera það sjálft, konum sem eru fyrst persónuleikar og síðan kvenleg- ar.“ Áberandi kvenþokki passar ekki inn á skrifstofur - alla vega ekki hjá konum, sem vilja ráða ferðinni sjálf- ar. Armani er ekkert hrifinn af of kvenlegum fatnaði. „Kvenleiki getur birst á svo marga vegu,“ segir hann. „Þröngur jakki og stutt pils gera konur ekkert kvenlegri. Kona getur verið alveg jafn kvenleg í buxnadragt." En af hverju ganga ekki fleiri konur í buxum? Hér áður fyrr gerðu þær það ekki til að þóknast karlmönn- unum. Mörgum karlmönnum fannst það ögrun við sig að sjá konur í buxum í vinnunni. Enda báru upphaflegu buxnadragtirnar, hannaðar fyrir konur í atvinnulífinu, sterkan keim af jakkafötum karla. Yves Saint Laurent reið á vaðið í takt við tíðar- andann þegar kvenfrelsis- mW W m baráttan var að komast á VI | skrið á sjöunda áratugnum. ■ 11 fl | III & Pá var sett samasemmerki á milli jafnréttis, valda og áhrifa og þess að konur færu í fótspor karla, tileinkuðu sér sem mest af þeirra háttum. Nú er öldin önnur. Pað er tæp öld síðan að tísku- kóngurinn Poiret kynnti harem-buxur fyrir fínum París- ardömum. Tíu árum síðar fór Coco Chanel alla leið og gekk í víðum karlmannabuxum. Marilyn Dietrich og Katherine Hepburn ollu fjaðrafoki í Hollywood þegar þær fóru að ganga um í jakkafötum. Er það tilviljun að við munum helst eftir þeim? Garbo, sem hikaði ekki við að ganga í víðum karlmannafrakka með hatt í of- análag. Petta voru konur með sjálfsöryggið í lagi. En svo hikandi voru allar hinar að buxurnar voru að- eins notaðar heima við næstu hálfa öldina. Þegar kon- urnar geystust síðan út á markaðinn, ekki lengur sem einkaritarar eða hjálparhellur, heldur í stjórnunarstöð- ur á níunda áratugnum, klæddust þær hverju? Pilsum. Litla pilsdragtin varð einkennisbúningur konunnar í at- vinnulífinu. Það er víða óskráð regla að konur séu ekki í buxum á vinnustað. Islenskar alþingiskonur sjást aldrei í buxum. I Bretlandi er kvenkyns lögfræðingum beinlínis bannað að klæðast öðru en pilsi við réttarhöld. Konur í læknastétt klæðast víðast pilsum innan undir hvítu sloppunum og þykir það óþægilegt. Kvenkyns læknar á Islandi hika þó ekkert við að vera í buxum, klossum og öllu tilheyrandi og njóta ekkert minni trausts fyrir vikið. Konur í stjórnunarstöðum í viðskiptalífinu eru einnig vel flestar í pilsdrögtum. Ein skýringin á þessu er sú að konum finnist þær hreinlega líta betur út í pilsdragt, það sé meira smart. Hvaða konur ganga þá í buxum? Samkvæmt Vogue eru það konur sem reka eigin fyrirtæki eða eru í skap- andi störfum. Þar liggur hundurinn grafinn. í buxum? Samkvæmt Vogue eru það konur sem reka eigin fyrir- tæki eða eru í skapandi störfum.B

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.