Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 40
40 www.virk.is
P
A
LL
B
O
R
Ð
S
U
M
R
Æ
Ð
U
R
upp vandi með framfærsluna og úr verður
rosalegur vítahringur. Þegar samfélagið
býður ekki viðeigandi úrræði verður
ástandið mjög erfitt.
Einstaklingurinn er með í
ferlinu frá upphafi
Einstaklingar í þverfaglegu mati hitta oft
ólíka fagaðila og er þátttaka þeirra mikil-
væg í öllu starfsendurhæfingarferlinu.
Þetta á jafnt við um framkvæmd matsins
og þátttöku í þeim úrræðum sem skipu-
lögð eru.
Þórunn: Mín reynsla er sú að fólk er yfirleitt
mjög ánægt. Sumir eru þreyttir á viðtölum
en eru samt fegnir að fá þetta tækifæri
og finna að til eru leiðir og úrræði sem
koma til móts við þeirra vanda. Þessir
einstaklingar taka þátt í ferlinu og fá að
segja sína skoðun.
Gunnar: Margir upplifa að þarna sé í fyrsta
sinn tekið heildstætt á vanda þeirra, eftir að
þeir hafi velkst um í kerfinu einhvern tíma.
Í flestum tilvikum má þannig segja að fólk
upplifi þetta á jákvæðan hátt. Við erum oft
að spyrja fólk sömu spurninganna, en við
verðum að fá ákveðnar upplýsingar til að
geta sett fram faglegt mat.
Ragnhildur: Fólk er með í ferlinu frá upphafi
og það er mikilvæg nálgun.
Rúnar: Stundum verð ég var við streitu á
skilafundum með einstaklingum, en hún
dvínar yfirleitt eftir því sem líður á fundinn.
Fólk segist oft ekki hafa sofið nóttina áður.
Það finnst mér heilbrigður kvíði. Ég man
eftir tilfelli þar sem mat einstaklings sýndi að
hann hafði sterka sjálfsmynd. Viðkomandi
sendi mér svo skilaboð eftir fundinn og
sagðist finna fyrir auknum krafti. Þannig
finnst jafnvel þeim sem eru í góðum málum
gott að fá staðfestingu á því.
Þátttakendur í umræðunni voru sammála
um að þegar kemur að atvinnuþátttöku
þurfi að byggja á styrkleikum viðkom-
andi, en auðvitað megi ekki gleyma að
greina hindranir.
Rúnar: Kvíðaröskun þarf til dæmis ekki
að útiloka atvinnuþátttöku. Maður sér
stundum einstaklinga sem hafa verið að
fást við vandamál í 20 ár en eiga líka 20
ára atvinnusögu að baki. Kvíðaröskunin
er þá ekki hindrun og það þarf að leita að
öðrum ástæðum. Það hvort styrkleikarnir
eru svo dregnir nógu sterkt fram í skýrslu
er örugglega eitthvað sem ég mætti skoða
betur hjá sjálfum mér, því það skiptir
verulegu máli.
Gunnar: Þegar kemur að atvinnuþátttöku
hlýtur maður að byggja á styrkleikunum.
Svo er vert að átta sig á því að ekki eru
allir 100 prósent heilbrigðir sem eru á
vinnumarkaðnum. Margir eru starfandi
þrátt fyrir langvinna bakverki, kvíða eða
þunglyndi. Þessi einkenni þurfa ekki að
vera hindrun í vinnu og eru ekki endilega
aðgöngumiðinn út af vinnumarkaði. Það
eru styrkleikar hvers og eins sem eiga
að halda fólki á vinnumarkaði. Það er
stundum það versta sem maður gerir
einstaklingi að veikindaskrifa hann vegna
bakverkja eða kvíða, svo dæmi sé tekið.
Þórunn: Stundum er það vinnan sem
viðheldur góðri heilsu. Það er mikilvægt
að skoða hvað fólk getur í dagsins önn.
Mér finnst ekki erfitt að finna styrkleika
einstaklinga og leita að þeim í viðtölum.
Gunnar: Það er svo mikilvægt að sjá styrk-
leika einstaklingsins. Því fylgir ábyrgð að
veikindaskrifa fólk og dæma það frá vinnu.
Það er ekki nóg að fólk komi og segi:
Mér er illt. Það er ekki næg ástæða til að
veikindaskrifa einstaklinginn.
Þórunn: Ef fólk er í starfi þarf að spyrja
hvort mögulegt sé að styðja betur við
viðkomandi.
Ragnhildur: Í leitinni að farsælli lausn er
gott að skoða styrkleikana.
Gunnar: Stundum þurfum við að segja
fólki að starfið sem það er í og vill vera í
sé ekki raunhæft til bata og þá þarf fólk
að leita að nýju starfi. Oft fylgir því mikil