Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 35
35www.virk.is
VIÐTAL
„Mér var vel tekið og
ég fékk góðar leiðbein-
ingar þegar ég hóf störf
hjá Prentmeti fyrir einu
og hálfu ári síðan,“ segir
Steinþór Jóhannsson,
sem fyrir nokkru síðan
fékk fastráðningu hjá
Prentmeti eftir að hafa
verið á vinnustaða-
samningi.“
Góð reynsla af
vinnustaðasamningi
Steinþór B. Jóhannsson starfsmaður hjá Prentmet
„Ég datt út af vinnumarkaði þegar ég hætti
hjá Norðuráli vegna veikinda. Ég hafði
unnið mikið hjá Norðuráli og varð með
tímanum það kvíðinn að ég átti bágt með
að sinna mínu starfi. Í framhaldi af þessum
veikindum leitaði ég til VIRK, en læknirinn
minn hafði bent mér á að reyna að fá
þar aðstoð. Niðurstaðan varð að ég fór í
samstarf við VIRK og ýmislegt gott kom út úr
því. Ég fór til dæmis í áhugasviðsgreiningu,
meðferð hjá sálfræðingi og sjúkraþjálfun.
Einnig naut ég aðstoðar iðjuþjálfa og fleiri
fagaðila meðan ég var að ná mér á strik.
Fyrsti ráðgjafinn reyndist mér sérstaklega
vel.“
Hvaða markmið settir þú þér í upphafi?
„Markmiðið var alltaf að komast í vinnu
aftur. Á vegum VIRK fór ég til Sinnum,
sem höfðu milligöngu um að finna fyrir mig
starf eftir að ég hafði verið í endurhæfingu
hjá þeim. Ég hafði aldrei komið nálægt
prentiðnaðarstörfum þegar ég komst á
vinnustaðasamning hjá Prentmeti. Það
tók sinn tíma að komast inn í starfið, en ég
fékk góða aðstoð og leiðbeiningar. Mér var
frá upphafi vel tekið af samstarfsfólki og
yfirmönnum.“
Sóttir þú um fastráðningu?
„Ég sótti ekki beint um hana, hún kom
bara í beinu framhaldi af störfum mínum
hjá fyrirtækinu. Hólmfríður Edvardsdóttir,
deildarstjórinn minn, beitti sér í því máli
mér til hagsbóta. Mér líkar mjög vel að
starfa hjá Prentmeti og set ekki fyrir mig að
sækja vinnu frá Akranesi til Reykjavíkur.
Ég er þakklátur fyrir að fá tækifæri til að
komast þarna í vinnu og hef góða reynslu
af fyrirtækinu og starfsfólkinu þar.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir