Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 32
32 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
V
IÐ
TA
L
VIÐTAL
„Virðing og traust
þurfa að ríkja“
Ingibjörg S. Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri hjá Prentmet
Hjá Prentmeti að Lynghálsi 1 er einn fyrrum notandi þjónustu
VIRK í vinnu og annar í starfskynningu. Við hittum að máli
Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur, annan eiganda
fyrirtækisins, starfandi stjórnarformann og yfirmann
vinnustaðasamninga.
Húsakynni Prentmets að Lynghálsi 1 eru
glæsileg. Fallegar myndir eru á veggjum
og aðstaða starfsfólks virðist þægileg.
Heill veggur í móttöku- og sölusalnum er
þakinn hillum þar sem sjá má fjölbreytta
framleiðslu fyrirtækisins, bæði í bókaútgáfu,
bæklingum og hverskyns umbúðum, svo
eitthvað sé nefnt.
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, starf-
andi stjórnarformaður, byrjar á að fara
með blaðamann um fyrirtækið til að
sýna allar deildir. Á þeirri leið hittum
við þá tvo einstaklinga sem byrjuðu
á vinnustaðasamningi hjá Prentmeti
áður en þeir fengu fastráðningu, svo og
deildarstjóra þeirra.
Í frágangsdeild hittum við fyrir einstakling
sem var í samstarfi við VIRK ásamt
Hólmfríði Edvardsdóttur deildarstjóra.
„Viðkomandi starfsmaður hefur sinnt starfi
sínu mjög vel og allt hefur gengið vel. Ég er
mjög ánægð með hann og verklag hans.
Ég er einnig ánægð með þann sem er
hér í starfsþjálfun, þótt hann hafi verið
hér í stuttan tíma. Viðkomandi segist
afskaplega glaður yfir tækifærinu til að
vera hér í starfsþjálfun, segir það veita sér
tilbreytingu og tilgang,“ segir Hólmfríður.
Einstaklingurinn sem um ræðir er í
Að loknum leiðangrinum um deildir
Prentmets býður Ingibjörg mér sæti á
skrifstofu sinni, undir málverki eftir Tolla,
og við ræðum reynslu fyrirtækisins af
starfi þeirra einstaklinga sem vinna hjá
fyrirtækinu og hafa verið í samstarfi við
VIRK, í bland við aðrar upplýsingar um
Prentmet.
Leggur mikið upp úr
jákvæðum áhuga
„Við Guðmundur Ragnar Guðmundsson,
maðurinn minn og framkvæmdastjóri
Prentmets, stofnuðum fyrirtækið 4. apríl
árið 1992. Guðmundur Ragnar er lærður
prentsmiður og við erum bæði rekstrar-
fræðingar frá Háskólanum á Bifröst, þar
sem við kynntumst. Þegar við vorum
nýútskrifuð úr námi og nýgift ákváðum
við að fara ekki í brúðkaupsferð, heldur
stofna þetta fyrirtæki. Prentmet óx svo
smám saman, var að segja má í stöðugum
vexti frá árinu 2000 og alveg fram að
hruni. Reyndar höfðum við fundið fyrir
því að bankarnir voru farnir að draga úr
verkefnum skömmu fyrir hrun.
Við komumst í gegnum hremmingar
hrunsins með rækilegri hagræðingu. Nú
starfa um níutíu manns hjá fyrirtækinu,
hér í aðalstöðvunum og í útibúunum á
starfsþjálfuninni fjóra klukkutíma á viku
í sex vikur. „Hann er fótlama og vinnur
sína vinnu sitjandi við borð, en það hefur
gengið vel. Almennt gildir að finna ráð til
að yfirstíga vandkvæðin í hverju tilviki,“
bætir Hólmfríður við.
Í umbúðadeild hittum við starfsmann sem
kom inn á vinnustaðasamningi frá TR en
fékk svo fastráðningu.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel,“ segir
Helgi B. Sigurðsson deildarstjóri. Okkur
sem vinnum með honum þykir vænt um
hann og finnum að hann nær æ betri
tökum á starfi sínu. Hann sýnir nú meira
frumkvæði en áður. Ég er ánægður með
þennan starfsmann.
Á leið okkar Ingibjargar Steinunnar
um deildir Prentmets verður mér ljóst
að prentfyrirtæki af þessari stærð líkist
einna helst líkama; allt er hluti af einni
heild. Hver og einn starfsmaður hefur sitt
hlutverk, að ekki sé talað um sérhæfðan
og mikilfenglegan vélakostinn. Allt verður
þetta að starfa í jafnvægi. Þetta virðist hafa
gengið upp, ef marka má silfurskjöld á
vegg þar sem fram kemur að Prentmet
hefur fengið verðlaun fyrir framúrskarandi
prentverk frá stærsta pappírsframleiðanda
í heimi, Sappi.