Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 86
ómurinn í málinu gegn
William Kennedy Smith
síðastliðið haust urðu Patr-
iciu Bowman, sem kærði
hann fyrir nauðgun, slík
vonbrigði að hún ákvað að
koma fram á sjónarsviðið
og ræða við tvo þekkta fjöl-
miðlamenn, blaðamanninn
Dominick Dunne og frétta-
konuna Diane Sawyer.
Dunne hitti Patriciu á heim-
ili hennar í bænum Júpíter í Flórída
þremur dögum eftir dómsorðið.
Allt frá því að hún kærði Smith síðast-
liðið vor beindist athyglin miklu fremur
að honum en henni og hefðu stórblöðin
The Globe og The New York Times ekki
birt nafnið hennar hefðu fáir gefið henni
gaum þar til hún birtist í vitnastúkunni í
dómssal á Palm Beach í Flórída, benti á
ákærða um leið og hún sagði við verj-
anda hans: „Pessi maður nauðgaði mér.“
Akærði, unglæknirinn William Kenn-
edy Smith, er systursonur Johns F.
Kennedy fyrrum Bandaríkjaforseta og
Konan sem
kærði Kennedy
fyrir nauðgun
kemur fram á
sjónarsviðið
og segir í
viðtali við
Dominick
Dunne að auður
geti umsnúið
réttlæt-
inu . . .
SVARTUR
SIGUR
Roberts Kennedy dómsmálaráðherra og
Teds Kennedy öldungardeildarþing-
manns sem bar vitni við réttarhöldin.
Hann er af frægustu fjölskyldu Banda-
ríkjanna, af þriðju kynslóðinni sem nú
þegar á orðið fulltrúa í valdastöðum og í
samanburði við hann er Patricia Bowm-
an, stjúpdóttir stórforstjóra frá Ohio,
núll og nix í augum umheimsins.
Dómsorðið, ekki sekur, olli mörgum
vonbrigðum, einhverjum gleði en kom
engum á óvart. Á fyrsta degi réttarhald-
anna hafði dómarinn Mary Lupo meinað
þremur konum að bera vitni gegn Smith,
lækni, læknastúdent og laganema, en all-
ar þrjár kváðust hafa orðið fyrir kynferð-
islegri áreitni af hans hálfu á árunum
1983 til 1988. Það tók kviðdóminn röska
klukkustund að komast að niðurstöðu.
Réttarhöldunum var sjónvarpað og virtir
lögfræðingar komu daglega fram í fjöl-
miðlum og sögðu álit sitt á gangi mála.
Allt umstangið tengdist þeirri staðreynd
að Kennedyfjölskyldan var flækt í málið,
ein frægasta fjölskylda heims með auð,
sorgir og hneyksli í farteskinu. Svo virtist
sem Lupo dómari kæmist meira að segja
við þegar þessi goðsögn umlauk réttar-
William Kennedy Smith. Frægasta fjölskylda
Bandaríkjanna stóð að baki honum. „Eftir á
hafa þau barið hann til óbóta.“
Til vinstri myndin sem Annie Leibovitz tók af
Patriciu Bowman á Flórída ásamt lítilli dóttur
hennar.