Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Blaðsíða 26

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Blaðsíða 26
26 www.virk.is UPPLÝSINGAR V IÐ TA L Ég var lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í janúar 2010 og hluti af endurhæfingunni fólst í því að mér var komið í samband við VIRK,“ segir Steinunn Þórisdóttir kennari og deildarstjóri á leikskólanum Krílakoti, Dalvík. „Ég var í þrjár vikur inniliggjandi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og töluverðan tíma á eftir var ég þar göngudeildarsjúklingur. Hjá FSA hófst endurhæfing mín.“ „Ég hafði átt við mikla erfiðleika að stríða áður en ég lagðist inn, verið undir gríðarlegu álagi og átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Við það að leggjast inn á sjúkrahús má segja að ég hafi „hrunið“, ef þannig er hægt að taka til orða. Ég fékk aldrei neina aðra greiningu en að ég væri haldin miklum kvíða, þunglyndi og áfallastreitu. Þetta þrennt var síðan unnið með. Fyrst um sinn komu sálfræðingur, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi á sjúkrahúsinu að endurhæfingunni, ásamt starfsfólki deildarinnar. Fyrstu vikurnar snerist endurhæfingin um að halda út venjulegan dag heima, borða og gera einföldustu hluti, svo sem að elda mat og sinna fjölskyldulífi. Einnig þurfti að koma reglu á svefninn. Ég hafði ekki getað sofið sem neinu nam um margra mánaða skeið. Ég þurfti því að læra upp á nýtt að ná að hvílast. Um svipað leyti og ég hóf samtalsmeðferð hjá sálfræðingi undir eftirliti geðlæknis kom VIRK að mínum málum. Þetta var líklega undir vorið 2010. Félagsráðgjafinn og iðjuþjálfinn á sjúkrahúsinu sáu um að koma mér í samband við VIRK. Eftir að þau tengsl voru komin á var endurhæfingunni að mestu stýrt af VIRK og af sálfræðingnum á vegum FSA en ég var, sem fyrr greinir, þá þegar komin í samband við hann.“ „Veikindin voru mér lexía“ „Í upphafi beindist starfsendurhæfingin hjá VIRK að mestu að því að byggja mig upp svo ég kæmist aftur inn á vinnumarkaðinn í nokkrum skrefum. Ég sótti nokkur sjálfsstyrkingarnámskeið sem gerðu mér gríðarlega gott. Þar var tekið á kvíða og félagsfælni, en mjög mikilvægt er fyrir fólk sem glímir við hvers kyns veikindi, andleg sem líkamleg, að komast í hóp annarra sem standa í svipuðum sporum. Bæði til að fá félagslegan stuðning og ekki síður til að átta sig á að maður er ekki einn í vanda staddur eða á nokkurn hátt minni manneskja en aðrir. Allir geta veikst eða gengið í gegnum „VIRK stóð vörð um starfsréttindi“ Steinunn Þórisdóttir leikskólakennari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.