Heimsmynd - 01.04.1992, Page 87

Heimsmynd - 01.04.1992, Page 87
salinn en múgur og margmenni safnaðist ætíð saman fyrir framan dómshúsið til að fylgjast með hinum frægu fjölskyldu- meðlimum streyma að. Þarna birtust þau, systurnar og bróðirinn, frændur og frænk- ur, samhent og sterk fjölskylda sem stóð að baki William Smith. Þau lýstu því yfir í tíma og ótíma að þau stæðu saman. „Þau munu standa með Willie gegnum þykkt og þunnt en berja hann til óbóta þegar þetta er yfirstaðið,“ sagði náinn kunningi fjölskyldunnar við blaðamann. Kennedy-systurnar voru mættar með andlit rist rúnum sorg- ar og sólbrúnku. Þær báru höfuðin hátt enda ýmsu vanar í ár- anna rás. Þær fylgdust með því í réttarsalnum þegar nákvæmar lýsingar á ofsafenginni framkomu hins unga frænda við nauðg- unina voru tíundaðar. Eunice Kennedy Shriver, hin sjötuga tengdamóðir Arnolds Schwartzeneggers, gekk fram fyrir blaðamenn einn morguninn og lýsti því yfir með sama radd- blænum og bróðir hennar forsetinn að hún stæði með Jean systur sinni. Hún lýsti því hvað Jean væri góð móðir og börnin hennar, þar með talinn William læknir, væru vel upp alin. Jean stóð brosandi við hlið hennar og Ethel, ekkja Roberts á bak við hana en hinn ákærði rétt hjá. Nítján meðlimir Kennedy-fjölskyldunnar voru mættir við réttarhöldin, þar á meðal bróðir hins ákærða og tvær stjúpsyst- ur, Ethel ekkja Roberts ásamt tveimur sonum sínum Robert og Michael, Patricia Lawford ekkja leikarans og þrjú af fjórum börnum hennar og John sonur for- setans. Jackie Kennedy On- assis lét ekki sjá sig og ekki heldur dóttir hennar Caro- line sem er lögfræðingur. Kennedy-fjölskyldan dvaldi ekki við á ættarsetr- inu þar sem nauðgunin átti að hafa átt sér stað heldur hjá vinum víðsvegar á svæð- inu. Aðeins hinn ákærði, lög- fræðingar hans og blaðafull- trúi dvöldu á óðalinu sem og Ted Kennedy þegar hann kom til að bera vitni. A hverju kvöldi safnaðist öll fjölskyldan saman yfir kvöld- verði þar og lagði á ráðin. Engin fjölskyldumeðlimur sást úti á lífinu, hvorki í samkvæmum né á fínum veitingastöðum á meðan á réttar- höldunum stóð. Þau gerðu í því að berast ekki á. Notuðu hvorki svartar límósínur né einkabflstjóra. Ráðsmaðurinn á ættarsetrinu ók þeim til og frá dómshúsinu í gömlum Mercury station-bfl. Ekkert þeirra var áberandi vel klætt og þau ítrek- uðu við verjanda Smiths, Roy Black, að tala ekki um Kenn- edysetrið heldur bara Kennedyhúsið. Til þeirra sást í kirkju á sunndudögum þar sem ljósmyndarar mynduðu William Smith krjúpandi á bæn. Skömmu síðar sat hann í vitnastúkunni og lýsti því hvernig Patricia hefði nuddað lim hans þar til hann fékk sáðfall. Á bak við hann í salnum sat Jesúítaprestur og einhver hafði orð á því að næsti leikur Kennedyanna yrði að aka Rose gömlu ættmóðurinni, 101 árs, inn í hjólastól. Sækjandinn í málinu, aðstoðarsaksóknari fylkisins, Moria Lasch, fertug að aldri, á að baki glæstan feril. Verjandinn, Roy Black, er þekktur lögfræðingur á Flórída og hefur varið snilld- arlega bæði morðingja og eiturlyfjasala. Hann fékk 250 þús- und dollara fyrir að verja Smith sem þykir ekki mjög há upp- hæð miðað við hvaða fjölskylda á í hlut en Black er sagður ekki hafa staðist mátið sökum frægðarinnar sem hann vissi að kæmi í kjölfarið. En það voru fleiri sem lögðu hönd á plóginn til að hjálpa Smith. Fimm einkaspæjarar unnu mánuðum sam- an við að grafa upp upplýsingar um fortíö Patriciu Bowman og vina hennar tveggja sem hún hringdi í frá Kennedysetrinu eftir atburðinn. Sameinuð stöndum vér! Eunice Schriver, ein Kennedy-systranna og tengdamóðir Arnolds Schwartzeneggers, ávarpar blaðamenn fyrir utan dómshúsið. Að baki hennar er Ethel, ekkja Roberts Kennedys, og við hlið hennar Jane móðir Williams. Sækjandinn í málinu, Moira Lasch, olli miklum vonbrigð- um. Hún virtist ekki leggja sig fram gagnvart kviðdóminum né fjölmiðlum og átti erfitt uppdráttar gagnvart Lupo dómara sem Lasch reyndi að fá settan af fyrir réttarhöldin á þeirri for- sendu að Lupo væri hliðholl hinum ákærða. Verjandanum Roy Black, tókst að troða lykilvitni Lasch, Anne Mercer niður í svaðið en þegar Ted Kénnedy kom í vitnastúkuna gerði Lasch ekkert í málinu þegar Black spurði hann um hluti sem vöktu upp ljúfsárar minningar í tenglsum við harmsögu fjöl- skyldunnar en komu þessu máli ekkert við. Koma Patriciu Bowman inn í dómsalinn var hápunktur rétt- arhaldanna. Allt frá því að atvikið átti sér stað níu mánuðum áður, nánar tiltekið á föstudaginn langa í mars 1991, hafði hún engar yfirlýsingar gefið opinberlega og hvergi komið fram. Því vissu fáir í salnum hvernig þessi fræga kona leit út og það tók blaðaljósmyndara nokkrar mínútur að átta sig þegar hún gekk inn - að hér væri hið dularfulla fórnarlamb á ferðinni. Á þeim níu mánuðum sem voru liðnir hafði verið svo hljótt um hana að uppi varð fótur og fit þegar fólk áttaði sig á því að þessi rúmlega 160 sentímetra háa kona var engin önnur en Patricia Bowman. Þegar hún var sest í vitnastúkuna var andlit hennar hulið. Fasið og framkoman var settleg og í mótsögn við það orðspor sem þegar fór af henni. Þrjár fóstureyðingar, þriggja ára dóttir sem hún eignaðist í lausaleik og meint neysla kóka- íns - voru þær upplýsingar sem starfslið Smiths hafði komið á kreik. Hún var klædd í dökkgráa dragt með sígildu sniði og með einfalda perlufesti um háls- inn. Dökkt hárið var í snyrtilegri passíuklippingu. Andlitið, sem aðeins birtist áhorfendum í sekúndubrot var ekki fallegt samkvæmt almennum viðmiðunum. Á myndum sem hin fræga Annie Leibovitz tók nokkrum mánuðum síðar, fyrir Vanity Fair, tekst hin- um listræna ljósmyndara að sýna andlit konu með for- tíð. Það er einhver svipur yfir því sem lýsir sorg og augun eru augu konu sem hefur lifað, úr þeim endur- speglast jafnvel lífsþreyta. Hún starir tómum augum út í buskann, önnur höndin hvflir á höfði lítils glókolls tveggja ára gamallar dóttur en í fingrum hinnar danglar sígarettan. owman þótti koma vel fyrir í vitnastúkunni, ólíkt vinstúlku sinni, Anne Mercer, nokkrum dögum áður. Hún lýsti atburðum umrædds kvölds og næt- ur, sagðist óhrædd hafa farið í fylgd Smiths á Kennedysetrið. „Ég taldi það fullkomlega öruggt og vissi að öldungardeildarþingmaðurinn var á staðnum. Ég skynjaði hvergi hættu í þessu sam- bandi.“ Af til brast hún í grát. Margir í salnum fengu gæsahúð þegar hún lýsti sjálfri árásinni. „Ég hélt hann ætlaði að drepa mig,“ sagði hún. Roy Black greip aldrei fram í fyrir henni. William Smith var tilneyddur að ganga í vitna- stúkuna eftir að Patricia Bowman hafði borið vitni. Roy Black ávarpaði réttinn áður og sagðist vilja tryggja það að vitnis- burður Smiths leiddi ekki til þess að kölluð yrðu inn vitni sem þegar væri búið að dæma úr tengslum við þetta mál. Hann var að vísa til kvennanna þriggja sem Lupo dómari neitaði um að bera vitni gegn Smith. Moira Lasch mótmælti þessu og sagði að hinn ákærði ætti ekki að komast upp með að bera vitni þar sem allt væri þaulæft og hann vissi fyrirfram hverjar spurning- framhald á bls. 94 HEIMSMYND 87

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.