Heimsmynd - 01.04.1992, Page 61
Ólafur Jóhann Ólafsson,
forstjórl Sony f
Bandaríkjunum. Skjótur
starfsframi hans erlendis
hefur vakið mikla athygli
heima fyrir og
sömuleiðis ritsmíðar
hans. Nýjast skáldsagan
Fyrirgefníngs syndanna
var ein af söluhæstu
bókunum fyrir síðustu
jól.
HVAÐ VARÐ UM
KYNLÍFSBYLTINGUNA?
Á áttunda áratugnum laust kynlífsbylting-
unni niöur eins og þrumu úr heiðskíru lofti.
Tekið var að líta á kynlíf sem einn allsherjar
lífselexír sem átti að breyta heiminum. Kynlíf
varð ákveðnum hópum nánast trúarbrögð og
Helgi Þorgils Friðjónsson
listmálari. Verk hans hafa
vakið mikla athygli
erlendis og eru orðin
eftirsótt söluvara. Þau
þykja óvenjuleg og
myndefnið oft á tíðum
ævintýralegt.
fræðimenn tóku jafnvel að skrifa
bækur þar sem þeir útlistuðu gildi
þess til að koma á alheimsfriði og
auknum skilningi manna í milli.
Bítillinn John Lennon og kona hans
Yoko Ono lögðu sinn skerf til mál-
anna þegar þau dvöldu í rúminu í
Hilmar Órn Hilmarsson tónlistamaður.
Hann vakti athygli þegar honum voru
veitt Felixverðlaunin fyrir tónlist við
myndina Börn náttúrunnar í fyrra en
hafði um árabil unnið að
tónlistarsköpun án þess að vekja
almenna athygli.
heila viku. Naktir líkamar voru ekki lengur
feimnismál, enda óspart notaðir til að krydda
upp á leikhúsverk þessa tíma líkt og gert var
þegar Hárið var sýnt hér á landi í leikstjórn
Brynju Benediktsdóttur. Þegar leið á áttunda áratug-
f/
Egill Ólafsson söngvari og leikari.
Hann hefur verið einn dáðasti
söngvari landsins síðustu tvo
áratugina og farið með hlutverk í
mörgum kvikmyndum. Egill samdi
mörg kunnustu lög Spilverks
þjóðanna, Stuðmanna og
Þursaflokksins.
inn fór byltingin að teygja anga sína í aðrar átt-
ir og klámiðnaðurinn tók að blómstra fyrir al-
vöru. Slagorð hippanna, frjálst kynlíf, var notað til
að markaðsetja þann gífurlega fjölda klámrita
sem kom á markaöinn á þessum tíma. Allan
áttunda áratuginn og bróðurhluta þess níunda
stundaði fólk tiltölulega óhindrað og áhyggju-
laust kynlíf og tók þátt í hvers kyns tilraunum
á því sviði. Eyðniveiran batt síðan skyndilegan
Vilhjálmur Egilsson þingmaður.
Hann hefur hlotið skjótan frama í
stjórnmálum og viðskiptalífi.
Vilhjálmur hefur verið einn
ötulasti talsmaður frjálshyggju hér
á landl.
endi á kynlífsbyltinguna þegar mönnum varð
Ijóst að þessi vágestur fór ekki í manngreinar-
álit. Nú bíða menn þess að vísindamönnum
takist að finna bóluefni við veirunni svo að
hægt verði að taka upp þráðinn að nýju.
HEIMSMYND 61