Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 19
19www.virk.is
VIRK
Einnig er vert að benda á þá miklu vit-
undarvakningu sem hefur átt sér stað
síðustu ár varðandi mikilvægi forvarna
á vinnustað. Leyfi ég mér sérstaklega
að nefna mikilvægi heilsueflingar á
vinnustaðnum, en þeim þætti eru gerð góð
skil í grein Jónínu Waagfjörð á bls. 48.
Mikilvægi þverfaglegrar
sýnar
Ákveðinn hluti þeirra sem glíma við
heilsufarsvanda þarf sértæka aðstoð
við að komast til vinnu. Vari fjarvera frá
vinnu lengur en 4–6 vikur ætti að ígrunda
markvissa starfsendurhæfingu, enda
hefur það sýnt sig að það skilar góðum
árangri (Waddell o.fl. 2013).
Mikilvægt er að hafa í huga að meira er
ekki endilega betra. Öll íhlutun á að vera
vel ígrunduð og faglega undirbyggð þannig
að hver einstaklingur fái þá þjónustu sem
hann þarf. Ef komið er snemma að málum
hafa rannsóknir sýnt að einföld úrræði og
ráðleggingar eru oft mun árangursríkari
en umfangsmeiri og sértækari íhlutanir.
Sértækar íhlutanir seinna í ferlinu eru hins
vegar mikilvægar (Waddell o.fl. 2013).
Rétt er að undirstrika mikilvægi heild-
rænnar sýnar og ekki síst þverfaglegrar
vinnu og nálgunar í starfsendurhæfingu.
Rannsóknir hafa sýnt fram á betri árangur
þegar þverfagleg nálgun er til staðar, að
því gefnu að viss tími sé liðinn frá því að
einstaklingur hætti í vinnu vegna veikinda
eða slyss. Tímamörkin sem oftast eru
nefnd hér eru 3–6 mánuðir. Í flóknari
tilfellum er þverfagleg vinna forsenda þess
að vel takist til (Loisell, Durand, Diallo,
Vachon, Charpentier og Labelle 2003,
Ward o.fl. 2012, Wadell o.fl. 2013).
Fagleg þróun hjá VIRK –
Starfsendurhæfingarsjóði
Í ljósi aukinnar reynslu hjá VIRK hefur
mikil þróun átt sér stað síðastliðið ár. Mikil
og hröð aukning á eftirspurn þjónustu
hefur kallað á aðlögun verklags og nánari
útfærslu á faglegum áherslum. Jafnframt
hefur mikil vinna verið lögð í að setja niður
skýra vinnuferla og verklag þannig að
samhæfing sé tryggð. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir helstu þáttum þessarar
þróunar undanfarið ár.
Áhugahvetjandi samtalstækni
Rannsóknir hafa sýnt að Áhugahvetjandi
samtalstækni (e. Motivational Interviewing)
er árangursrík þegar kemur að því að efla
áhugahvöt einstaklinga (Burke, Arkowitz
og Menchola 2003, Hettema, Steele og
Miller 2005, Rubak, Sandbæk, Lauritzen
og Christensen 2005). Um er að ræða
aðferðafræði þar sem unnið er að því að
hvetja einstaklinginn áfram þannig að hann
taki virkan þátt í starfsendurhæfingunni og
taki ábyrgð á sínum málum.
Lögð hefur verið áhersla á að ráðgjafar
í starfsendurhæfingu tileinki sér þessa
aðferðafræði í sínu starfi. Kennsla í
Áhugahvetjandi samtalstækni hófst
haustið 2012 og varði út vorönn 2013,
þegar allir ráðgjafar fóru á grunnnámskeið.
Á haustmánuðum 2013 hófst svo
framhaldsnámskeið en nýir ráðgjafar fóru
á grunnnámskeið.
Þverfagleg nálgun á öllum
stigum starfsendurhæfingar
Í starfsendurhæfingarferli hjá VIRK er lögð
áhersla á að horft sé þverfaglega á mál
einstaklings. Þverfaglegur stuðningur við
vinnu ráðgjafa var stóraukinn á síðasta ári
og má þar fyrst nefna að ráðgjafar rýna
nú öll ný mál innan mánaðar ásamt teymi
reyndra sérfræðinga í starfsendurhæfingu.
Þar er farið yfir þau gögn einstaklings
sem hafa borist og sett niður markmið
og ráðleggingar um næstu skref í
starfsendurhæfingu. Þessu teymi er ætlað
að tryggja markvissa og góða þjónustu og
setja upp einstaklingsbundna áætlun. Á
sama hátt er nú unnið markvisst að rýni
mála sem hafa verið lengur en 6 mánuði
hjá VIRK, farið er yfir gang mála og
starfsendurhæfingaráætlun endurskoðuð
ef þess þykir þurfa. Sé talin þörf á að
einstaklingur hitti sérfræðinga fer fram
þverfaglegt mat. Þar eru mál hans skoðuð
á ítarlegan hátt af viðeigandi fagaðilum,
allt eftir þörfum hvers og eins. Dæmi um
fagaðila í þverfaglegu mati eru læknir,
sjúkraþjálfari, sálfræðingur, iðjuþjálfi og
félagsráðgjafi.
Starfsendurhæfing
einstaklinga með langvinn
geðræn vandamál
Á undanförnum mánuðum hafa komið
fram ábendingar um að þörf væri á að
þróa og aðlaga þjónustu VIRK enn betur
að einstaklingum sem eiga við langvinn
geðræn vandamál að stríða. Með góðri
samvinnu fjölda fagfólks á þessu sviði
hefur átt sér stað mjög jákvæð þróun, með
því markmiði að ná enn betri árangri í
starfsendurhæfingu fyrir þennan hóp. Mig
langar hér að benda á nokkra þætti:
Til að tryggja samfelldari þjónustu •
við einstaklinga sem er beint til VIRK
frá geðdeild LSH er ráðgjafi á vegum
VIRK með viðveru á Hvítabandinu
einu sinni í viku. Til hans geta
geðdeildir LSH vísað einstaklingum
í starfsendurhæfingu, þurfi þeir
sérstaka aðlögun.
M• ánaðarlegir fundir eiga sér
stað milli VIRK og geðdeildar
LSH. Á þessum fundum gefst
• 95% þeirra sem eru fjarverandi
vegna veikinda snúa aftur til
vinnu innan 20 daga
• Einfaldar ráðleggingar og
áhersla á að halda góðu
sambandi við vinnustað er
árangursríkt á fyrstu
4-6 vikunum
Nokkrar staðreyndir
varðandi fjarvistir frá vinnu vegna veikinda
• Starfsendurhæfing er árangursrík
4-6 vikum eftir að einstaklingur
hættir að vinna vegna veikinda
• Minna afl í snemmbæru inngripi,
meira afl þegar líður á
• Þverfagleg aðkoma 3-6 mánuðum
eftir að einstaklingur hættir að
vinna vegna veikinda