Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 14
14 www.virk.is
V
IR
K
VIRK eru undantekningalítið að glíma við
flókinn heilsufarsvanda og oft mjög erfiðar
félagslegar aðstæður.
Við skoðun á þessum gögnum er einnig
mikilvægt að hafa í huga að fyrirkomulag
framfærslukerfisins felur í sér ýmsa
hvata sem valda því að ekki er hægt að
meta árangur eingöngu út frá gögnum
VIRK. Í dag útskrifast einstaklingar frá
VIRK til dæmis með vinnugetu í hálft
starf, en fyrirkomulag örorkulífeyris hjá
Tryggingastofnun ríkisins gerir þeim ekki
kleift að fá örorkulífeyri að hálfu leyti á móti
sinni vinnugetu. Því verður niðurstaðan oft
á tíðum sú að viðkomandi einstaklingur fer
á fullan örorkulífeyri, þrátt fyrir að hafa náð
talsverðum árangri hjá VIRK við að auka
vinnugetu sína. Þannig má fullyrða að hluti
af þeim 22% sem eru með örorkulífeyri í
lok þjónustu hjá VIRK (sjá mynd 13) hafi
í raun náð þeim árangri í þjónustunni að
geta unnið að hluta til en sækja um fullan
örorkulífeyri á meðan ekki er boðið upp á
sveigjanlegra kerfi. Á meðan bótakerfið er
byggt upp á þennan hátt verður skráning
framfærslustöðu einstaklinga í lok þjónustu
aldrei góður mælikvarði á raunverulegan
árangur af starfi VIRK.
Þegar árangur af starfsendurhæfingar-
þjónustu er skoðaður skiptir miklu máli
að taka mið af því hver staða einstaklinga
var við upphaf þjónustu. Bestur árangur
næst þegar einstaklingar koma snemma
og eru enn með vinnusamband við
komu til ráðgjafa. Þetta má sjá í töflu 2.
Þar eru teknar saman upplýsingar um
einstaklinga sem hafa lokið þjónustu hjá
VIRK, með samanburði á framfærslustöðu
við upphaf og lok þjónustu. Þetta er skráð
í stöðugildum. Þessir einstaklingar höfðu
ekki vinnugetu við komu til VIRK en
framfærslustaða þeirra var mismunandi,
allt frá því að vera enn að þiggja laun
í veikindum og til þess að hafa verið
lengi á örorkulífeyri. Þessi mismunandi
framfærslustaða gefur þannig til kynna
mislangan tíma frá vinnumarkaði vegna
heilsubrests. Í útreikningunum var miðað
við að framfærslustaða í upphafi væri
a.m.k. helmingur heildarframfærslu fyrir
viðkomandi einstakling. Þannig hafa þeir
sem eru í hópnum Örorkulífeyrir í upphafi
þjónustu haft a.m.k. helming tekna sinna
af örorkulífeyri við upphaf þjónustu.
Mynd 13
Framfærslustaða einstaklinga við lok þjónustu hjá VIRK
Hjá um 2800 einstaklingum sem hafa lokið þjónustu
Laun á vinnumarkaði
Endurhæfingarlífeyrir
Annað
Atvinnuleysisbætur
Námslán
Örorkulífeyrir49%
8%
22%
4%
3%
14%