Heimsmynd - 01.04.1992, Page 43

Heimsmynd - 01.04.1992, Page 43
eftir KRISTÍNU STEFÁNSDÓTTUR GULL OG GLÆSILEIKI háannatími samkvæmislífs er næstum geng- inn um garð og tískan í samkvæmisklæðn- aði hefur sjaldan verið glæsilegri eins og merkja má af pallíettukjólum, gylltum efnum, satíni, bróderingum og fleiru sem setur mark sitt á kvöldklæðnað kvenna. Vegna breyttra áherslna í kvöldtískunni hefur förðunin orðið djarfari. Aherslan er á sterkari liti í augnskuggum þar sem eru notaðir gylltir, svartir, grænir, fjólubleikir litir á augnlokin (No Name býður viðskiptavinum upp á nokkra liti í boxi sem þeir geta sjálfir valið saman. Chanel er með nokkrar útgáfur af fjórum litum saman nr.91). Fölsku augnhárin eru enn við lýði en þau á að- eins að nota á helming augnloksins, ytri kantinn, til að gera þau kattarleg og tælandi! (Maybelline er með eðli- leg og góð gerviaugnhár, Flair 01) Eye-liner-línan er áberandi svört en hana á setja með svörtum augn- skugga ekki nota þann sem er í fljótandi formi. Kinna- liturinn á að vera lítið áberandi eins og kom fram á tískusýningum í París nýverið var fyrirsætum bannað að nota kinnalit - Pas blush var krotað á veggina í bún- ingsherbergi þeirra til áminningar. Mælt er með ljósum kinnalit sem tónar við húðlitinn (Dior 849 er brúnrauð- ur litur sem er alveg í stíl við þennan farða). Varalitir við kvöldförðun eru í mildum tónum, brúnbleikir, rauð- brúnir og gylltur glans settur yfir (Gu- erlain nr. 113). Með varalitablýanti, sem er einum tóni dekkri en varaliturinn sjálfur, eru útlín- ur varanna dregnar og þær gerðar eins breiðar og hægt er. Punkturinn yfir i-ið í kvöldförðun er gamli fegurðarbletturinn á la Cindy Crawford og Marilyn Mon- roe. Best er að reyna að draga fram smáblett ef hann er til staðar ef ekki, þá setjið hann þar sem ykkur sýn- íst. Óburstaðar, þykkar augabrúnir 01 dökkur augn- skuggi á of stóru svæði Breið kringum augað í áberandi lit Allt of áberandi kinnalitur Of bleikur farði Klesstur maskari Farði til að bylja bauga (conceal- er) í of Ijósum lit og rangt staðsettur Blýantur passar ekki við varalit Varalitur of skær og Ekki festast í gamla farinu Það er ekki óalgengt að glæsilegar kon- ur festist í sama farinu þegar kemur að andlitsförðun og hárgreiðslu. Pá eru þær ófáar sem virðast alls ekkert hugsa um þessa hluti. Hættan við að staðna í gömlu förðuninni er sú að aldurinn segi meira til sín en nauðsyn- legt er. Konur geta ekki notað eins mikinn farða með aldrinum og þegar þær voru yngri. Þess vegna er nauðsynlegt að fylgjast vel með þróuninni í andlitsfarða rétt eins tískunni. Núna er svo mikið í tísku að breyta um hárlit og sé það gert verður breytt förðun að fylgja í kjölfarið. Fyrir þær sem hafa staðnað í andlitsförðun má benda á mjög einfaldar leiðir til að breyta til. Notið farða sem næst ykkar eigin húðlit. Notið laust, litlaust púður yfir til þess að fá matta áferð. Notið milda augnskugga, brúna og rauðbrúna að degi til, svarbrúna og brúna maskara og skerpið augun með dökkbrúnum augn- skugga eða augnblýanti. Kinnalitur á að vera mjög mildur og á eingöngu að nota til að fá smá skyggingu undir kinnbein. Paö er nauðsynlegt að nota varalita- blýant að degi sem kveldi en að degi til á hann að vera í mildum lit. Varaliturinn á að vera mattur út í bleikrautt og rauðbrúnt í sama tón og varalitablýant- urinn þannig að skilin sjáist ekki.B HEIMSMYND 43

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.