Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 63

Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 63
Jón Óttar Ragnarsson matvælafræðingur. Jón Óttar var einn af stofnendum Stöðvar 2. Auk þess hefur hann verið aðsópsmikill dagskrárgerðarmaður, skrlfaði skáldsögur og bækur um næringarfræði. Hann stundar nú nám í kvikmyndagerð í Bandaríkjunum. Þórarinn Eldjárn rithöfundur. Hann varð fyrst þekktur þegar hann ásamt féíögum sfnum þeim Hrafni Gunnlaugssyni og Davíð Oddssyni stjórnaði grínþættinum Útvarp Matthildur í Ríkisútvarpinu. Eftir hann liggja kvæði og smásögur en hann hefur einnig gefið út skáldsöguna Skuggabox. Ágústa Guðmundsdóttlr, dósent við Háskóla íslands. Ágústa lauk stúdentsprófi frá Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð árlð 1976, BS. gráðu í matvælafræðl fjórum árum seinna og doktorsgráðu árið 1988. Martha Bjarnadóttir verslunarmaður. Hún hefur um árabil reklð einhverjar vinsælustu tískuvöruverslanlr borgarlnnar og þykir sjálf jafnan glæsileg tll fara. Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs. Hann hefurverið orðaður við mörg veigamikil embætti í íslensku atvinnulífi enda nýtur hann vinsælda og trausts. Enn sem komlð er hefur hann þó sýnt öllum slíkum þreifingum takmarkaðan áhuga. SEINNA BLÓMASKEIÐIÐ Þegar mæóurnar eru farnar að laða að vini sona sinna er skörin tekin að færast upp í bekkinn, myndu einhverjir segja, en það er engu að síður oft staðreyndin. Konur í dag eiga sitt annað blómaskeið um og upp úr fer- tugu. Þær hafa náð tökum á lífinu, tileinkað sér fágaða framkomu, eru sjóaðar í sam- kvæmislífinu, glæsilegar og oft á tíðum fjár- hagslega sjálfstæðar. Þær hafa ekki fallið í þá gryfju, líkt og mæður þeirra gerðu, að telja sér trú um að ekkert sé eðlilegra en að bæta á sig kílóum með árunum, heldur stunda lík- amsrækt, fjallgöngur og skíðaíþróttir af mikl- um móð. Það er einnig af sem áður var að konur teldu sig heimsmálin og stjórnmála- þref litlu varða heldur fylgjast þær vel með gangi mála og geta veriö hafssjór fróðleiks og sérlega ánægjulegar að eiga við þær skoð- anaskipti því þær hafa til að bera umburðar- lyndi sem ungir og reynsluminni menn kunna að meta. Það sem ku gera þær hvað mest spennandi í augum þeirra er hversu fjarlægur draumurinn um nánari kynni er. Það má vera að þessi kona tylli hönd sinni létt á lær unga mannsins en sjaldan leitar höndin lengra. Þótt kvennabaráttan hafi ekki skilað nema takmörkuðum árangri á ýmsum sviðum má benda á að hér er að verða veruleg breyting á. Breyting sem er fyrst og fremst konum sjálfum að þakka og þeirri hugarfarsbreyt- ingu sem hefur orðið þeirra á meðal. Þær hafa orðið sjálfsöruggari og leggja í auknum mæli rækt við sjálfar sig. Frekar en að baka kaupa þær kökur með kaffinu og í stað þess að strauja af öllu heimilisfólkinu nota þær tímann til að hlúa að eigin hugðarefnum. HEIMSMYND 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.