Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 67
Thor Vilhjalmsson
rithöfundur. Hann hlaut
bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1988
fyrir skáldsöguna
Grámosinn glóir.
Ritstíll Thors þykir mjög
sérstakur og hefur verið
talinn einkennast af
orðgnótt og íburðarmiklum
stíl.
Davíð Scheving Thorsteinsson,
iðnrekandi. Hann hefur verið
óþreytandi við að markaðssetja nýjar
vörur, en þekktastar eru vafalaust
tilraunir hans til að selja vatn á
dósum úr landi.
Svava Jakobsdóttir, rithöfundur. Hún vakti þegar athygli með fyrstu
ritverkum sínum sem þóttu nýstárleg og gagnrýnin á stöðu kvenna.
Þessi verk hennar eru
talin hafa brotið blað í
íslenskum
bókmenntum. Svava er
einnig talin vera ein af
fremstu
leikritahöfundum
þjóðarinnar.
HVERT FER FÓLKIÐ?
Skemmtistaöinn Casablanca sækir yngsti
hópur næturlífsgestanna. Reyndar hafa flest-
ir kynnst innviðum staðarinns nokkuð vel áð-
ur en tvítugsaldri er náð en upp úr tuttugu og
fimm ára aldri tekur fólk að leita annað.
Næsti áfangastaður, með
viðkomu á knæpum á borð HQTEL ^LÁND
við Glaumbar, L.A. Café og Tvo vini, er Ingólfs Café,
sem er hvoru tveggja í senn dansstaöur og
krá. Þar má finna ágæta
blöndu fólks milli tuttugu og
fimm og þrjátíu og fimm ára, en þá fer hópur-
inn að færa sig yfir á Ömmu Lú. Þar
má sjá fólk á öllum aldri, allt
niður í tvítugt, en að jafnaði eru
gestir þrjátíu ára og eldri í meirihluta. Þá er
alltaf viss hópur sem heldur tryggð við Leikhús-
kjallarann, en þar er gjarnan mikiö um leikara
og menntamenn. Þess á milli hittist svo fólk á
stöðum eins og Púlsinum, Café rémans og Tuttugu og
tveimur. Hótel ísland er stærsti
dansstaður landsins og þótt
víðar væri leitaö. Þar er jafnan húsfyllir en
staðinn sækir fólk á öllum
aldri og úr öllum stéttum. Sögu
og Mímisbar sækir fólk sem komið er um og yfir
fimmtugt og sömu sögu er að segja um
dansstaðinn Ártún þar sem leiknir eru bæði
gömlu og nýju dans-
arnir.
HEIMSMYND 67