Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Blaðsíða 9
9www.virk.is
VIRK
úrræðaaðilum í starfsendurhæfingu á
árinu 2013. Eins og sjá má vega sérhæfð
starfsendurhæfingarúrræði þyngst, enda
eru það yfirleitt mjög umfangsmikil
þjónustuúrræði sem taka þverfaglega á
öllum þeim þáttum sem vinna þarf með í
flóknum aðstæðum einstaklinga.
Mynd 4 sýnir fjölda sendra beiðna um
þjónustu til mismunandi úrræðaaðila á
árunum 2011–2013. Á bak við hverja
beiðni er hins vegar mismikil þjónusta,
eða allt frá örfáum tímum hjá t.d.
sálfræðingi yfir í beiðni um þverfaglega
starfsendurhæfingarþjónustu til nokkurra
mánaða. Myndin lýsir því ekki umfangi
þjónustunnar hjá þessum aðilum, heldur
gefur til kynna aukningu úrræðabeiðna á
milli ára undanfarin 3 ár.
Samstarf við ýmsa fagaðila
innan velferðarkerfisins
Hjá VIRK er mikil áhersla lögð á að byggja
upp gott samstarf við fagaðila innan
velferðarkerfisins. Þetta á jafnt við um
heilbrigðisstofnanir, endurhæfingarstofn-
anir, félagsþjónustu sveitarfélaga, Vinnu-
málastofnun, Tryggingastofnun, STARF og
fleiri aðila.
Mikið samstarf á sér stað við heimilis-
lækna og heilsugæslustöðvar um
allt land varðandi uppbyggingu á
starfsendurhæfingaráætlunum fyrir ein-
staklinga. Reglulegir fundir fara fram á
mörgum heilsugæslustöðvum þar sem
sérfræðingar frá VIRK fara yfir mál með
heimilislæknum og eftir aðstæðum, öðrum
fagaðilum innan heilsugæslunnar. Einnig
er unnið að því að efla samstarf við ýmsar
endurhæfingarstofnanir.
Samstarf VIRK við geðdeildir Landspítala
– háskólasjúkrahúss hefur verið í mikilli
uppbyggingu og í dag er ráðgjafi frá
VIRK með fastan tíma á Hvítabandinu
í hverri viku. Auk þess eru reglulega
haldnir samráðsfundir fagaðila VIRK og
geðdeilda LSH með það að markmiði
að samþætta geðheilbrigðisþjónustu og
atvinnutengda starfsendurhæfingu þegar
einstaklingar þurfa á því að halda. VIRK
hefur auk þess unnið að uppbyggingu á
sérstöku starfsendurhæfingarúrræði fyrir
unga einstaklinga með geðrofssjúkdóma
á byrjunarstigi í samvinnu við geðdeild
LSH að Laugarásvegi 71. Umfjöllun um
þetta verkefni er að finna í grein Sveinu
Berglindar Jónsdóttur, deildarstjóra hjá
VIRK, á bls. 30 í þessu ársriti.
Samstarf milli VIRK og félagsþjónustu
sveitarfélaga er smám saman að aukast
og fagaðilar innan félagsþjónustunnar vísa
einstaklingum í auknum mæli í þjónustu
á vegum VIRK þegar það á við. Einnig er
verið að byggja upp markvissara samstarf
við STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf og
Vinnumálastofnun, þar sem markmiðið er
að skýra verkaskiptingu aðila og samþætta
þjónustuna betur til að mæta mismunandi
þjónustuþörfum einstaklinga.
Aukið samstarf við
lífeyrissjóði
Með lögum nr. 60/2012 hófu lífeyrissjóðir
að greiða iðgjald til VIRK frá og með 1.
október 2012. Á árinu 2013 átti sér
stað uppbygging á markvissu samstarfi
við lífeyrissjóði um allt land. Stofnaður
var vinnuhópur sem lagði drög að
sameiginlegum vinnuferlum þar sem
markmiðið er að lífeyrissjóðir beini
einstaklingum sem sækja um örorkulífeyri
eða eru á örorkulífeyri í auknum mæli í
starfsendurhæfingu hjá VIRK. Á síðasta
ári vísuðu trúnaðarlæknar lífeyrissjóðanna
um 230 einstaklingum til VIRK og
tilvísunum frá þeim fjölgar nú stöðugt. Á
sama tíma er unnið að því að slípa til og
aðlaga ýmsa vinnuferla að þessu verkefni.
Sá trúnaðarlæknir sem vinnur fyrir flesta
lífeyrissjóði landsins hefur auk þess tekið
þátt í þróunarstarfi innan VIRK varðandi
uppbyggingu á starfsgetumati.
Fjöldi einstaklinga í þjónustu
Frá því að VIRK hóf að veita þjónustu
haustið 2009 og fram til 1. febrúar 2014
hafa um 5.900 einstaklingar leitað til VIRK,
þar af eru um 65% konur og 35% karlar.
Í töflu 1 má sjá yfirlit yfir heildarfjölda
þátttakenda frá upphafi og á mynd 5 eru
upplýsingar um fjölda nýrra þátttakenda á
hverju ári frá 2010–2013.
Mikil fjölgun nýrra þátttakenda varð á árinu
2013 samanborið við árið 2012. Hana má
Mynd 4
Þróun í fjölda úrræðabeiðna milli ára
Sá
lfræ
ðiþ
jón
us
ta
Sjú
kra
þjá
lfu
n
Sé
rhæ
fð
sta
rfs
en
du
rhæ
fin
g
Ná
m
og
ná
ms
kei
ð
Lík
am
sræ
kt
me
ð
stu
ðn
ing
i fa
ga
ðila
Ön
nu
r ú
rræ
ði
2011 2012 2013
935
1226
2166
2403
1414
949
145
564
738 735 825
850
1423
927
784
461
488
801
0
500
1000
1500
2000
2500
Heildarfjöldi sem hefur leitað til VIRK frá upphafi 5.907
Fjöldi í þjónustu 1.858
Fjöldi sem hefur lokið þjónustu (útskrifast) 2.826
Fjöldi sem hefur hætt þjónustu 1.221
Tafla 1
Fjöldi einstaklinga m.v. 1. febrúar 2014